Eftir tveggja vikna ferð í Austurríki er ferðinni lokið og ævintýrið endaði vel. Bronsið í höfn og aðeins einn tapleikur á mótinu, gegn ómennskum ÓL-, Heims-, og Evrópumeisturum Frakka. Engin skömm í því. Strákarnir okkar geta svo sannarlega borið höfuðið hátt.
Manni leist í raun ekki á blikuna eftir leikinn gegn Serbum. Okkar menn voru betri en slæmur lokakafli varð því að falli. Næst voru það heimamenn í Austurríki, lélegasta liðið í mótinu á pappírunum. Lang lélegasta. Þeir sýndu þó hvað þeir gátu og enduðu fyrir ofan Þjóðverja, Svía og fleiri góð lið.
Eftir á að hyggja var jafnteflið gegn þeim frábært. Strákarnir gíruðu sig upp gegn Dönum og hreinlega slátruðu þeim. Þvílíkur leikur. Allt í einu varð allt svo frábært eftir erfiða daga í Linz. Það er aldrei gaman að biðja um viðtöl eftir svona leiki en allir sem einn gáfu strákarnir alltaf kost á sér.
Króatíuleikurinn var súrsætur, við vorum betri en á endanum gátu þeir tryggt sér sigur. Jafntefli aftur. Rússar voru ævintýralega slakir en Norðmenn góðir. Mikið var gaman að vinna þá!
Það er virkilega gaman að fylgjast með þessum strákum innan sem utan vallar. Það kom alltaf maður í manns stað á mótinu. Sjáið innkomuna hjá Hreiðari gegn Króötum þar sem hann varði síðasta skotið og innkomuna gegn Pólverjum. Frábært að sjá þetta. Breiddin í liðinu er loksins orðin góð og það stendur ekki og fellur á einum eða tveimur mönnum.
Það verður gaman að fylgjast með strákunum í Svíþjóð. Þeir ætla sér gull þar.
Það er líka það eina sem er eftir.
ÍBS þakkar fyrir sig, þakkar strákunum okkar sérstaklega fyrir og öllum í kringum liðið og kveður frá Austurríki.
Áfram Ísland!
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |