28.01.2010 / 19:21

Sverre sem er fæddur í Noregi: Blendnar tilfinningar og mikil ánægja

Sverre sem er fæddur í Noregi: Blendnar tilfinningar og mikil ánægja

Sverre Jakobsson er fæddur í Noregi og hann bjó í fimm ár þar í landi. Mamma hans er norsk og því voru tilfinningar hans blendnar. „Ég sagði í gríni fyrir leikinn að það skipti ekki máli hvernig færi, ég yrði alltaf ánægður, ég gæti alltaf fagnað. En auðvitað er það ekki rétt. Ég ber sterkar taugar til Noregs og það er erfitt að velja á milli fyrir mig en auðvitað er ég í skýjunum,“ sagði Sverre.

„Þetta var algjör snilld í einu orði sagt. Við vissum nákvæmlega að leikurinn yrði eins og hann þróaðist. Við börðumst allan tímann en auðvitað komu kaflar þar sem við náðum ekki alveg að binda vörnina saman. En þetta var hraður leikur og fullt af góðum sóknum. Það er gaman að segjast vera kominn í undanúrslit á tveimur stórmótum í röð. Við erum að sína og sanna hvers við erum megnugir og við erum með ansi gott lið.“

Karakterinn í liðinu var frábær. Þið lendið undir í lokin en komið til baka og klárið leikinn. Hvað segir þetta um liðið?
„Þetta sýnir að við höfðum trú á þessu allan tímann. Undir lokin vorum við mjög passívir af því við vildum ekki fá okkur tvær mínútur. Þeir sendu til dæmis inn á línuna og við létum þá frekar fara en að fá á okkur brottrekstra sem hefði skemmt sóknarleikinn. Síðustu tíu vorum við of passívir en þetta tókst og við unnum leikinn sem var markmiðið. Við erum komnir áfram og nú er bara að halda áfram."

Eru einhver verðlaun í kvöld?
„Ég held að ég fari á Kentucky og fái mér svona 350 kjúklingavængi. Svo sjáum við hvað ég fæ í eftirrétt,“ sagði Sverre og hló við. „Nú leggjumst við bara upp í rúm og skoðum hvaða lið fara með okkur. Svo hefst undirbúningur á fullu á morgun, þetta er langt frá því að vera búið.“

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29