31.01.2010 / 17:46

Björgvin: Erum að búa til hefð fyrir framtíðina

Björgvin: Erum að búa til hefð fyrir framtíðina

„Þetta var frábært. Það var erfitt að spila þennan leik. Líkaminn sagði nei en hugurinn já. Hugurinn dugði í dag fyrir okkur, alveg klárlega,“ sagði kampakátur Björgvin Páll. Ég ræddi við hann um nýtt gel, þreytuna og hvernig hann tileinkar Gunnari Magnússyni og fjölskyldu bronsið.

Voruð þið orðnir þreyttir?
„Já, þetta er auðvitað bæði líkamlega og andlega erfitt allt mótið. Við gerum jafntefli í fyrstu leikjunum og við erum að hugsa um það allt mótið. En þetta sýnir bara karakterinn okkar og styrk okkar andlega að koma inn í svona leik og í rauninni klára þá í fyrri hálfleik. Þeir komu auðvitað inn í þetta en við kláruðum þá og við erum með mikla betra lið og miklu betri einstaklinga. Það að vera meðal bestu liðum í heiminum sýnir bara hvað við erum góðir.“

Hvað um tilfinningalegan rússíbana, ekki bara handboltalega séð heldur líka áfallið hjá Gunna Magg. Breytti þetta miklu?

„Algjörlega. Þetta er auðvitað hrikalegt að missa þennan mann úr hópnum og þetta er skelfilegur atburður sem hann lendir í. Ég vil votta honum og allri fjölskyldunni virðingu mína og samúð. Þessi leikur er þeirra. Ég var það heppinn að ég náði að kynnast þessari konu, hún er hárgreiðslukona og hjálpaði okkur í kringum Silver dæmið alltsaman. Þetta var frábær kona. Henni verður sárt saknað. Hún er ástæðan fyrir nýju týpunum okkar í gelinu líka. Það er líka tileinkað henni.“

Þetta breytir ýmsu hvað varðar íslenskan handbolta?
„Eins og Óli Stef sagði við okkur fyrir leik þá erum við að byggja ákveðinn farveg fyrir framtíðina. Hann vill að strákarnir sem hætta á næstu árum skilji eftir sig einhverja hefð. Hún er að byrja núna með því að ná í tvær medalíur í röð. Þetta er frábær árangur.  Bara bestu liðin gera það.“

Er von á nýju geli eftir þetta?
„Það eru allar líkur á því,“ sagði Bjöggi og hló.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29