Ingimundur Ingimundarson var eins og strákarnir hundfúll með tapið. Eðlilega, en við blaðamenn erum virkilega ánægðir með strákana. Það er ekki öllum gefið að bjóða sig fram í viðtöl eftir svona leiki en þeir gerðu það allir án þess að hika. Diddi sagði að sjálfstraustið hafi farið í liðinu í seinni hálfleik en hann ætlar sér á verðlaunapall.
„Ég veit varla hvað ég á að segja. Það hrundi einhvernvegin allt hjá okkur. Allt hrundi. Einna helst var Aron flottur en í seinni hálfleik hrynur bara allt. Vörn og sókn, við gerum allt of mikið af mistökum og fáum hrúgu af hraðaupphlaupum á okkur í staðinn. Við missum sjálfstraust á báðum endum vallarins og þá gerist þetta svona, þegar maður er að spila á móti svona frábæru liði.“
Frakkarnir hreinlega refsuðu okkur fyrir öll mistök og kláruðu þetta bara í byrjun seinni hálfleiks.
„Já það er rétt. Þeir eru ótrúlega segir í að refsa mönnum fyrir svona hluti, þeir nýttu sér það vel í dag.“
Hvernig verður að gíra sig upp fyrir leikinn á morgun?
„Nú horfum við bara fram á veginn. Við erum ennþá í möguleika á að ná í medalíu og það er stórt mál. Eftir sturtu hugsar maður bara um næsta leik. Það er enn brons í boði. Brons er alltaf brons. Við erum ekkert hættir þó svo að við náum ekki gullinu núna, við tökum það sem í boði er,“ sagði Diddi.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |