28.01.2010 / 18:13

Hreiðar og Ásgeir Örn í skýjunum: Yndislegt og æðislegt!

Hreiðar og Ásgeir Örn í skýjunum: Yndislegt og æðislegt!

„Þetta er ekkert búið fyrr en það er búið hjá íslenska liðinu! Þetta var yndislegt OG æðislegt. Þetta er annað stórmótið í röð í undanúrslitum og algjör snilld. Núna eru tveir sigurleikir eftir og þá verður þetta helvíti fallegt,“ sagði kampakátur Hreiðar Levý Guðmundsson markmaður sem varði vel í leiknum. „Þjóðin er örugglega ánægð með okkur og við erum alveg sáttir líka!“

Það gekk ekkert að komast frá þeim og klára leikinn, enda Norðmenn með eitt besta lið sem við höfum spilað við hérna.
"Það er rétt en þessir norðurlandaslagir eru oft svona. Sveiflukenndir mjög og þetta endar á einu eða tveimur mörkum öðru hvoru megin. Mér fannst dómararnir líka vera að reyna að gera þetta spennandi. Þegar við náðum forskoti fóru þeir að dæma ólöglegar blokkeringar og eitthvað skrýtið. En það skiptir engu máli, við unnum leikinn og við vælum ekkert yfir einhverjum dómum núna. Nú höldum við bara áfram og klárum þetta," sagði Hreiðar.

Ásgeir Örn Hallgrímsson:
„Tilfinningin er frábær, þetta er alveg yndislegt. Sérstaklega eftir frekar mikið bras á okkur á mótinu. Nú byggjum við bara á því sem við höfum verið að gera í síðustu fjórum leikjum.“

Norska liðið er greinilega feikiöflugt og það var bara ekkert hægt að ganga frá þeim.
„Já maður var pínulítið hræddur því þetta var eins og gegn Serbum og Austurríki, við komumst í forystu en fengum svo tvær mínútur og þeir ná að jafna. Þetta var svolítið keimlíkt því. En við náðum að vinna og erum bara í skýjunum með það.“

Voruð þið orðnir hræddir undir lokin um að þeir myndu taka þetta eftir að þeir komust yfir?
„Já aðeins en eftir að við komumst yfir aftur var ég orðinn nokkuð rólegur bara,“ sagði Ásgeir.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29