29.01.2010 / 13:57

Björgvin um hefð fyrir leiki: Setur myndböndin inn á völl með Eminem í eyrunum

Björgvin um hefð fyrir leiki: Setur myndböndin inn á völl með Eminem í eyrunum

Björgvin Páll Gústavsson kemur alltaf inn á völlinn einum og hálfum tíma fyrir leik, með iPod í eyrunum og tekur sér stöðu í báðum mörkunum. Ég ræddi við Björgvin um þessa hefð hjá honum sem hann hefur gert lengi. Björgvin er með sérstaka tónlist í eyrunum og hann sagði mér líka frá því hvernig markmenn horfa miklu meira á myndbönd en aðrir leikmenn í undirbúningi fyrir leiki.

„Þetta er orðið að hefð hjá mér. Ég geri þetta til að ná einbeitingunni í gang. Ég fer aðeins yfir leikinn í huganum og svo einstaka leikmenn. Ég skoða upp stöður sem geta komið upp í leiknum. Ég glápi auðvitað á myndbönd á hverjum degi með liðinu á tveimur fundum og svo tek ég tvo eða þrjá tíma aukalega sjálfur. Ég er í rauninni að koma með myndböndin inn á völlinn. Ég set þetta upp þannig að ég sjái leikinn fyrir mér áður en hann byrjar."

Undirbúið þið markmenn ykkur svona mikið aukalega?
"Já, við erum að horfa á meiri myndbönd en aðrir. Við horfum á með liðinu og skoðum svo hvernig andstæðingurinn er að skjóta. Sumir leikmenn gera þetta þó líka. Við þurfum að stúdera andstæðinginn hrikalega vel."

Ertu með einhverja sérstaka tónlist í eyrunum?
"Já ég er alltaf með sömu tónlistina fyrir leiki. Það er svona pepptónlist sem er búin að fylgja mér lengi. Frá því ég var lítill nánast hef ég hlustað mikið á Lose Yourself með Eminem. Mér finnst það mikið stemningaslag. Ég er þó ekki mikill rappari í mér. En þetta lag sprengir upp stemninguna fyrir mig. Ég er líka með persónulegt  myndband til að peppa mig enn betur í gang. Það er því nóg af hlutum sem ég er búinn að troða inn í hausinn á mér sem ég er háður fyrir leikinn."

Hvernig nálgumst við leikinn gegn Frökkum?
"Þetta er eiginlega bara þriðja mótið okkar á stuttum tíma, þannig komum við inn í þetta. Við fórum inn í gegnum riðilinn sem var fyrsta mótið, milliriðillinn var annað og svo eru undanúrslit og þar eftir það þriðja. Nú þurfum við bara að núllstilla okkur og gera okkur klára. Við munum liggja yfir þeim í allan dag og á morgun til að koma klárir í slaginn. Þeir eru með frábært lið og spila virkilega vel. Eitt besta lið í heimi, ef ekki það besta, fyrir utan okkur. Ef þeir verða Evrópumeistarar eru þeir það ásamt því að vera Ólympíumeistarar og Heimsmeistarar allt á sama tíma. Það væri fínt að skemma það bara,“ sagði Björgvin.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29