31.01.2010 / 18:37

Sverre: Erum með frábæra einstaklinga en enn betra lið

Sverre: Erum með frábæra einstaklinga en enn betra lið

Sverre Jakobsson var sem fyrr burðarás í vörn Íslands í dag en í fyrri hálfleik sýndi hún einhverja bestu varnartakta sem sést hafa á handboltavellinum. Það var Peking-stemning í liðinu og Sverre minntist einmitt á það. Hann segir að langur vegur sé á milli þriðja og fjórða sætis og liðið sé stolt af árangrinum.

„Þetta var eiginlega hálfgerð bilun. Þetta var svipað og þegar við náðum þessu upp á Ólympíuleikunum gegn Pólverjum og Spánverjum. Svo bættist kannski ofan á þetta svekkelsið frá því í gær þar sem við náðum kannski ekki alveg að sýna okkar rétta andlit og þessa grimmd sem hefur stundum einkennt okkur. Og ætti að einkenna okkur.“

„En fyrstu fimmtán mínúturnar ætluðum við að leggja ákveðnar línur fyrir okkur og fyrir leikinn. Við lögðum grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. En þetta er alveg stórkostleg stund.“

Og það er langur vegur á milli þriðja og fjórða sætis.

„Mjög langur. Við töluðum um það í gær, við svekktum okkur í einn eða tvo tíma en eftir mat og svona hugsuðum við bara: „Djöfull ætlum við að taka þetta“. Fjórða sætið hefði maður farið frekar svekktur heim en með því að ná í bronsið fer maður þvílíkt stoltur heim með medalíu í farteskinu. Við gáfum allt í þetta, tókum allt það jákvæða úr þessari keppni og beindum því að þessum leik.“

Hvernig er að vera hluti af þessu frábæra liði sem er að skrá sig í sögubækurnar á þessum árum?
„Ólýsanlegt. Við unnum fyrir þessi. Ég hef trú á okkur og þessu liðið. Þetta er stórkostlegt lið. Við erum líka með frábæra einstaklinga en það er ekki alltaf hægt að búa til frábært lið úr þeim. Við erum með frábæra einstaklinga en enn betra lið. Þetta höfum við gert. Sjálfstraustið er ótrúlegt og það sýndi sig hérna í dag.“

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29