31.01.2010 / 19:05

Guðjón Valur: Væri til í að vera í þessu liði allt árið um kring

Guðjón Valur: Væri til í að vera í þessu liði allt árið um kring

Guðjón Valur Sigurðsson dró vagninn á köflum í mótinu. Guðjón var frábær í dag, skoraði átta mörk og var markahæsti maður liðsins. Hann segir hreinlega erfitt að yfirgefa liðið núna, það sé svo frábært að vera í því. Guðjón var vígreifur í leikslok.

„Það var ekkert alltof auðvelt að undirbúa þennan leik. En það var klárt mál að við vildum enda með sigri og með medalíu. En við höfðum góðan leik gegn þeim frá Ólympíuleikunum til að læra inn á þeirra leik. Við kíktum á hvað við gerðum vel þar.“

„Svo töluðum við mikið við hvorn annan og reyndum að tala við hvern annan til að rífa okkur aðeins upp úr þessum öldudal sem við lentum í gegn Frökkunum. Og það heppnaðist bara frekar vel sýnist mér,“ sagði Guðjón og brosti.

Segðu mér frá fyrri hálfleiknum, hann var ótrúlegur.
„Þetta var alveg frábær hálfleikur. Hann var frábærlega spilaður bæði varnarlega og í sókninni. Bjöggi var góður og við náðum hraðaupphlaupum. Svo ætluðum við heldur betur að keyra á þá í seinni hálfleiknum en það við börðumst og reyndum hvað við gátum en við vorum bara búnir á því. Við fengum þokkaleg færi og vorum að klikka mikið á markmanninum þeirra sem var reyndar stórkostlegur í seinni hálfleiknum. En maður á ekkert að hengja sig á smáatriðum núna, mótið er búið.“

„En mér finnst alveg rosalega leiðinlegt að skilja við liðið núna. Ég væri til í að vera í þessu liði allt árið um kring. Þetta er svo skemmtilegur hópur, frábærir þjálfarar og skemmtilegur andi sem er ekki hvar sem er.“

„En mér finnst alveg rosalega leiðinlegt að skilja við liðið núna. Ég væri til í að vera í þessu liði allt árið um kring. Þetta er svo skemmtilegur hópur, frábærir þjálfarar og skemmtilegur andi sem er ekki hvar sem er.“

Er gullöld að byrja hjá íslenska landsliðinu?

„Ég veit það ekki. Það hefur hjálpað okkur best að spara yfirlýsingarnar. Við erum ofsalega leiðinlegir í því að við erum ekkert að spenna bogann of hátt. Við tökum þetta bara leik fyrir leik. Við tölum ekki alltaf í fyrirsögnum en það er líka leiðinlegt að vera með galopinn kjaft og þurfa svo að éta það allt ofan í sig. Það er betra að einbeita sér að því sem maður getur gert.“

„Það er kannski leiðinlegt að hlusta á þetta og það er leiðinlegt að segja það en við tökum þetta bara leik fyrir leik en ef við vinnum þessa leiki vitum við að við stöndum uppi sem sigurvegarar. Við vonum að liðið haldist saman og haldist líka heilir. Hálft liðið var haltrandi og með grettu í andlitinu í fyrri hálfleik en við kláruðum þetta. Það er frábært að komast frá þessu með alla limi enn á.“

En nú er gullið eftir?
„Ertu að reyna að veiða mig í einhverjar yfirlýsingar,“ spurði Guðjón og uppskar hlátur. „Neinei, ég neita því ekkert að við eigum silfur og við eigum brons. En við þurfum líka að sjá að það eru margar aðrar góðar þjóðir í handboltanum í dag. Frakkarnir sýndu hvað þeir gátu í gær og mér finnst þeir bara að vera betri og betri. En ég held að við getum gengið stoltir frá þessu móti með bronsmedalíu. Við þurfum líka að sjá hvaða mót þetta er, hvaða lið fóru heim eftir riðlakeppnina, hvaða lið spila um fimmta sætið, þetta eru engir pappakassar. Þetta erum við að skilja fyrir aftan okkur og við getum verið virkilega ánægð með okkur,“ sagði Guðjón.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29