Snorri Steinn Guðjónsson stýrði liðinu að venju eins og herforingi af miðjunni. Hann er staðráðinn í að ná lengra, að spila um brons dugar ekkert. Mér fannst það bæði á honum og strákunum að þeir eru með gullglampa í augunum, þeir ætla sér og vilja meira.
„Mér fannst við vera með yfirhöndina allan leikinn. Við vissum það fyrir leikinn að Norðmenn væru með frábært lið og að þeir ættu enn möguleika á að komast áfram. Þetta var bara eins og leikur í átta liða úrslitunum og þannig lögðum við hann upp. Við vorum að spila vel allsstaðar.“
„Það sem við lögðum upp með gekk auðvitað bara mjög vel, við spiluðum frábæran sóknarleik og vörnin var þannig séð fín. Leikurinn var hraður og það var mikið tempó. Við skoruðum líka mikið úr hraðaupphlaupum og heilt yfir erum við bara mjög ánægðir. Núna ætlum við að koma okkur niður á jörðina og fara svo að einbeita okkur að næsta verkefni.“
Hvað ætlið þið að gera í kvöld?
„Ég ætla að fá mér einn bjór kannski til að róa mig. En við þekkjum þetta alveg, við njótum þessa í kvöld án þess að fara fram úr okkur. Það er ekkert að því að njóta þess að vera kominn í undanúrslit. Liðið er mjög hungrað. Við vorum í úrslitum á Ólympíuleikunum og af hverju ættum við ekki að komast þangað aftur og kannski enn lengra?“
„Maður fer ekkert í undanúrslit með neitt annað markmið en að vinna leikinn. Við erum heimsklassalið. Partur af okkar undirbúningi var að sýna að við getum verið góðir tvo leiki í röð en ekki taka íslenska vinkilinn á þetta og skíta á okkur eftir góðan árangur. Við höfum sýnt þetta og góð lið eru ekkert södd.“
Smelltu á fréttir til að lesa fleiri viðtöl og umsögn um leikinn.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |