Strákarnir tóku æfingu sem varði í 90 mínútur í gær. Við ákváðum að horfa á alla æfinguna, eins og við gerum reyndar alltaf, en skrifa niður hvað strákarnir eru að gera og gefa ykkur því innsýn í hvernig æfingarnar fara fram. Hér er handrit að æfingunni hjá strákunum.
14.22: Strákarnir mæta í höllina, klárir á æfinguna. Róbert og Sturla eru fyrstir inn.
14.31: Róbert, Sturla og Snorri byrjaðir að leika sér með bolta. Snorri er í marki og er mun betri úti á vellinum. Ver þó nokkrum sinnum vel.
14.36: Björgvin og Alexander leika sér með fótbolta. Alexander er alltaf í marki í fótboltanum en Björgvin úti. Gott ef það er ekki betra þannig í fótboltanum.
14.38: Allir leikmenn komnir inn á að hreyfa sig og undirbúa sig fyrir æfinguna.
14.40: Guðmundur tekur leikmenn í hóp og ræðir við þá um æfinguna og hvað hann vill út úr henni.
14.42: Leikmenn hita sig upp, skokka enda á milli ýmist með bolta eða ekki.
14.46: Leikmenn teygja og gera sig klára í fótboltann. Létt yfir mönnum.
14.48: Fótboltinn byrjaður. Ungir vs. Gamlir.
15.00: Fótboltanum lokið, gamlir unnu 1-0 með skallamarki frá Robba. Staðan er þar með 3-3 í leikjum hjá liðunum.
15.01: Tveir og tveir saman, kasta á milli á ýmsa vegu.
15.06: Markmennirnir standa í mörkunum, leikmenn raða sér í einfalda röð og skjóta á þá. Ein umferð uppi, önnur niðri og svo framvegis. Leikmenn raða sér svo í sínar stöður og halda áfram að skjóta þaðan.
15.10: Tveir og tveir saman æfa hraðaupphlaup, senda á milli og ljúka með skoti. Hlaupa yfir völlinn og svo aftur í hina áttina.
15.15: Byrjað að æfa taktík. Varnarmenn í vestum, Guðmundur úti á velli að stýra „leiknum“. Leikmenn keyra kerfi sem á að nota í leiknum gegn Frökkum, Guðmundur stoppar á milli og útskýrir. Þetta er aðal hluti æfingarinnar.
15.59: Æfingu lokið. Menn fá sér vatn og skokka aðeins og hreyfa sig. Næsta æfing byrjar svo hjá öðru liði í kjölfarið.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |