Aron Pálmarsson hefur komið sterkur inn á EM. Hann er ennþá nítján ára gamall en hann skoraði tvö mörk úr tveimur skotum í kvöld og var flottur. Það segir mikið um strákinn að hann spilaði mikið undir lokin á þessum gríðarlega mikilvæga leik. En Aron hefur sýnt að hann hefur getuna og karakterinn í það.
Hvernig var að vera í liðinu og hjálpa því í undanúrslitin?
"Það var bara geðveikt! Algjörlega geðveikt. Að fá að upplifa þetta í svona leik sem er nánast eins og átta liða úrslit er bara frábært. Við höfum farið í alla leiki sem úrslitaleiki hingað til og þetta er minn stærsti leikur á ferlinum hingað til. Þeir stækka alltaf þegar leikjunum fjölgar. Og mun svo auðvitað stækka meira um helgina,“ sagði Aron.
Ætlið þið að halda þjóðinni í heljargreipum í öllum leikjunum eins og í dag? Spennan var ótrúleg í leiknum.
"Já er það ekki bara skemmtilegra,“ sagði Aron og glotti. „Ég sá bara að heima á Íslandi var fólk ekkert sátt með Rússaleikinn sem við rústuðum,“ gantaðist Aron. „En svona er sportið og það er þetta sem gerir þetta skemmtilegt."
Hvernig gekk annars það upp sem Guðmundur lagði upp með?
"Það gekk í rauninni mjög vel. Við fengum að vísu frekar mikið af tveimur mínútum í fyrri hálfleik en náðum að laga það í seinni hálfleik. Þeir voru aldrei langt undan en mér fannst við samt einhvernvegin með þetta allan tímann. Þó svo að við höfum lent undir fannst mér við vera með þetta. En þeir eru rosalega góðir en þetta er bara flott fyrir framhaldið hjá okkur,“ sagði Aron.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |