Ísland tapaði sínum fyrsta leik á EM í dag, fyrir Ólympíu- og Heimsmeisturum Frakka. Strákarnir geta borðið höfuðið hátt, þeir spila um bronsið á morgun, gáfu sig alla í leikinn og voru á pari við Frakkana í 50 mínútur af 60. Það dugði ekki til og nú er bara að gleyma leiknum, gíra sig upp og bronsa sig í gang á morgun.
Þjóðarstoltið skein langar leiðir þegar þjóðsöngurinn var sunginn og strákarnir voru klárir í verkefnið. Strákarnir byrja í vörn og fyrsta sókn Frakka var löng og endaði með því að Björgvin varði frábærlega úr dauðafæri. Fyrstu sókn Íslands lauk með því að Omeyer varði frá Arnóri. Fyrsta markið kom eftir fjórar mínútur, það skoraði Guðjón úr hraðaupphlaupi.
Jafnt var framan af. Frakkar komust í 3-5 en strákarnir jöfnuðu í 5-5. Sókn okkar manna gekk vel en Omeyer var auðvitað stundum fyrir. Hreint óþolandi á stundum hvað maðurinn er góður. Eftir fimmtán mínútur leiddu Frakkar 6-7 og komust svo í þriggja marka forystu, 6-9.
Björgvin var algjörlega frábær og hélt Frökkunum í skefjum. Magnaður. Það gekk hinsvegar illa að jafna leikinn. Strákarnir misstu boltann nokkrum sinnum í sókninni eftir 22 mínútur var staðan 11-12. Þá jöfnuðu strákarnir metin, fimm mínútum fyrir hálfleikinn með frábæru marki hjá Aroni. Ég dáist að þessum dreng. Þvílíkur leikmaður. Hvað gerði hann næst? Kom okkur yfir með frábæru gegnumbroti eftir markvörslu Bjögga.
Frakkarnir komust þó aftur yfir fyrir hálfleikinn, fyrst einu, svo tveimur og loks þremur. Ekkert gekk upp hjá íslenska liðinu sem var yfir 13-12 en var svo undir 13-16 á tveimur mínútum. Hver annar en Aron skoraði þá enn eitt glæsimarkið og minnkaði muninn í tvö mörk 14-16 sem voru hálfleikstölur.
Síðustu sjö mínútur hálfleiksins voru reyndar einvígi Arons og Karabatic. Báðir skoruðu fjögur mörk á þessum tíma en enginn annar leikmaður skoraði.
Ísland skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks en þá komu fjögur frá Frökkunum í röð. Það var sama hvað það var, það gekk allt upp hjá þeim. Fráköstin duttu til þeirra og þeir komust sex mörkum yfir. Á sjö mínútum voru þeir komnir með þessa forystu, staðan 17-23.
Frakkar komust einfaldlega í gírinn og þá stoppar þá ekkert, það er alveg klárt. Þeir gengu hreinlega frá strákunum okkar og juku forskotið jafnt og þétt.
Strákarnir okkar gáfust aldrei upp. Þeir börðust, hungraðir í að vinna Frakka og spila um gullið. En því miður voru þeir einfaldlega fremri í dag. Ef Frakkar ná sínum leik vinna þeir yfirleitt alltaf.
Þegar fimmtán mínútur voru búnar af seinni hálfleik voru Frakkar sex mörkum yfir. Arnór var frábær á þessum kafla, skoraði þrjú mörk og fiskaði víti. Munurinn var minnstur fimm mörk en ekki tókst að ná honum niður í fjögur. Það hefði verið gaman að sjá ef það hefði tekist en í staðinn gáfu Frakkar aftur í og komust átta mörkum yfir þegar tíu mínútur lifðu leiks.
Strákarnir drifu hvern annan áfram og lögðu allt í leikinn en allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir tapið var leikurinn engu að síður góður hjá íslenska liðinu. Frakkarnir sýndu ógnvænlegan styrk sinn og ég held að þeir muni vinna úrslitaleikinn örugglega líka.
Björgvin var frábær í markinu, Aron var maður leiksins og hann sýndi að hann verður með betri leikmönnum heims í framtíðinni. Hrikalega flottur. Arnór spilaði mjög vel á löngum köflum og Snorri nýti öll skot sín í leiknum.
Stuðningsmenn Íslands í leiknum voru fjölmargir og þeir létu vel í sér heyra lengst af. Í það minnsta 200 Íslendingar voru á leiknum og þeir mættu vel skrúðugir og hressir í höllina.Íslendingar voru fleiri en Frakkar í salnum og var gaman að sjá fullt af íslendingum á pöllunum.
Ísland-Frakkland 28-36 (14-16)
Mörk Íslands (skot): Aron Pálmarsson 6 (9), Snorri Steinn Guðjónsson 5/2 (5), Guðjón Valur Sigurðsson 5 (9), Arnór Atlason 5 (10), Alexander Petersson 3 (6), Ólafur Stefánsson 2 (8), Róbert Gunnarsson 1 (1), Vignir Svavarsson 1 (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/1 (52) 33%, Hreiðar Levý Guðmundsson 0 (1) 0%.
Hraðaupphlaup: 5 (Guðjón 3, Snorri, Alexander)
Fiskuð víti: 2 (Guðjón, Róbert)
Utan vallar: 8 (Arnór 2, Ingimundur 2, Róbert 4)
Gangur leiksins: 1-0, 3-3, 5-5, 6-9, 13-12, 14-16. 15-16, 16-20, 17-24, 20-27, 23-31, 27-35, 28-36.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |