Það var yndislegt að taka viðtöl við strákana eftir leikinn. Faðmlög, tár, sviti, tilfinningarússíbani og taumlaus gleði. Ásgeir Örn segir að þetta sé einfalt, liði er bara drullu gott!
„Mér líður mjög vel, eiginlega fáránlega vel. Þetta er stórkostleg tilfinning.“
„Við komum brjálaðir inn í leikinn og það var kannski svolítið erfitt að halda þetta út. Við hleyptum þeim kannski full langt inn í þetta en það skiptir ekki máli, við unnum! Það var drullu stressandi að spila þessar síðustu mínútur þegar þeir voru við það að jafna, en það gilti bara að hafa trú á verkefninu og keyra á þetta. Þetta gekk upp.“
Hvað segir þetta um íslenska landsliðið að taka tvö verðlaun í röð á stórmótum sem við keppum á?
„Við erum bara orðnir drullu góðir, það er ekkert flóknara en það. Við eigum hiklaust að stefna hátt. Við erum að valta yfir mikið af sterkum þjóðum og ef við höldum því áfram þá endar þetta bara með því að við tökum fyrsta sætið,“ sagði Ásgeir Örn.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |