30.01.2010 / 03:57

Guðmundur: Vitum hverju við eigum von á - Ísland mætir Frökkum í dag

Guðmundur: Vitum hverju við eigum von á - Ísland mætir Frökkum í dag

Strákarnir okkar horfa upp á erfiðasta leik sinn síðan í úrslitum á Ólympíuleikunum í dag. Mótherjinn er sá sami og þá, Frakkar. Þeir eru handhafar Ólympíutitilsins, en við unnum samt silfur, auk þess sem þeir eru Heimsmeistarar. Ekkert lið hefur náð þessum tveimur titlum og Evrópumeistaratitilinum á sama tíma. Það er markmið Frakka.

En hvað um þá. Það eru strákarnir okkar sem við erum að fylgjast með. Það var gaman að tala við þá í gær, þeir sögðu allir að það hefði verið frábært að vinna Noreg og komast í undanúrslitin, en þeir ætluðu sér meira. Það er einhver glampi í augunum á þeim.

„Við þekkjum Frakkana vel og við vitum hverjum við eigum von á,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari. „Við þurfum bara að finna réttu lausnirnar til að brjóta vörnina þeirra á bak aftur og svo þurfum við að spila góðan varnarleik líka. Við erum með ýmis ráð í þessu,“ sagði Guðmundur sem var alveg sama hverjum hann mætti í undanúrslitunum.

„Mér leist bara ágætlega á að mæta þeim þegar sú staða kom upp. Þeir eru andstæðingur sem við getum unnið eins og alla aðra,“ sagði Guðmundur sem vill ekki tala um hefnd eða neitt slíkt. „Nei ekkert sérstaklega. Það er bara að vinna leikinn, það er það seina sem við hugsum um,“ sagði þjálfarinn.

Fjórum sinnum, ekki þrisvar, hefur Ísland komist í undanúrslit á stórmóti, núna, á ÓL 2008 og 1992 og á HM 2002 í Svíþjóð. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa leikið á þremur síðustu mótunum. 1992 tapaði Ísland fyrir jú, Frökkum, í leik um bronsið. 2002 tapaði Ísland fyrir Dönum.

Þrjú lið eru taplaus á mótinu, Ísland er eitt þeirra. Hin eru Frakkland og Pólland. Frakkar unnu Tékka naumlega 21-20 í fyrsta leik, gerðu svo jafntefli við Spán, unnu Ungverja og svo Þjóðverja með tveimur mörkum. Þá rústuðu þeir Slóvenum eftir að hafa verið undir í hálfleik og síðan unnu þeir Pólverja sem voru þegar komnir áfram í undanúrslitin.

Ég sé á þetta svona: Ef við ætlum okkur að verða Evrópumeistarar þurfum við hvort sem er að vinna Frakka. Það er alveg eins gott að gera það í undanúrslitunum og í úrslitaleiknum.

Áfram Ísland!

Gengi Frakka á stórmótum:
2009: HM í Króatíu – GULLVERÐLAUN
2008: Ólympíuleikarnir í Peking – GULLVERÐLAUN
2008: EM í Noregi – BRONSVERÐLAUN
2007: HM í Þýskalandi - 4. sæti
2006: EM í Sviss – GULLVERÐLAUN
2005: HM Í Túnis – BRONSVERÐLAUN
2004: Ólympíuleikarnir í Aþenu – 5. sæti
2004: EM í Slóveníu – 6. sæti
2003: HM i Portúgal – BRONSVERÐLAUN
2002: EM í Svíþjóð – 6. sæti
2001: HM í Frakklandi – GULLVERÐLAUN
2000: EM í Króatíu: 6. sæti
2000: Ólympíuleikarnir í Sydney: 4. sæti
1999: HM í Egyptalandi – 6. sæti
1998: EM á Ítalíu – 7. sæti
1997: HM í Japan – BRONSVERÐLAUN
1996: Ólympíuleikarnir í Atlanta – 4. sæti
1996: EM á Spáni – 7. sæti
1995: HM á Íslandi – GULLVERÐLAUN
1994: EM í Portúgal – 6 sæti

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29