29.01.2010 / 13:51

Og í matinn í dag er...

Og í matinn í dag er...

Strákarnir okkar dvelja á hóteli í Vín nálægt höllinni sem þeir spila í. Eins og gengur og gerist eru menn missáttir með aðstæður, sumum finnst rúmin of lítil, öðrum maturinn vondur. Ég leit á diskinn hjá Sverre og Ingimundi og hef séð girnilegri mat. Eins og sjá má á myndunum er þetta það sem strákarnir borða, áður en þeir funda og fara svo á æfingu.

Sverre var með kjúkling og pasta, klassískt, en Ingimundur hrísgrjón og eitthvað gums. Ég fékk lítið bros á myndina sem segir margt um þessa máltið. Sem betur fer fá strákarnir stundum leyfi til að kíkja út að borða eins og eftir sigurinn gegn Noregi. Þeir hafa þó alltaf greiðan aðgang að ávöxtum og grænmeti eins og þeir geta í sig látið.

 

 

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29