Strákarnir okkar lenda kl 16:30 á Reykjavíkurflugvelli eftir glæsilegan árangur í EM í Austurríki. En nú gefst aðdáendum þeirra tækifæri að hitta þá augliti til auglitis. Athöfn verður með strákunum í Laugardalshöll sem hefst kl.17.45 í dag. Þar verður tekið á móti íslenska landsliðinu, smá ræðuhöld verð í gangi og styrkur ríkisstjórnarinnar til HSÍ afhentur. Leikmenn árita svo ókeypis plaköt fyrir alla og tala við aðdáendur. Atburðurinn er opinn öllum og ókeypis