30.01.2010 / 20:24

Róbert: Leiðinlegt að svona hafi farið

Róbert: Leiðinlegt að svona hafi farið

Róbert Gunnarsson var í strangri gæslu allan leikinn. Engu líkara en að hann væri afbrotamaður með frönsku lögregluna við öllu viðbúna. Róbert skoraði eitt mark úr eina skotinu sem hann tók í leiknum en hann segir að liðið hafi gert of mörg mistök í seinni hálfleiknum.

„Við komum vel undirbúnir inn í leikinn. Það var búið að leggja þetta vel fyrir okkur. Það er ekki hægt að segja að þjálfarinn hafi brugðist okkur. Í fyrri hálfleik gekk planið okkar ágætlega upp en í seinni hálfleik köstum við þessu bara frá okkur. Það er leiðinlegt að svona hafi farið.“

„Það er erfitt að stoppa liðið þegar við erum að gera svona mörg mistök. Við vorum alltof margir sem brugðumst við dag. Því fór sem fór.“

„Að gíra sig upp fyrir leikinn á morgun er næsta verkefni og við tökumst bara á við það. Það þýðir ekkert að hætta, við gerum engum greiða í að mæta með hausinn í gólfið í leik um medalíu. Við þurfum því bara að rífa okkur upp,“ sagði Róbert.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29