Sverre Jakobsson batt vörn Íslands saman ásamt Ingimundi Ingimundarsyni í leiknum gegn Dönum. Sverre komst líka fram og skoraði mark sem ég fékk hann til að segja mér frá. „Þetta er markið sem sneri leiknum. Innst inni þakka allir strákarnir mér fyrir þetta mark sem breytti öllu,“ sagði Sverre léttur en hann kom Íslandi í 2-0 í leiknum.
Hvað voruð þið herbergisfélagarnir Ingimundur eiginlega að gera í nótt?
„Við vorum bara í sömu rútínunni. Kannski vorum við aðeins afslappaðri. Við lögðum þetta þannig upp að við eigum að vera að spila þannig vörn að ekkert á að detta í gegnum okkur. Þess vegna hefur kannski þessi leikgleði og sjálfstraust ekki verið til staðar. Við höfum kannski ekki tekið mistökunum nógu vel. Mistökin gerast og núna vorum við bara ekkert að pirra okkur á einu eða neinu. Við ákváðum líka að svara kallinu, margir hafa verið að hrauna aðeins yfir okkur eftir leikinn gegn Austurríki og okkur fannst þetta vera hinn fullkomni vettvangur til þess."
"Þá er líka bara mikið undir og þetta var skemmtilegur leikur og við bara fundum taktinn. Við ákváðum líka bara að einbeita okkur að vörninni og einbeita okkur að okkar verkefni. Við áttum bara svör við öllu. Við erum ansi stoltir af þessu. Þeir áttu aldrei möguleika. Ef við spilum svona vörn þá eigum við möguleika gegn öllum.
"Við náðum að halda kúlinu, það var mottóið mitt í þessum leik. Það var það sem ég öskraði á menn allan leikinn, að halda kúlinu. Ég veit ekkert hvað það þýðir. Þetta er ákveðið hvatningarorð held ég bara."
Og hvað er svo planið í kvöld?
"Ég er að fara að fá mér klúbbsamlokuna á hótelinu okkar. Ég sagði það fyrir leikinn að ég ætlaði að gera það ef við myndum vinna og ákvað því að gera það ekki í gær. Maturinn sem við fengum þá var ekkert spes en þetta var gulrótin fyrir þennan leik. Kannski dett ég í tvær,“ sagði Sverre og hló.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |