Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að engin ástæða sé til að ætla annað en að liðið rífi sig upp fyrir leikinn á morgun um bronsið. Liðið hafi áður lent í mótlæti á mótinu, eftir jafnteflið gegn Austurríki, en svo rifið sig upp. Við spjölluðum við Guðmund um leikinn, um hvað fór úrskeiðis, af hverju Aron byrjaði ekki seinni hálfleikinn sem margir hafa velt fyrir sér og hvað þjálfarinn var ánægður með í leiknum.
Þú sagðir fyrir leik að það væri frumskilyrði að liðið spilaði vel til að við gætum unnið leikinn.
„Já, en það var bara ekki þannig. Ef við tökum fyrri hálfleikinn fyrst þá er sorglegt að við skulum ekki vera með betri stöðu. Við erum að afhenda þeim boltann svona fjórum til fimm sinnum þar sem við erum að reyna línusendingu þar sem þeir hirða boltann, komast í hraðaupphlaup og mark.“
„Í stöðunni einum fleiri töpum við því 2-0, að minnsta kosti einu sinni. Við fáum á okkur nokkur ódýr mörk úr hornum. Þetta eru má segja lykilatriði gagnvart því af hverju við erum ekki yfir í hálfleik eða með jafna stöðu. Í sjálfum sér er ég ánægður með sóknarleikinn í fyrri hálfleik. Hann er að ganga eins og við ætluðum okkur. Við vorum búnir að plana að sækja á þá eins og við gerðum.“
„Síðari hálfleikur byrjar mjög illa. Við fáum á okkur átta mörk á móti þremur á einhverjum tólf mínútum og þaðan af sigla þeir bara fram úr. Þá var á brattann að sækja og þó svo að við höfum reynt ýmislegt þá dugði það bara ekki til.“
Fannst þér menn óþarflega fljótir að setja hausinn í bringuna í byrjun seinni hálfleiks?
„Já, ég veit það ekki. Ég get ekki alveg skýrt það. Mér fannst við byrja óvenju dauft einhvernvegin. Það er ólíkt okkur. Það eru bara ýmsir þættir sem ráða því. Það voru vonbrigði. Þetta hélt svo bara áfram og við gerðum þeim lífið mjög þægilegt. Við vorum alltaf að rétta þeim boltann. Það er það sem maður er hvað svekktastur fyrir. Ef við náðum í vörnina þá héldum við bara vel í þá.“
Aron Pálmarsson skoraði fjögur síðustu mörk Ísland í fyrri hálfleik en byrjaði á bekknum í þeim síðari. Hér er ástæða þess: „Vegna þess að þetta er bara svona. Um daginn létum við hann byrja í seinni hálfleik og það gekk ekki. Nú hugsuðum við bara að við látum hann koma inn. Þetta er svo löng keppni og maður er alltaf að hugsa um að spara líka. Hugsunin var sú að hann myndi koma inn eftir einhverjar sex til sjö mínútur. Það er svo auðvelt að segja eitthvað eftir á, það veit enginn hvað gerist og ómögulegt að velta sér upp úr því. Ég treysti bara þeim mönnum sem eru inn á og Arnór kom upp í síðari hálfleik með fína hluti. En pælingin er að við erum alltaf að leita leiða til að dreifa álaginu og fá menn ferska inn.“
En að lenda undir á móti svona maskínu eins og Frökkum, fimm eða sex mörkum er mjög erfitt.
„Já það er mjög erfitt. Ég ætla nú ekki að fara að væla yfir dómurunum en mér fannst ansi mikil virðing borin fyrir Frökkunum. Tvisvar sinnum í fyrri hálfleik sjáum við að hvað hefðum við fengið annað en tvær mínútur ef við hefðum farið í Narcisse eins og hann fór í Ásgeir? Þetta eru svona hlutir sem mér finnst þeir sleppa helvíti billega frá. Svo eru ruðningsdómar sem eru bara leikaraskapur þegar þeir henda sér afturábak. Mér fannst halla aðeins á okkur en án þess að kenna því um fannst mér of mikil virðing borin fyrir þeim. Þeir dæmdu ekki ruðning hinu megin, þetta gerði þetta enn erfiðara.“
Önnur svona vitur eftir á spurning, Karabatic var frábær, hefði kannski átt að ganga betur út á móti í hann?
„Við bara erum búnir að fara yfir það hundrað sinnum hvernig við ætlum að gera þetta. Það er bara ekki hlaupið að því að stöðva þetta. Það er bara svoleiðis. Þetta er eins og olíuprammi sem er kominn á fulla ferð.“
„Ef við hugsum aðeins um varnarleikinn þá fannst mér hann halda en það sem hélt ekki voru hlaupin til baka og hraðaupphlaupin. Það var fyrst og fremst það sem drap okkur. Þessar línusendingar sem heppnuðust ekki eða tæknifeilar voru bara of margir og það gengur ekkert gegn Frökkum.“
Þeir lokuðu reyndar ansi vel á okkur á línunni
„Já þeir gerðu það. Við vorum að reyna of mikið af línusendingum í hæpnum stöðum.“
Nú er þitt hlutverk að byggja upp kollinn á mönnum fyrir morgundaginn. Þú hefur verið í þessari stöðu áður, í Svíþjóð 2002. Hvernig berðu þetta saman núna við það?
„Mér finnst við betur undirbúnir og mér finnst við sterkari liðsheild heldur en þá. Það lið var frábært, ég er ekkert að gera lítið úr því. Ég held bara að við séum betri núna og ég er sannfærður um það. Ég er sannfærður um að við komum grimmir í þetta, þannig förum við í þetta. Við förum í leikinn til að vinna hann, brons er brons. Það er gríðarlegur munur á þriðja og fjórða sæti og við ætlum okkur sigur."
Við höfum lent í mótlæti áður í þessu móti og rifið okkur upp, er einhver ástæða til að halda annað en að það sama gerist aftur núna?
„Nei ég hef enga ástæðu til að ætla annað. Við þurfum bara að fara yfir þetta og einbeita okkur svo að andstæðingnum sem við mætum. Þetta eru tvö frábær lið og við ætlum bara að berjast um bronsið.“
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |