31.01.2010 / 17:30

Snorri Steinn: Þetta sýnir að silfrið var engin tilviljun

Snorri Steinn: Þetta sýnir að silfrið var engin tilviljun

Snorri Steinn Guðjónsson var brosmildur eins og aðrir áðan. Snorri átti gott mót, hann skoraði fjögur mörk í dag og bronsaði sig svo vel upp eftir leikinn. „Mér líður stórkostlega, það er gríðarlega sterkt að enda þetta á medalíu,“ sagði Snorri.

„Við höfum verið að berjast fyrir þessu síðan í október. Þá settum við okkur markmið, reyndar að vinna þetta mót, en úr því sem komið var er þetta auðvitað gríðarlega sætt. Bronsmedalía á sterkasta móti í veröldinni er eitthvað sem við getum verið virkilega stoltir af.“

Heldur betur, og tvö verðlaun á tveimur mótum í röð.
„Já, þetta segir bara að Ólympíuleikarnir voru engin tilviljun. Það var okkar markmið. Íslensk handboltasaga hefur ekki verið svona, hann hefur verið góður árangur og svo getur liðið ekkert á næsta móti. Við vildum bara breyta því. Góð lið ná ekki bara einum árangri, þau ná góðum árangri oft. Það vildum við. Það var markmiðið allan tímann og nú er þessi gríðarlega vinna sem allir hafa lagt á sig að skila sér.“

Hvernig var að gíra sig upp í leikinn?
„Það var mjög auðvelt. Að sjálfsögðu. Auðvitað voru vonbrigði að tapa í gær en við töpuðum fyrir betra liðið. Munurinn á þriðja og fjórða sæti er gríðarlegur. Að lenda í fjórða sæti er nánast eins og að lenda í tíunda sæti, ekki það að ég sé að gera lítið úr þessu. En að ná medalíu breytir bara öllu og við erum bara stoltir af því,“ sagði Snorri Steinn.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29