Ég er rennandi blautur af svita eftir að hafa faðmað landsliðsmennina eftir leikinn. Strákarnir komu skælbrosandi allir sem einn í viðtöl og fögnuðu vel. Eðlilega! Ég talaði við Guðjón Val Sigurðsson sem skoraði fjögur mörk í dag. „Tilfinningin var góð. Það er frábært að ná að klára þetta verkefni. Ég vil hrósa norska liðinu, þeir eru með hörkulið og hafa bætt sig mikið á síðustu árum. Þetta var mjög erfiður leikur,“ sagði Guðjón.
Það gekk virkilega erfiðlega að slíta frá sér Norðmennina í dag.
"Já, en ef allt gengur upp þá vinnur maður alla leiki með 20 mörkum. Það er þessi faktor í þessu, hitt liðið. Þeir eru líka helvíti góðir í handbolta. En ég er ánægður með að halda þessum standard út í gegn, sóknarleikurinn var frábær. Seinni bylgjan oft á tíðum nokkuð góð en það er fullt af mistökum líka sem við gerum í dag. En heilt yfir er ég gríðarlega ánægður með leikinn og stoltur af liðinu."
Karakterinn sem liðið sýndi í dag var frábær, það lendir undir í lokin en gerir þrjú mörk í röð og afgreiðir leikinn.
"Það var mjög mikilvægt að jafna leikinn strax og svo vinnum við boltann aftur. Þeir skiptu um vörn og voru að reyna að trufla okkur og við erum kannski ekki alveg nógu skynsamir. Þeir gerður þetta vel en sem betur fer lögðum við sóknina bara aftur og þá var ekki að spyrja að leikslokum."
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |