Ólafur Stefánsson er ekkert á þeim buxunum að hætta að leika með íslenska landsliðinu. Óli var valinn í lið mótsins og sagði reyndar að það hlyti að hafa verið valið fyrir undanúrslitaleikina. Hann var ósáttur með sig í gær og í dag og viðurkenndi að það hafi ekki verið heillandi að halda áfram eftir tapið gegn Frökkum. En hann stoppar ekki hér. Hann segir líka að Alexander hafi átt „múv“ ársins í íþróttaheiminum.
Hvernig líður þér eftir mótið?
„Bara mjög vel. Ef ég tek í burtu lala frammistöðu hjá mér persónulega síðustu tvo leiki, þá reyni ég að gleyma því óveðursskýi. Mér finnst þetta frábært í dag. Fyrri hálfleikinn er ég glaðastur með. Við náðum að vinna okkur upp úr leiknum gegn Frökkum, það var pínu sjokk gegn þeim.“
„Þetta voru mjög erfiðir 22 tímar. En við settumst niður og menn hættu ekkert að vinna þrátt fyrir þetta. Menn klipptu og annað eftir því. Þó að andinn hafi kannski ekki verið alveg eins góður og allt mótið þá erum við samt að skoða þetta og djóka síðan í hver öðrum og svona. Við unnum vinnuna áfram. Við komum þeim á óvart, stoppuðum klippingarnar þeirra og það var mjög flott að sjá þetta.“
„Í fyrri hálfleik sýndum við einn besta varnarleik sem Ísland hefur sýnt. Og jafnvel heilt yfir var þetta fín vörn. Við klikkuðum í sókninni í seinni hálfleik en hann varði eins og berserkur þarna. En það er margt jákvætt í þessu.“
„Fyrir mig, maður er kominn svona á þann stall að maður getur horft á liðið spila eins og engla af bekknum og það er bara frábært. Hver staða er vel mönnuð af tveimur.“
„Svo held ég að það verði að sýna varnarmúvið hjá Lexa næstu daga í sjónvarpinu. Súperman-múvið í hraðaupphlaupinu. Þetta var ekki eðlilegt. Ég hef aldrei séð svona á ævinni. Þetta er múv ársins. Ég veit ekki hvað Eiður Smári eða einhver þarf að gera til að þetta sé ekki múv ársins.“
Ætlarðu að vinna gull með landsliðinu?
"Já meðan ég er í því stefnir maður á það besta sem í boði er. Ég var ekkert langt frá því að vilja hætta í gær, mér fannst jafnvel að verða kominn tími á það,“ sagði Ólafur og brosti. „En svo fær maður klapp á bakið frá mönnum eins og Snorra, Robba, Gaua og þessum og segja að maður sé ekki alveg ómögulegur þó að ég hafi ekki átt minn besta leik.“
„En á meðan maður er í atvinnumennsku og Gummi hóar í mig er ég klár. Ef ég er í formi, Gummi sér það bara. Það var fyrir þetta mót og það á ekkert að vera þannig að ég eigi öruggt sæti í þessu liði. Maður á bara að vera valinn ef maður er betri en hinir. Ekki á einhverri fornri frægð,“ sagði Ólafur.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |