28.01.2010 / 18:44

Arnór: Það er ömurlegt að lenda í fjórða sæti og við ætlum okkur lengra

Arnór: Það er ömurlegt að lenda í fjórða sæti og við ætlum okkur lengra

Arnór Atlason var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í kvöld. Arnór skoraði tíu flott mörk úr aðeins tólf skotum og bar sóknarleikinn uppi á köflum. Hann átti auk þess fjölda stoðsendinga. Arnór hefur átt frábært Evrópumót og sýndi það enn og aftur hvers megnugur hann er. Hann sagði að Guðmundur hefði ákveðið að stíla inn á að Arnór skyti mikið og það gekk fullkomlega upp.

„Mér leið mjög vel á vellinum í kvöld. Það byrjaði vel, fyrsta skotið fór inn og við spiluðum ákveðið leikkerfi sem gekk út á að ég ætti að skjóta mikið. Þeir lögðu eðlilega mikla áherslu á að stöðva Óla, eðlilega, og þá skapaðist meira pláss fyrir mig. Ég hitti í dag og þetta bara bara ótrúlega einfalt,“ sagði Arnór sem afþakkaði Adidas úrið sem Óli fékk fyrir að vera valinn maður leiksins af mótshöldurum en Ólafur vildi gefa Arnóri verðlaunin.

Segðu mér hvernig þú upplifðir lokakaflann þegar við vorum fjórum mörkum yfir en þeir bara gefast ekki upp?
Þetta var svona eins og gegn Serbunum og Austurríki. Við erum yfir allan leikinn en þeir ná alltaf að komast að okkur af því við vorum oft einum færri. En það er ótrúlega ljúft að ná að landa þessu. Nú erum við búnir að sýna að Ólympíuleikarnir voru engin tilviljun.“

„Það er ömurlegt að lenda í fjórða sæti og við erum ekkert búnir, það er klárt. Við vitum hvar þetta endar ef við förum í gegnum mótið taplausir. Við höldum bara áfram okkar striki.“
Inni í fréttir má svo lesa umsögn um leikinn og fleiri viðtöl við strákana.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29