Ísland leikur sinn síðasta leik á EM í Austurríki í dag þegar liðið mætir Póllandi. Leikið er um bronsverðlaun og það er því mikið í húfi. Það lið sem svekkir sig minna á tapinu í undanúrslitum vinnur leikinn líklega. Bæði lið eru feikiöflug en Ísland vann Pólland síðast þegar við mættum þeim á stórmóti, í átta liða úrslitum ÓL í Peking.
Pólverjar unnu Dani örugglega á HM á síðasta ári í leik um bronsverðlaunin. Þeir hafa því reynslu af svona leikjum en strákarnir okkar hafa mikla reynslu líka.
Pólverjar lögðu Þýskaland í fyrsta leik á Evrópumótinu þegar Þjóðverjar lágu í valnum. Því næst gerðu þeir jafntefli við Slóvena, 30-30, og svo burstuðu þeir Spánverja 32-26. Í milliriðlinum vann liðið Tékka en þeir töpuðu síðan fyrir Frökkum í milliriðlinum með fimm mörkum.
Íslenska liðið fékk skell í gær gegn Frökkum en strákarnir eru allir staðráðnir í að vinna til verðlauna. Það er langur vegur frá því að vera í þriðja sæti og að vera í fjórða sæti en Ísland er þó alltaf öruggt á HM á næsta ári.
Leikurinn í dag hefst klukkan 14.00 á íslenskum tíma.
Gengi Pólverja á stórmótum:
2009: HM í Króatíu – BRONSVERÐLAUN
2008: Ólympíuleikarnir í Peking – 5. Sæti
2008: EM í Noregi – 7. Sæti
2007: HM í Þýskalandi – SILVURVERÐLAUN
2006: EM í Sviss – 10. Sæti
2005: HM Í Túnis – Ekki með
2004: Ólympíuleikarnir í Aþenu – Ekki með
2004: EM í Slóveníu – 16. Sæti
2003: HM i Portúgal – 10. Sæti
2002: EM í Svíþjóð – 15. Sæti
2001: HM í Frakklandi – Ekki með
2000: EM í Króatíu: Ekki með
2000: Ólympíuleikarnir í Sydney: Ekki með
1999: HM í Egyptalandi – Ekki með
1998: EM á Ítalíu – Ekki með
1997: HM í Japan – Ekki með
1996: Ólympíuleikarnir í Atlanta – Ekki með
1996: EM á Spáni – Ekki með
1995: HM á Íslandi – Ekki með
1994: EM í Portúgal – Ekki með
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |