Aron Pálmarsson fékk sér sushi með Vigni Svavarssyni eftir sigurinn á Noregi í gær. Ég ræddi við Aron um klæðnað Vignis, stemninguna í hópnum og samherja hans í Kiel, Daniel Narcisse og Thierry Omeyer sem eru leikmenn Frakka. Báðir eru magnaðir handboltamenn. „Menn voru ágætlega hátt uppi í gær en við erum komnir niður á jörðina,“ sagði Aron.
„Ég datt í sushi-ið með Vigga. Ég hef nú farið inn á nokkuð marga svona staði en þetta var einn sá flottasti. Þarna voru allir í jakkafötum og svona líka. Ég reyndar náði að drusla mér í gallabuxur og svona en Viggi var bara í Kempa buxunum og hlaupaskóm. Hann var flottur strákurinn,“ sagði Aron og brosti.
Aron spilar með þeim Daniel Narcisse og Thierry Omeyer hjá Kiel. Sá síðarnefndi er besti markmaður heims og Narcisse er stórkostlegur leikmaður. Ég spurði Aron út í þessa stráka.
„Omeyer hefur fullt af veikleikum. Markmenn eru ekkert svona æðislegir eins og allir halda,“ sagði Aron og glotti til Björgvins sem stóð álengdar. „En Omeyer er besti markmaður í heimi. Hann er alveg ótrúlegur þegar hann er í stuði. Jújú, hann hefur einhverja veikleika en það má kannski ekki pæla of mikið í honum. Maður á frekar að einbeita sér að sjálfum sér,“ sagði Aron sem viðurkenndi þó að sér þætti ekki leiðinlegt að skora hjá honum.
„Nei, ég hata það ekkert. Ég viðurkenni það alveg. Ég hef reyndar aldrei spilað á móti honum í leik en ég æfði auðvitað með honum,“ sagði Aron um Omeyer áður en við ræddum um Narcisse.
„Hann er alveg ágætur í handbolta. Versta við þetta er að hann er á bekknum hjá þeim. Þegar maður er búinn að kljást við einherja sterka gaura þarna inn á kemur hann af bekknum. Hann er fáránlega sterkur og naut að vexti. Hann er í heimsklassa. Það eru forréttindi að spila með honum.“
Ég ræddi svo við Aron um það að vera kominn með þessum strákum í undanúrslit á EM.
„Maður fann það í gær að ég hélt að við myndum allir missa okkur úr gleði. En það er ekki þannig stemning í hópnum. Menn vilja lengra. Menn eru sáttir en ekki saddir. Það er bara eitt sem kemur til greina, svo einfalt er það.“
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |