29.01.2010 / 13:41

Ólafur Guðmundsson: Við ætlum bara að vinna!

Ólafur Guðmundsson: Við ætlum bara að vinna!

Ólafur Guðmundsson lék allan leikinn gegn Frökkum á undirbúningsmóti á þeirra heimavelli rétt fyrir EM. Þann leik er þó ekki að marka. Frakkar léku þar á sínu sterkasta liði og unnu örugglega en Ísland nýtti tækifærið og notaði allan leikmannahópinn og prófaði sig áfram með nýja hluti. Ólafur segir að það sé ekkert hægt að horfa á þann leik þegar möguleikar Íslands í leiknum eru skoðaðir.

 
„Frakkar spilaði með alla sína bestu leikmenn í þeim leik. Við vorum aðeins að prófa, breyta til og skoða nýja hluti. Við skoðum eflaust þann leik til að sjá hvað þeir eru að leggja upp með, við getum eflaust lært eitthvað af því. Við horfum frekar á leikina sem við höfum spilað hérna en í þessum æfingaleikjum. Það er ekki sama tempó og annað,“ sagði Ólafur sem hefur séð Frakkana spila ágætlega á mótinu.

„Ég hef séð einhverja leiki og þeir eru alltaf rosalega sterkir. Þeir eru með góðan og breiðan hóp og vörnin er algjör klassi og markvarslan er frábær. Eina sem vantar kannski hjá þeim er jafn flottur leikmaður hægra megin og þeir eru með vinstra megin en annars eru þeir hrikalega flottir. Það verður mikil áskorun að spila við þá.“

Hvernig munum við nálgast leikinn?
„Við ætlum bara að vinna! En það er síðan undir Gumma komið hvernig við leggjum leikinn upp. Við erum á leiðinni á fund núna til að skoða þá á vídjói og svona. Við erum að fara að leggjast vel yfir þá og ég efast ekki um að við munum taka nokkra vídjófundi. Við munum hafa lausnir við þessu. Menn hafa eflaust ekkert sofið í nótt við að klippa og við finnum lausnir bæði á vörninni þeirra og sókninni.“

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29