28.01.2010 / 19:09

Vignir: Ekki alveg að ná því sem er að gerast

Vignir: Ekki alveg að ná því sem er að gerast

Vignir Svavarsson var frábær í leiknum í kvöld. Ingimundur fékk á sig tvær brottvísanir snemma leiks og eftir að hafa komið af bekknum var Vignir frábær. Línumenn Norðmanna eru með þeim bestu í heimi og verkefnið ekki auðvelt. Vignir var hress eftir leikinn eins og allir en hann var varla að átta sig á því hvað var að gerast þegar ég talaði við hann.

Vignir, hvernig er tilfinningin að hafa unnið Norðmenn og komast í undanúrslitin?
"Ég veit það ekki alveg, ég kannski kveiki á þessu í kvöld. Ég næ þessu ekki alveg, það sem er í kollinum á mér er að við verðum að vinna næsta leik líka.“

„Það gekk ekki hjá okkur að slíta þá frá okkur. Í seinni hálfleik þá lentum við í smá vandræðum en mér fannst við samt eiginlega vera með þetta allan tímann. Þetta fór aldrei í neitt panikk hjá okkur. Við vorum ákveðnir í því síðustu mínúturnar að láta þetta ekki enda með jafntefli eins og svo oft áður. Við héldum haus og mér fannst við skila þessu mjög vel. Við spiluðum vel í vörn og sókn.“

Lærðuð þið kannski af reynslunni eftir leikina gegn Serbum og Austurríki og nýttuð ykkur það í dag?
„Já eflaust. Maður er alltaf að læra og ég það sat í okkur að vinna ekki þá leiki. En við gerðum þetta rétt í kvöld að minnsta kosti. Það gekk nokkuð vel að gera það sem Guðmundur lagði upp með, við áttum reyndar í erfiðleikum með línumennina. Dómararnir dæmdu sóknarbrot á ótrúlegustu hluti á bæði lið og við reyndum að nýta okkur það.“

Erum við ekki búnir að sanna núna að silfrið var engin tilviljun, að við erum með þeirra bestu?
„Jú engin spurning. En við vissum þetta allan tímann, að við erum góðir í handbolta,“ sagði Vignir.
Með því að fara inn í fréttir má lesa fleiri viðtöl og umsögn um leikinn.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29