31.01.2010 / 19:28

Guðmundur: Mér líður stórkostlega og ég er stoltur af árangri liðsins

Guðmundur: Mér líður stórkostlega og ég er stoltur af árangri liðsins

Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með Guðmundi Guðmundssyni á mótinu. Þessi vinnuþjarkur hefur lagt nótt sem nýtan dag við að undirbúa liðið og ég get nánast fullyrt að enginn þjálfari lagði jafn mikið á sig og hann á þessu móti. Guðmundur er einn besti þjálfari heims í dag, það er bara þannig. Ég ræddi við Guðmund um líðan hans eftir mótið og ýmislegt fleira. Hann sagði mér líka frá ótrúlegu starfi Gunnars Magnússonar í gær.

„Mér líður stórkostlega og ég er stoltur af árangri liðsins. Allt liðið og allt starfsfólkið er búið að standa sig stórkostlega. Aðstoðarmenn mínir, Óskar og allir. Gunnar Magnússon líka, þó að hann sé kominn til Íslands að vinna í erfiðum málum hélt hann áfram að hjálpa okkur. Hann sendi okkur hvatningarmyndbönd og klippti og leikgreindi fyrir okkur leik Pólverja og Króata í gær. Það sýnir stórkostlega karakter og við erum mjög þakklátir fyrir það.“

„Það var á þessum forsendum að við ákváðum að tileinka honum og allri fjölskyldu hans þessa medalíu. Við börðumst fyrir þessu og við öll. Einar, sjúkraþjálfarinn og læknirinn, Inga og bara allir. Það eru forréttindi að starfa með þessu fólki.“

„Íslenska þjóðin getur verið frábærlega stolt af þessu og við erum ánægð með að koma með jákvæða strauma inn í íslenskt samfélag þar sem erfiðir hlutir eru til staðar. Það er hluti af þessu að geta kvatt landann, það er stórt atriði.“

Hvernig undirbjóstu liðið fyrir leikinn eftir vonbrigðin gegn Frökkum.
„Já leikurinn gegn Frökkum voru mikil vonbrigði. Við héldum strax fund um kvöldið og ákváðum að við ætluðum að koma til baka í þetta núna. Við ákváðum að leggja Frakkaleikinn til hliðar eftir að ég sagði hvað ég vildi öðruvísi í þessum leik. Síðan var lagst yfir það hvaða leiki við ætluðum að greina. Gunnar greindi einn þeirra og Óskar Bjarni tvo.“

„Síðan var lagst yfir það hvaða strategíu við ætluðum að nota í leiknum. Við einbeittum okkur að varnarleiknum, við vissum að hverju við gengum sóknarlega. Og þú sást fyrri hálfleikinn. Þetta var ekki tilviljun. Þetta var taktískt útfærsla. Þetta var besti hálfleikur sem ég hef upplifað hjá mínu liði. Hann fer í sögubækurnar."

"Síðan í seinni hálfleik verðum við vitni að einhverri stórkostlegustu varnartilburðum sem ég hef séð í handbolta, nokkurn tíman, fyrr og síðar. Menn skulu skoða þetta hjá Alexi. Þetta verður lengi í minnum haft.“

Segðu mér frá mótinu fyrir þig persónulega, þú lagðir alveg ótrúlega vinnu á þig.
„Ég hef lagt mikla vinnu á mig eins og allir aðrir. Ég veit það að við þurfum að leggja mjög hart að okkur til að koma vel undirbúnir til leiks. Leikmennirnir þurfa svo að sitja marga fundi til að fara yfir hlutina. Þeir hafa staðið sig stórkostlega með það.“

„Ég er afskaplega þreyttur. Við vorum að gantast með það að þetta eru ákveðnar þrælabúðir,“ sagði Guðmundur og brosti. „En þetta er erfið og mikil vinna og ég er ekki að kvarta. En framlag allra hérna er ómetanlegt.“

Svo eru svo miklar tilfinningar í þessu, þú fékkst erfið tíðindi á mótinu þegar félag þitt fór í greiðslustöðvun og þú þar með án atvinnu.
„Það spurðu mig margir hvort GOG málið myndi trufla mig en ég neitaði því. Ég vildi bara einbeita mér 100 prósent að landsliðinu. Menn þurfa ekkert að hafa áhyggjur af því að ef ég tek eitthvað að mér geri ég það 100 prósent,“ sagði Guðmundur sem mun væntanlega fá hrúgu af tilboðum þegar fréttist að þessi magnaði þjálfari sé á lausu.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29