Ólafur Stefánsson fyrirliði liðsins var ósáttastur með sjálfan sig í dag. Hann tók tapið mikið til sín en hann sýndi góða takta líka drengurinn. Óli segir að liðið hefði þurft að fá meira frá honum en nú sé það hlutverk liðsins að gíra sig upp fyrir annan stórleik strax á morgun.
„Þetta eru mikil vonbrigði og sem fyrirliði og reynslumesti maður liðsins er ég mjög ósáttur með minn leik. Það er erfitt, sérstaklega núna, þegar maður er með svona gott lið með sér að ná ekki sínu besta fram. Auðvitað spiluðum við á móti sterkri vörn sem þekkir mig vel og allt það en það hefði þurft að koma meira fram mér í dag.“
„Svo eru fleiri þættir í þessu. Þeir fá að keyra of mikið á okkur og við erum að fá of mikið í bakið. Við vorum óöruggir í sendingum og svona. Það voru svona óvæntir hlutir í þessu sem gerðu það að verkum að svona fór.“
En við vorum vel inni í leiknum í hálfleik og hefðum jafnvel átt að vera í betri stöðu þá.
„Svo byrjum við illa í seinni hálfleik og þeir fá sjálfstraust og detta í gang á meðan við dettum niður. Þetta er svipuð kúrfa og var í Peking í úrslitaleiknum. Því fór sem fór en á móti er enn bronsmedalía í pottinum og maður hefur svona 20 tíma til að gíra sig upp í það, og það verður bara að gerast.“
Það er ekkert létt að gíra sig upp en það er okkar hlutverk og við sjáum bara til á morgun hvernig til tekst,“ sagði Ólafur.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |