Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var stoltur á svip þegar við ræddum við hann eftir leik. Guðmundur er búinn að ná stórkostlegum árangri með liðið og er þetta enn ein rósin í hnappagat hans. Guðmundur viðurkennir að hafa misst sig aðeins í gleðinni en hann er fljótur niður á jörðina aftur enda stutt í næsta leik. Hann sagði brosandi að liðið fengi ekki alveg frí í allt kvöld en líklega slappa strákarnir vel af og njóta kvöldsins. Og þeir eiga það svo sannarlega skilið.
Misstir þú þig eins og við blaðamenn eftir leikinn?
"Jú aðeins í lokin. En nú er maður búinn að jafna sig og nú hefst strax undirbúningur fyrir næsta leik. Þetta er ekkert búið. Langt því frá. Við eigum tvo hörkuleiki eftir. Norðmennirnir eru alveg svakalega erfiðir og það er ekkert auðvelt að vinna þá. Þó að þeir séu ekki með rétthenta skyttu eru þeir með svo góða skotmenn og svo stórkostlega línumenn. Ég var alveg klár á því að þetta yrði svona."
Var það ákveðin taktík að sleppa bara línumönnunum og leyfa þeim að skjóta?
Já algjörlega, það var ekkert annað að gera. Í flestum tilfellum vorum við skynsamir. Við vorum búnir að ákveða þetta. Það er betra að fá á sig mark en mark og tvær mínútur. Línan hjá dómurunum var svo ansi skrýtin. Róbert fékk á sig ólöglega blokkeringu þegar hann stóð kyrr! Tvisvar sinnum meira að segja. Það er eitthvað nýtt ef það er ólögleg blokkering. En línan var svipuð fyrir bæði lið. Það er ekkert grín að eiga við þetta, ég vona að við fáum betri línu frá dómurunum í undanúrslitunum."
Karakterinn í liðinu var frábær, eftir að hafa lent undir reif það sig upp og kláraði leikinn.
„Þetta eru æruleysi sem við höfum gengið í gegnum áður og reynsla í liðinu sem sýndi sig. Strákarnir eru búnir að standa sig stórkostlega og það eru þeir sem klára þetta. Ég held að það hafi hjálpað okkur gríðarlega undir lokin að setja Óla á miðjuna, það losaði um ákveðna hnúta. Arnór spilaði stórbrotinn leik, það er ekki hægt annað en að minnast á það. Allt liðið á hrós skilið samt sem áður. Allir leikmennirnir skiluðu sínu."
Smelltu á fréttir til að lesa fleiri viðtöl og umsögn um leikinn.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |