Strákarnir okkar lenda kl 16:30 á Reykjavíkurflugvelli eftir glæsilegan árangur í EM í Austurríki. En nú gefst aðdáendum þeirra tækifæri að hitta þá augliti til auglitis. Athöfn verður með strákunum í Laugardalshöll sem hefst kl.17.45 í dag.
Ólafur Stefánsson er ekkert á þeim buxunum að hætta að leika með íslenska landsliðinu. Óli var valinn í lið mótsins og sagði reyndar að það hlyti að hafa verið valið fyrir undanúrslitaleikina. Hann var ósáttur með sig í gær og í dag og viðurkenndi að það hafi ekki verið heillandi að halda áfram eftir tapið gegn Frökkum. En hann stoppar ekki hér. Hann segir líka að Alexander hafi átt „múv“ ársins í íþróttaheiminum.
Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með Guðmundi Guðmundssyni á mótinu. Þessi vinnuþjarkur hefur lagt nótt sem nýtan dag við að undirbúa liðið og ég get nánast fullyrt að enginn þjálfari lagði jafn mikið á sig og hann á þessu móti. Guðmundur er einn besti þjálfari heims í dag, það er bara þannig. Ég ræddi við Guðmund um líðan hans eftir mótið og ýmislegt fleira. Hann sagði mér líka frá ótrúlegu starfi Gunnars Magnússonar í gær.
Reynir Albert var með myndavélina á lofti allan leikinn gegn Pólverjum. Hann náði flottum myndum af strákunum okkar sem tóku bronsið í dag. Hér til hægri er myndband með myndunum undir lagi 200.000 Naglbíta og Lúðrasveitar Verkalýðsins. Endilega skoðið myndbandið og upplifið þennan frábæra leik aftur.
Sverre Jakobsson var sem fyrr burðarás í vörn Íslands í dag en í fyrri hálfleik sýndi hún einhverja bestu varnartakta sem sést hafa á handboltavellinum. Það var Peking-stemning í liðinu og Sverre minntist einmitt á það. Hann segir að langur vegur sé á milli þriðja og fjórða sætis og liðið sé stolt af árangrinum.
Margir leikmenn léku vel í leiknum gegn Pólverjum. Strákarnir eiga allir heiður skilinn fyrir frábært mót. Allir. Sama hversu mikið þeir spiluðu. En markvarsla Hreiðars var eiginlega til þess að þetta var hægt. Pólverjar voru með sjálfstraustið í botni og gátu jafnað leikinn þegar Hreiðar var mættur og átti öll svör við þeim. Hreiðar átti frábæran leik. Hann fann líka upp á nýju orði, „ruglfínt.“
„Ég ákvað að raka vonbrigðin í burtu eftir tapið og byrja daginn sem nýr maður,“ sagði Róbert Gunnarsson um skeggleysið en hann hafði skartað afar myndarlegu skeggi á mótinu til þessa. Róbert var frábær í leiknum eins og öllu mótinu. Algjörlega frábær. Robbi var á leiðinni í lyfjapróf en var annars hress.
Ísland hirti bronsið í dag. Strákarnir okkar börðust fyrir því. Heldur betur. Þessu ævintýralega móti er lokið með besta árangri Íslands á Evrópumóti. Strákarnir gerðu þetta fyrir þjóðina sem hefur stutt svo vel við bakið á þeim. Gleðin í leikslok var ólýsanlega skemmtileg. Hér er umsögn um leikinn, viðtöl eru á leiðinni við bronsverðlaunahafana.
Ísland leikur sinn síðasta leik á EM í Austurríki í dag þegar liðið mætir Póllandi. Leikið er um bronsverðlaun og það er því mikið í húfi. Það lið sem svekkir sig minna á tapinu í undanúrslitum vinnur leikinn líklega. Bæði lið eru feikiöflug en Ísland vann Pólland síðast þegar við mættum þeim á stórmóti, í átta liða úrslitum ÓL í Peking.
Andstæðingur Íslands í leiknum um bronsið á morgun er Pólland. Mikill vinskapur ríkir á milli þjóðanna en Pólverjar hafa á frábæru liði að skipa. Ísland vann Pólverja í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna 2008, 32-30. Pólverjar töpuðu nú rétt í þessu fyrir Króötum 24-21. Þeir unnu einmitt bronsverðlaunin á Heimsmeistaramótinu í Króatíu á síðasta ári. Leikurinn á morgun hefst klukkan 14.00 að íslenskum tíma.
Aron Pálmarsson var maður leiksins gegn Frökkunum. Þessi frábæri leikmaður sýndi glæsilega takta en hann var hundfúll eins og aðrir eftir leikinn. „Það skipti engu máli hvernig ég spilaði. Ég hefði frekar viljað sitja á bekknum allan leikinn og fara áfram,“ sagði Aron. Hann segir þó að nú sé komið nýtt markið, bronsverðlaun.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að engin ástæða sé til að ætla annað en að liðið rífi sig upp fyrir leikinn á morgun um bronsið. Liðið hafi áður lent í mótlæti á mótinu, eftir jafnteflið gegn Austurríki, en svo rifið sig upp. Við spjölluðum við Guðmund um leikinn, um hvað fór úrskeiðis, af hverju Aron byrjaði ekki seinni hálfleikinn sem margir hafa velt fyrir sér og hvað þjálfarinn var ánægður með í leiknum.
Ingimundur Ingimundarson var eins og strákarnir hundfúll með tapið. Eðlilega, en við blaðamenn erum virkilega ánægðir með strákana. Það er ekki öllum gefið að bjóða sig fram í viðtöl eftir svona leiki en þeir gerðu það allir án þess að hika. Diddi sagði að sjálfstraustið hafi farið í liðinu í seinni hálfleik en hann ætlar sér á verðlaunapall.
„Maður spilar aldrei betri en andstæðingurinn leyfir og við náðum ekki upp okkar besta leik í dag. Ég held að við getum allir verið sammála um það. Þeir unnu þetta kannski verðskuldað bara,“ sagði Sturla Ásgeirsson eftir leikinn. Sturla lék í nokkrar mínútur í dag en hann segir að strákarnir séu staðráðnir í að tryggja sér bronsið á morgun.
Ísland tapaði sínum fyrsta leik á EM í dag, fyrir Ólympíu- og Heimsmeisturum Frakka. Strákarnir geta borðið höfuðið hátt, þeir spila um bronsið á morgun, gáfu sig alla í leikinn og voru á pari við Frakkana í 50 mínútur af 60. Það dugði ekki til og nú er bara að gleyma leiknum, gíra sig upp og bronsa sig í gang á morgun.
Strákarnir okkar horfa upp á erfiðasta leik sinn síðan í úrslitum á Ólympíuleikunum í dag. Mótherjinn er sá sami og þá, Frakkar. Þeir eru handhafar Ólympíutitilsins, en við unnum samt silfur, auk þess sem þeir eru Heimsmeistarar. Ekkert lið hefur náð þessum tveimur titlum og Evrópumeistaratitilinum á sama tíma. Það er markmið Frakka.
Harðjaxlinn Sverre Jakobsson fékk olnboga Bjarte Myrhol í sig í leiknum gegn Noregi. Hann fékk sprungna vör og auk þess þurfti að sauma tvö spor í hnakkann á stráknum eftir átök í leiknum. Allir strákarnir okkar eru klárir í slaginn í dag, eitthvað er um lítilvæga pústra en ekkert sem kemur í veg fyrir að einhver sé ekki 100% prósent klár í slaginn. Það eru virkilega góðar fréttir.
Íslendingum er að fjölga hér í Vín. Mikil eftirspurn er eftir miðum og HSÍ vinnur baki brotnu við að útvega miða. Við hittum Íslendinga fyrir framan höllina í dag sem voru að reyna að kaupa sér miða. Þau þekktust ekki öll innbyrðis og höfðu keyrt í 15 og 17 tíma til að komast til Vínar. Þau keyptu miða á úrslitaleikinn á 200 Evrur (um 36. þúsund krónur) en sáu ekki eftir því. Erfiðara er að fá miða á undanúrslitaleikina.
Aron Pálmarsson fékk sér sushi með Vigni Svavarssyni eftir sigurinn á Noregi í gær. Ég ræddi við Aron um klæðnað Vignis, stemninguna í hópnum og samherja hans í Kiel, Daniel Narcisse og Thierry Omeyer sem eru leikmenn Frakka. Báðir eru magnaðir handboltamenn. „Menn voru ágætlega hátt uppi í gær en við erum komnir niður á jörðina,“ sagði Aron.
Vignir Svavarsson er vel hungraður í medalíu á EM. Vignir fór ekki á Ólympíuleikana en hann segir að eftir að Silver gelið kom frá Loga og Björgvini, gæti hann hugsað sér að byrja að framleiða svitalyktareyði til höfuðs því, undir nafninu Almost – Næstum því. Vignir var léttur þegar ég spjallaði við hann á hóteli strákanna í dag.
Björgvin Páll Gústavsson kemur alltaf inn á völlinn einum og hálfum tíma fyrir leik, með iPod í eyrunum og tekur sér stöðu í báðum mörkunum. Ég ræddi við Björgvin um þessa hefð hjá honum sem hann hefur gert lengi. Björgvin er með sérstaka tónlist í eyrunum og hann sagði mér líka frá því hvernig markmenn horfa miklu meira á myndbönd en aðrir leikmenn í undirbúningi fyrir leiki.
Strákarnir okkar dvelja á hóteli í Vín nálægt höllinni sem þeir spila í. Eins og gengur og gerist eru menn missáttir með aðstæður, sumum finnst rúmin of lítil, öðrum maturinn vondur. Ég leit á diskinn hjá Sverre og Ingimundi og hef séð girnilegri mat. Eins og sjá má á myndunum er þetta það sem strákarnir borða, áður en þeir funda og fara svo á æfingu.
Ólafur Guðmundsson lék allan leikinn gegn Frökkum á undirbúningsmóti á þeirra heimavelli rétt fyrir EM. Þann leik er þó ekki að marka. Frakkar léku þar á sínu sterkasta liði og unnu örugglega en Ísland nýtti tækifærið og notaði allan leikmannahópinn og prófaði sig áfram með nýja hluti. Ólafur segir að það sé ekkert hægt að horfa á þann leik þegar möguleikar Íslands í leiknum eru skoðaðir.
Ísland mætir sjálfum heimsmeisturum Frakka á laugardaginn í undanúrslitum Evrópumótsins. Þetta er ljóst eftir að riðlakeppnin kláraðist nú í kvöld. Þá er líka ljóst að Ísland er komið á HM í Svíþjóð þar sem þrjú efstu liðin komast þangað, en Frakkar eru þegar komnir þangað þar sem þeir eru heimsmeistarar. Undanúrslitaleikurinn gegn Frökkum hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma. Við eigum harma að hefna gegn Frökkum eftir að hafa tapað fyrir þeim í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum. Ísland lenti í öðrum sæti í sínum milliriðli á eftir Króötum sem unnu Dani 27-23 í kvöld og Frakkar í fyrsta sæti í sínum milliriðli eftir sigur á Pólverjum. Króatar og Pólverjar mætast því í hinum undanúrslitaleiknum fyrr á laugardaginn.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var stoltur á svip þegar við ræddum við hann eftir leik. Guðmundur er búinn að ná stórkostlegum árangri með liðið og er þetta enn ein rósin í hnappagat hans. Guðmundur viðurkennir að hafa misst sig aðeins í gleðinni en hann er fljótur niður á jörðina aftur enda stutt í næsta leik. Hann sagði brosandi að liðið fengi ekki alveg frí í allt kvöld en líklega slappa strákarnir vel af og njóta kvöldsins. Og þeir eiga það svo sannarlega skilið.
Sverre Jakobsson er fæddur í Noregi og hann bjó í fimm ár þar í landi. Mamma hans er norsk og því voru tilfinningar hans blendnar. „Ég sagði í gríni fyrir leikinn að það skipti ekki máli hvernig færi, ég yrði alltaf ánægður, ég gæti alltaf fagnað. En auðvitað er það ekki rétt. Ég ber sterkar taugar til Noregs og það er erfitt að velja á milli fyrir mig en auðvitað er ég í skýjunum,“ sagði Sverre.
Vignir Svavarsson var frábær í leiknum í kvöld. Ingimundur fékk á sig tvær brottvísanir snemma leiks og eftir að hafa komið af bekknum var Vignir frábær. Línumenn Norðmanna eru með þeim bestu í heimi og verkefnið ekki auðvelt. Vignir var hress eftir leikinn eins og allir en hann var varla að átta sig á því hvað var að gerast þegar ég talaði við hann.
Arnór Atlason var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í kvöld. Arnór skoraði tíu flott mörk úr aðeins tólf skotum og bar sóknarleikinn uppi á köflum. Hann átti auk þess fjölda stoðsendinga. Arnór hefur átt frábært Evrópumót og sýndi það enn og aftur hvers megnugur hann er. Hann sagði að Guðmundur hefði ákveðið að stíla inn á að Arnór skyti mikið og það gekk fullkomlega upp.
Aron Pálmarsson hefur komið sterkur inn á EM. Hann er ennþá nítján ára gamall en hann skoraði tvö mörk úr tveimur skotum í kvöld og var flottur. Það segir mikið um strákinn að hann spilaði mikið undir lokin á þessum gríðarlega mikilvæga leik. En Aron hefur sýnt að hann hefur getuna og karakterinn í það.
„Þetta er ekkert búið fyrr en það er búið hjá íslenska liðinu! Þetta var yndislegt OG æðislegt. Þetta er annað stórmótið í röð í undanúrslitum og algjör snilld. Núna eru tveir sigurleikir eftir og þá verður þetta helvíti fallegt,“ sagði kampakátur Hreiðar Levý Guðmundsson markmaður sem varði vel í leiknum. „Þjóðin er örugglega ánægð með okkur og við erum alveg sáttir líka!“
Ég er rennandi blautur af svita eftir að hafa faðmað landsliðsmennina eftir leikinn. Strákarnir komu skælbrosandi allir sem einn í viðtöl og fögnuðu vel. Eðlilega! Ég talaði við Guðjón Val Sigurðsson sem skoraði fjögur mörk í dag. „Tilfinningin var góð. Það er frábært að ná að klára þetta verkefni. Ég vil hrósa norska liðinu, þeir eru með hörkulið og hafa bætt sig mikið á síðustu árum. Þetta var mjög erfiður leikur,“ sagði Guðjón.
Strákarnir okkar og allt starfsfólk bar sorgarbönd í sigurleiknum gegn Noregi til að heiðra minningu systur Gunnars Magnússonar, aðstoðarþjálfara liðsins, sem lést í vikunni. Gunnar fór heim til Íslands en Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði að liðið hefði hugsað mikið til Gunnars og fjölskyldu í undairbúningnum fyrir leikinn. Guðjón Valur Sigurðsson segir að allt liðið hugsi til fjölskyldunnar.
Hvar á maður eiginlega að byrja? Strákarnir okkar eru svo óheyrilega flottir að það nær bara engri átt. Taplausir á EM, betra liðið í öllum leikjunum og á tveimur stórmótum í röð er liðið komið í undanúrslit. Ég tók fullt af viðtölum áðan og strákarnir eru í skýjunum, en um leið hungraðir. Þeir komu ekki hingað til að fara í undanúrslit, þeir ætla sér meira.
Norðmenn eru andstæðingar Íslands í dag. Leikurinn er úrslitaleikur um laust sæti í undanúrslitum á EM. Ef Ísland vinnur erum við í undanúrslitunum, það er ljóst. Eftir leik Króatíu og Danmerkur kæmi þá í ljós hvort að Ísland vinnur riðilinn eða ekki. Norðmenn geta aftur á móti enn komist áfram en þurfa að vinna okkur með fimm mörkum til þess. Þeir koma því brjálaðir til leiksins.
Óskar Bjarni Óskarsson er aðstoðarþjálfari Guðmundar Guðmundssonar hjá landsliðinu okkar. Óskar er virkilega duglegur og ákveðinn og eftir að hafa séð hann að störfum er ekki nokkur vafi á mikilvægi hans. Óskar er búinn að sinna mikilli vinnu hvað leikgreiningu varðar og hefur hann verið vakandi á ansi skrautlegum tímum í þeirri vinnu. Ég ræddi við Óskar um leikgreininguna, samstarfið við Guðmund og Norðmenn.
Ingimundur Ingimundarson, Diddi, minnir á að Norðmenn geta enn komist áfram á mótinu. Þeir þurfa að vinna okkur með fimm mörkum eða meira og treysta síðan á hagstæð úrslit í leik Danmerkur og Króatíu. Þeir koma því eflaust brjálaðir til leiks, með stoltið sært eftir tapið gegn Dönum í gær. Ingimundur er lítillega meiddur en er klár í slaginn eins og aðrir.
Hreiðar Leví Guðmundsson spilaði vel gegn Rússum í gær. Kappinn var einstaklega ferskur á hótelinu áðan en framundan er kortlagning á Norðmönnum og þeirra spilamennsku. Hreiðar segir að það skipti engu máli þó svo að Norðmenn hafi tapað fyrir Dönum í gær, þeir hefðu alltaf þurft að vinna okkur og geta enn komist áfram.
Við hittum strákana upp á hóteli áðan en það sást langar leiðir að þeir voru bæði fegnir að fá smá hvíld í dag og spenntir fyrir leiknum á morgun. Þeir fengu sér að borða eftir rústið gegn Rússunum í gær en liðið fékk frjálsar hendur með það. Einhverjir fóru út að borða, aðrir héldu sig heima við. Liðið fór á fund klukkan 12 og æfir svo seinna í dag. Í kvöld er blaðamönnum, aðstandendum leikmanna og starfsmönnum landsliðsins boðið í móttöku í sendiráði Íslands hér í Vín. Strákarnir verða ekki þar enda að undirbúa sig fyrir mikilvægasta leik mótsins til þessa. Þeir funda aftur í kvöld og svo í fyrramálið líka. Leikurinn er svo klukkan 15 á morgun.
Björgvin Páll Gústavsson var valinn maður leiksins gegn Rússum. Hann varði alls sextán skot og var með 41% markvörslu. Hann fékk fyrir vikið Mozartkúlur og gjöf frá Adidas. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Björgvin hlýtur heiðurinn og fær alltaf sömu verðlaun. „Snorri étur þetta allt,“ sagði Björgvin um fjallið af Mozartkúlunum sem er væntanlega í herberginu hans. Þær virðast þó fara vel í þá báða. Björgvin gaf svo öllum nærstöddum Mozartkúlu, þar á meðal Snorra, enda eflaust kominn með leið á þessu ljúffenga sælgæti.
Fyrirliðinn Ólafur Stefánsson var góður í leiknum í gær, hann skoraði góð mörk og sem fyrr var hann duglegur að opna fyrir liðsfélaga sína. Hann segir klárt mál að liðið stefni ótrautt á undanúrslitin en til þess þarf liðið að vinna Rússa á morgun. Liðið er klárt til að fara þangað segir Ólafur sem hrósar undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Rússum.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er ánægður með hvernig liðið er að spila á mótinu. Hann segir að leikskipulagið í dag hafi gengið fullkomlega upp og að strákarnir hafi í raun aldrei gefið Rússunum séns í leiknum. Óskar Bjarni aðstoðarlandsliðsþjálfari vakti í alla nótt við að klippa myndbönd fyrir leikinn gegn Rússum og liðið kom því vel undirbúið til leiks eins og alltaf.
Staða Íslands er þessi: Með sigri gegn Noregi er liðið komið í undanúrslit á Evrópumótinu. Jafntefli dugar íslenska lðinu líka. Það er ljóst eftir að Danir unnu Norðmenn á ævintýralegan hátt í Vín í kvöld. Norðmenn geta þó enn komist áfram, ef þeir vinna Ísland með fimm mörkum og Danir tapa fyrir Króötum. Ef Ísland tapar getur það samt komist áfram ef Króatar vinna Dani. Króatar spila líka úrslitaleik við Dani, sem er jákvætt fyrir Ísland. En auðvitað fara strákarnir í leikinn til að vinna hann og ekkert annað!
Ég ræddi við Ólaf Guðmundsson eftir leikinn en hann kom inn á þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Óli var flottur, var óragur við að skjóta og skoraði gott mark sem var vel fagnað á íslenska bekknum og hjá okkur íslensku blaðamönnunum. Óli er líka flottur karakter, einbeittur og ákveðinn. Það er ekki að sjá á honum að hann sé nítján ára gamall á sínu fyrsta stórmóti.
Alexander Petersson er eins og allir vita fæddur í Lettlandi en er Íslendingur í húð og hár. Þessi miklu snillingur ræðir við hvern sem er á íslensku og hann er ánægður með sigurinn gegn Rússum, sem er auðvitað skammt frá fæðingarstað hans. Hann var markahæsti leikmaður Íslands í leiknum áðan með sjö mörk ásamt Snorraog var virkilega flottur. Hann hefur í tvígang meiðst gegn Rússum á stórmótum og viðurkennir að hann var smeykur við meðferð þeirra í dag.
Aron Pálmarsson var enn og aftur flottur í dag, þessi ungi strákur spilar eins og hann sé með hundrað landsleiki plús undir beltinu. Aron skoraði tvö mörk, annað þeirra með stórkostlegu skoti langt fyrir utan punktalínu. Hann var að bíða eftir að sjá það í sjónvarpinu þegar ég ræddi við hann um sigurinn gegn Rússum sem hann sagði þó ekki auðveldasta landsleik sem hann hefur spilað.
Arnór Atlason átti fínan leik fyrir Íslands eins og strákarnir reyndar allir. Arnór skoraði tvö mörk en hann er ánægður með að mótið sé nú í raun Íslands að tapa. Strákarnir eru með þetta í sínum höndum og þurfa ekki að treysta á neinn annan en sjálfa sig. Það er auðvitað lang best. Það kom Arnóri á óvart hversu auðveldur leikurinn var.
Ísland átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Rússa af velli í dag í ójafnasta leik sem sést hefur á mótinu. Strákarnir hreinlega átu rússneska björninn með bestu lyst, lokatölur 30-38,
Rússar kláruðu sinn leik gegn Dönum klukkan 9 í gærkvöldi og spiluðu því aðeins 18 klukkutímum seinna. Inni í þeim tíma er allur undirbúningur leikmanna fyrir Íslandsleikinn með tilheyrandi fundum, líklega þrír matmálstímar (matur eftir leik, morgunmatur og hádegismatur fyrir leik) og síðan svefn. Ísland fékk þó fjórum tímum meira í þetta verkefni. Það munaði miklu í dag.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að liðið geti verið stolt af árangri sínum í mótinu. Liðið er enn taplaust og er í fínni stöðu í milliriðlinum sínum. Guðmundur sagði eftir leikinn í gær að Króatar væru með eitt af fjórum sterkustu liðum á mótinu en að undirbúningur fyrir leikinn gegn Rússum í dag hafi byrjað fyrir löngu síðan.
Ísland spilar sinn annan leik í milliriðlinum í dag klukkan 15 að íslenskum tíma, gegn Rússum. Þeir eru með virkilega sterkt lið en ég sá þá leika gegn Dönu í gær. Þeir byrjuðu þann leik vel og komust í 3-1 en misstu boltann nokkrum sinnum klaufalega. Markmaður þeirra var góður og þeir eru klókir í sókninni og grimmir í vörninni.
Guðjón Valur Sigurðsson segir stöðu strákanna góða í mótinu eftir jafnteflið við Króata. Framundan er leikur við Rússa en þeir mæta Dönum nú rétt á eftir. Guðjón minnir á að Ísland á innbyrðisviðureign gegn Dönum en hann var svekktur eftir leikinn eins og aðrir eftir að yfir lauk.
„Ég er eiginlega ekki sáttur með eitt stig. Ef maður lítur á þetta þannig að það sé erfitt að spila svona mikið einum færri eins og við gerðum í dag og þá sérstaklega í lokin."
Sverre Jakobsson, sá mikli öðlingur, fékk á sig þrjár brottvísanir í leiknum, allar vafasamar. Hann skilur ekki frekar en ég af hverju hann fékk þær. Sverre er samt sem áður jákvæður og staðráðinn í því að rúlla yfir Rússana á morgun. Þa hrósuðu Króatar strákunum í hástert eftir leikinn og voru virkilega ánægðir með eitt stig.
Ísland er með fjögur stig í milliriðlinum eftir jafntefli við Króatíu í dag. Ég er enn að róa taugarnar eftir þessa síðustu sókn Króata. Björgvin, takk fyrir að verja þetta! 26-26 lokatölur.
Eftir þetta er staða Íslands þannig að ef við vinnum báða leikina okkar erum við komnir í undanúrslit. Það er af því við eigum innbyrðisviðureign á Dani sem geta náð sama stigafjölda og Ísland með því að vinna alla sína leiki. Hægara sagt en gert samt sem áður!
Engar breytingar verða gerðar á leikmannahópi Íslands fyrir milliriðilinn en liðið leikur gegn Króatíu í dag klukkan 15. Allir leikmenn liðsins eru heilir og klárir í slaginn og undirbúningur hefur verið stífur fyrir landsliðsþjálfarann og hans teymi. Menn sofa oft lítið þegar svona stutt er á milli leikja en liðið virkaði einbeitt og klárt í slaginn þegar við hittum þá í gær. Við ræddum við Guðmund um undirbúning fyrir leikinn og lið Króata.
Andstæðingur Íslands í dag er Króatía, margföld verðlaunaþjóð sem er í efsta sæti í milliriðlinum okkar. Króatar hafa ekki enn tapað leik á mótinu en á heimavelli vann liðið sér inn silfurverðlaun á Heimsmeistaramótinu á síðasta ári.
Króatar unnu Noreg 25-23, svo Úkraínu 28-25 og loks Rússa 30-28 í æsispennandi leik þar sem liðið tryggði sér sigur á lokamínútunni. Eins og sjá má hér neðst hefur gengi Króata á stórmótum undanfarin 16 ár almennt verið gott og liðið unnið til átta verðlauna.
Það er alltaf hressandi að skoða tölfræði. Ég er reyndar ekki viss um hvað þeir sem taka tölfræðina hérna úti séu að spá oft á tíðum því þeir rugla ótrúlegustu hlutum saman. Það er samt gaman að skoða aðeins hvað strákarnir hafa verið að gera í leikjunum, hverjir hafa spilað hve lengi og annað slíkt. Guðjón Valur hefur hvílt í 12 sekúndur á mótinu og er hann markahæsti maður liðsins. Sverre er aftur á móti með bestu skotnýtinguna og kemur það engum á óvart.
Logi Geirsson hefur ekki spilað mikið með landsliðinu í keppninni en sem fyrr er andinn í kappanum til gríðarlegrar fyrirmyndar og hann bíður eftir því að fá að sýna sig og sanna. Við ræddum við Loga á landsliðsæfingunni áðan og í einlægu og hugljúfu spjalli ræddum við um öxlina, framtíðina, stemninguna í hópnum, gönguferðir á ströndinni og Króata.
Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur spilað vel með landsliðinu á mótinu og hann virtist vera í fantaformi á æfingunni í kvöld. Liðið tók sér góðan tíma í að stilla upp í þá vörn sem Króatar spila og æfðu vel leikaðferðir til að brjóta það á bak aftur. Sumir hafa haft á orði að Króatar hafi ekki verið jafn sannfærandi á mótinu og oft áður en Ásgeir varar við því að vanmeta liðið.
Við vorum að koma af æfingu íslenska landsliðsins í Vín en liðið er nú á leiðinni í mat. Það var einstaklega létt yfir strákunum og greinilegt er að stemningin í hópnum er mikil eftir frækinn sigur á Dönum. Eftir upphitun og ýmsar æfingar fór mikill tími í að æfa kerfi en Króatar, andstæðingar okkar á morgun, hafa verið kortlagðir í þaula. Við tókum nokkrar myndir á æfingunni og eins og myndböndin hér til hliðar sýna líka var létt yfir strákunum.
Ertu búinn að skrá þig í liðið? Í Blíðu og Stríðu er að safna í stuðningsmannalið landsliðsins og það eru engin takmörk á því hversu margir komast fyrir. Við hvetjum ykkur því til þess að skrá ykkur og sýna strákunum þannig stuðning hérna á siðunni uppi til hægri. Þeir hafa gaman af því að sjá kveðjurnar og finna fyrir stuðningnum.
Ísland hefur leik í milliriðli sínum á EM á morgun. Strákarnir borðuðu morgunmat á hótelinu í morgun og fóru svo með rútu til Vínar. Ferðin tók um tvo tíma. Þeir æfa svo klukkan 19 í kvöld að staðartíma, 18 að íslenskum tíma, og við munum kíkja á æfinguna og koma með fersk viðtöl á síðuna í kvöld. Smelltu á Lesa nánar til að skoða milliriðilinn okkar betur.
Um 100 Íslendingar voru á leiknum gegn Dönum í gærkvöldi. Þeir létu vel í sér heyra og yfirgnæfðu Danina á löngum köflum. Hér eru nokkrar myndir af stuðningsmönnunum frá leiknum, sem og í skemmtilegri stemningu eftir leikinn á Josefs Bar í Linz. Þá er einnig komið inn myndband þaðan úr stemningunni.
Sverre Jakobsson batt vörn Íslands saman ásamt Ingimundi Ingimundarsyni í leiknum gegn Dönum. Sverre komst líka fram og skoraði mark sem ég fékk hann til að segja mér frá. „Þetta er markið sem sneri leiknum. Innst inni þakka allir strákarnir mér fyrir þetta mark sem breytti öllu,“ sagði Sverre léttur en hann kom Íslandi í 2-0 í leiknum.
Björgvin Páll Gústavsson var valinn maður leiksins af EHF en hann átti frábæran leik gegn Dönum. Bjöggi varði 19 skot samkvæmt minni talningu. Tæplega 50 prósent markvarsla hjá stráknum. Bjöggi segir að honum hafi liðið vel í leiknum. „Mér leið rosalega vel í leiknum. Alveg ógeðslega vel. Við undirbjuggum okkur fáránlega vel. Við vorum með tvö jafntefli á bakinu sem við áttum ekki skilið. Við vorum að spila frábærlega í dag, alveg frá fyrstu mínútu. Þeir eiga aldrei séns í okkur.“
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði eftir sigurinn gegn Dönum að sér liði afskaplega vel. Ekki er það skrýtið. Það var létt yfir Guðmundi á blaðamannafundi eftir leikinn en Ulrik Wibek þjálfari Dana var ekki jafn hress. Ég ræddi við Guðmund eftir fundinn en hann segist aldrei hafa horft jafn mikið á myndbönd og fyrir þennan leik. Liðið kom enda frábærlega undirbúið til leiks. "Þetta er stórkostlegt. Það er mikilvægt að vinna réttu leikina,“ sagði Guðmundur og hló við.
Alexander Petersson var frábær í kvöld eins og allt liðið. En hvernig leið honum inni á vellinum? "Mér leið alveg frábærlega. Við vissum alveg að við myndum vinna þennan leik. Við sýndum hvað Ísland getur. Þetta var hið rétta íslenska landslið. Þessi vörn gekk ótrúlega vel. Núna er það bara að slappa aðeins af en við erum ekkert búnir að hugsa neitt lengra en það. Gummi er kannski byrjaður að hugsa lengra en það en við erum bara að fara að fá okkur kók og súkkulaði í verðlaun.“
Ég segi bara fyrst af öllu: JÉSSSSSSSSS!!!!!! Mikið var þetta óaðfinnanlega æðislegur sigur á Dönum. Frændum okkar sem margir hreinlega þola ekki. Hrokinn í þeim gerir þennan sigur enn sætari fyrir vikið. Það var ekki leiðinlegt að vera í Linz í kvöld, ég er búinn að vera að taka viðtöl við strákana og það er hreint út sagt yndislegt að sjá gleðina í þeim og öllum íslendingunum hér.
Strákarnir eru núna inni á vellinum fyrir framan mig að skokka sig niður, hlæjandi og brosandi. Lífið er yndislegt í kvöld og á morgun hefst alvaran aftur. Strákarnir spila strax á mánudaginn og svo aftur á þriðjudaginn.
Besta kveðjan!
Nú hafa um þúsund manns sent landsliðsstrákunum kveðju í gegnum ibs.is og þær eru hver annarri skemmtilegri. Dómnefnd Icelandair hefur valið þá allra bestu af mörgum frábærum og fyrstu verðlaun hlýtur Rebekka Skarphéðinsdóttir, fyrir þessa yndislegu kveðju.
Hún hlýtur flugmiða fyrir tvo til eins af áfangastöðum Icelandair í verðlaun.
Fleiri verðlaun verða svo veitt á næstu dögum, svo það er um að gera að senda strákunum skemmtilegar kveðjur!
Ísland er komið áfram í milliriðilinn á EM og er þar með fyrsta markmiði liðsins náð. Þetta varð ljóst eftir að Austurríki vann Serba í geðsjúkri stemningu hér í Linz. Serbar verða þar með alltaf neðstir í riðlinum. Nú er bara spurning hvort Ísland komist með eitt, tvö eða þrjú stig upp í milliriðilinn, það kemur í ljós eftir leikinn sem hefst klukkan 19.15. Í Blíðu og Stríðu óskar svo Degi Sigurðssyni innilega til hamingju með frábæran árangur hans manna á EM.
Um 100 Íslendingar munu sjá leik Íslands og Danmerkur í kvöld hér í Linz í Tips-Arena. Nokkur fjöldi þeirra ætlar að mæta snemma og sjá leik Austurríkis og Serba. Þeir ætla að styðja Austurríki til sigurs og vonast þannig eftir að Austurríkismenn styðji Ísland gegn Dönum. Yfir 1000 Danir verða á leiknum og því veitir ekki af smá aðstoð. Austurríkismenn voru á bandi Íslands gegn Serbíu og vonandi verður sami háttur á í kvöld. Uppselt er á leikina.
Sverre Jakobsson myndar tvíeykið með Ingimundi Ingimundarsyni í hjarta íslensku varnarinnar. Ég talaði við þá báða og þeir voru báðir ákveðnir í að bæta upp fyrir að Ísland fékk á sig 37 mörk gegn Austurríki í síðasta leik. Strákarnir ætla sér að stöðva Danina í úrslitaleik um efsta sæti riðilsins.
Danir eru komnir áfram en Ísland getur enn setið eftir, ef Serbía og Austurríki gera 38-38 jafntefli, eða með hærri mörkum. Með sigri vinnur Ísland riðilinn og fer í milliriðil með þrjú stig.
Strákarnir okkar eru komnir með bakið upp við vegg. Ég held að við viljum bara hafa þá þannig. Það er einn leikur eftir í riðlakeppninni og það yrði hreint fáránlegt ef Ísland er ekki komið áfram fyrir þann leik. Ísland er komið áfram nema Austurríki og Serbía gera jafntefli og skori 37 mark á lið í því jafntefli, eða fleiri mörk.
Strákarnir okkar hafa fengið yfir 1000 kveðjur frá ykkur, frábæru stuðningsmenn. Ég veit að strákarnir kíkja reglulega á síðuna og finna svo sannarlega fyrir stuðningnum. Haldið því áfram að senda kveðjur!
Í kvöld mun Pétur Jóhann Sigfússon svo aðstoða Audda við lýsingu á leiknum gegn Dönum sem hægt er að horfa á hér á síðunni meðan á leiknum stendur.
Við kíktum upp á hótel til strákanna áðan og fengum að ræða við þá í rólegheitunum. Við blaðamenn erum í skýjunum yfir þessu fyrirkomulagi, við getum rætt við strákanna án þess að vera að trufla þá mikið og þeir geta haft sína hentisemi eftir æfingar í stað þess að lenda í gini blaðamanna með diktafóna og myndavélar á lofti.
Jöfnunarmark Austurríkis gegn Íslandi í gær var með hreint ævintýralegum ólíkindum. Rétt eins og allar 50 síðustu sekúndurnar í leiknum. Reynir Albert náði frábærum myndum af markinu þrátt fyrir að vera bæði með lélegustu myndavélina og lélegustu linsuna af öllum ljósmyndurum í kringum völlinn. Það er auðvitað notkunin á græjunum sem skiptir máli! Með trega ákváðum við að setja myndirnar hér inn, það er bara ekki annað hægt. Hér er sagan af síðustu fjórtán sekúndum leiksins gegn Austurríki:
Strákarnir okkar gista á fjórðu hæð Marriott hótelsins hér í Linz. Það er athyglisvert um að lítast á ganginum, en hann er fullur af skóm fyrir utan hurðarnar. Ástæðan fyrir því? Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur svarið við því. „Það er bara lyktin, það væri ekki líft inni í herbergjunum þeirra ef skórnir væru ekki frammi,“ sagði Guðmundur. Róbert Gunnarsson tók undir það en ég get staðfest að lyktin af skónum náði ekki inn í herbergið þeirra.
Arnór Atlason var valinn besti maður leiksins en hann var frábær í leiknum. Skoraði níu góð mörk og tók oft á skarið þegar öll sund virtust lokuð. "Ég veit ekki hvað ég á að segja. Við gerðum allt vitlaust sem við gátum gert. Ég fæ tvö mörk yfir mig í lokin, við vorum kannski of passívir að reyna ekki að fá á okkur tvær mínútur. Við köstum boltanum í burtu og dómararnir stoppa tímann fyrir þá en ekki okkur undir lokin."
Það var erfitt að taka viðtöl við strákana eftir leikinn. Eftir svona atburð skynjar maður að menn langar eðlilega bara beint heim á hótel að hugsa um leikinn og fara svo að sofa.
Snorri Steinn sagðist hreinlega ekki vita hvað gerðist þessa síðustu mínútur. „Þær eru hræðilegar núna úr því að við töpuðum þessu,“ en rétt eins og gegn Serbíu fannst strákunum þeir hreinlega hafa tapað leiknum.
„Við vorum bara með þetta í okkar höndum. Gaui klikkar á færi undir lokin, hann var óheppinn og þetta datt ekki fyrir hann. Við hefðum klárað leikinn með því að skora þar og síðasta sóknin er bara eins og hún var. Ég veit ekki hvað þeir dæmdu á Óla eða hvort að það hafi verið rétt eða ekki.
Fyrst góðan fréttir til að róa taugarnar: Annaðhvort jafnteflið mun á endanum í raun ekki skipta neinu máli. Ísland getur enn farið með þrjú stig inn í milliriðilinn. Með sigri á Dönum skiptir ekki máli hvernig Serbía-Austurríki fer. Ísland fer þá áfram með þrjú stig. Svo skipta leikirnir sem Serbía á eftir máli en ef Austurríki vinnur ekki Serbíu í lokaleiknum kemst Ísland áfram.
Reyndar gæti Ísland komist áfram líka á því að ef Danir vinna Serba núna, og þeir eru 7-3 yfir eftir 10 mínútur, þá eru annaðhvort Serbía og Austurríki eftir. Nema þá að Ísland tapi fyrir Dönum með meiri mun en Austurríki (fjögur mörk) eða þá með meiri mun en Serbía, tapi það í kvöld.
Ísland leikur í rauðum búningum í kvöld gegn heimamönnum í Austurríki sem leika í hvítum búningum. Hefð er fyrir því að skipta svona um búninga og því spilar Ísland í bláu gegn Dönum á laugardag. Áhorfendur eru þegar farnir að koma sér fyrir í höllinni, nú þegar rúmur klukkutími er í leik. Þeir eru byrjaðir að hrópa og kalla en leikmenn eru að hefja upphitun fyrir leikinn. Uppselt er á leikinn og því verða um 5500 manns í stúkunni, minnihluti á bandi Íslands en það verða eflaust um 50 manns. Myndin sýnir útsýnið úr blaðamannastúkunni þar sem við sitjum nú. ÁFRAM ÍSLAND!!!
Snorri Steinn Guðjónsson sáttur með hótellífið í Austurríki. Liðið hefur ekki mikinn frítíma og þarf að eyða ansi miklum tíma á hótelinu og þarf þar að finna sér eitthvað til að dunda við á milli funda, máltíða, æfinga, sjúkrameðferðar og leikja. Það gengur misvel.
"Hótellífið er eiginlega bara eins og alltaf og gengur og gerist. Þetta er fínt hótel og maturinn er ágætur. Annars er þetta bara fundur og æfing og svo les maður eða horfir á ræmu og hlustar á tónlist. Svo flakkar maður á milli herbergja og spjallar við strákana, það er góð stemning á ganginum,“ sagði Snorri.
Hann og Róbert Gunnarsson, herbergisfélagi hans, voru þó sammála um að það vantaði alveg styrktaraðila til að lána liðinu leikjatölvur og fleira slíkt til að dunda sér með. Auglýsist hér með eftir því, ekki viljum við að strákunum leiðist á stórmótunum.
Ísland mætir Austurríki í öðrum leik liðanna á EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 16.15 að íslenskum tíma, klukkutíma síðar hér í Austurríki. Dagur Sigurðsson þjálfar eins og allir vita landslið Austurríkis og við hittum hann á blaðamannafundi liðsins í gær. Dagur er einstaklega hress og mikill húmoristi. Hann er bjartsýnn fyrir leikinn í dag.
Seinni partinn í dag mætir Ísland liði Austurríkis á öðrum leikdegi á EM hér í Linz. Strákarnir eru allir heilir eftir leikinn gegn Serbum og æfinguna í gær. Leikurinn hefst klukkan 16. 15 að íslenskum tíma. Ég sá Austurríki spila við Dani og þeir eru með ágætt lið. Danirnir fannst mér reyndar ekki spila vel en heimamenn eru staðráðnir í að standa sig á heimavelli. Nánast uppselt er á leikinn.
Patrick Fölser leikmaður austurríska landsliðsins virtist ekkert allof bjartsýnn fyrir leikinn gegn Íslandi þegar við ræddum við hann um leikinn. Fölser er ágætasti leikmaður og hinn hressasti. Hann spilar með Düsseldorf í Þýskalandi og hefur spilað 168 landsleiki. „Íslenska liðið hefur verið að spila mjög vel. Þeir hafa verið að spila mjög vel. Við sáum leikina gegn Þjóðverjum og heyrðum af hinum leikjunum. Liðið er frábært. Það varð í öðru sæti á Ólympíuleikunum og við vitum hversu góðir þeir eru en við verðum að finna leiðir til að vinna þá."
Strákarnir okkar eru að klára æfingu hér í Tips-Arena í Linz. Við erum á staðnum og ég ræddi aðeins við Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóra HSÍ. Hann segir að allir leikmenn liðsins séu heilir og klárir í slaginn á morgun. Liðið tók góða æfingu og er nú á leið upp á hótel í mat. Í kvöld verður svo fundur um leikinn gegn Austurríki á morgun. Við tókum örfáar myndir á æfingunni sem sjá má hér í fréttinni.
Alexander Petersson er staðráðinn í því eins og strákarnir að mæta tvíefldur til leiks á morgun gegn Austurríki. Við tókum tal á honum á hóteli strákanna í dag.
„Við vorum mjög svekktir eftir leikinn gegn Serbíu tapa svona stigi. En það er aldrei gaman þegar maður lendir í þessu. Við vorum að hugsa „hvað var að gerast og hvernig gerðist þetta“ alveg til þrjú í nótt held ég. En maður verður bara að læra af þessu og sjá hvað fór úrskeiðis. Nú gleymum við þessu bara og hugsum um næsta leik. Þetta er bara búið,“ segir Alex sem líður vel á hótelinu.
Björgvin Páll Gústavsson markmaður er nýbúinn að fá sér glæsilegt húðflúr á hægri höndina. Við urðum að taka Bjögga tali um blekið sem skartar meðal annars íslenska fánanum eins og sjá má á myndunum. „Þetta er draumur sem hefur blundað í mér lengi. Þetta hefur verið lengi í bígerð. Það er falin skrift hérna og þar stendur CRETO sem þýðir "ég trúi" á latínu. Það lýsir mér bara vel. Ég trúi á Guð og á sjálfan mig og á handboltann og bara allt bara. Ef þú trúir ekki á sjálfan þig trúir enginn á þig,“ sagði Björgvin þegar ég bað hann um að lýsa flúrinu.
Norðlendingurinn Arnór Atlason minnir okkur á að við getum enn farið með fjögur stig upp í milliriðil á EM. Strákarnir voru að koma af fundi þegar við hittum þá uppi á hóteli í dag. Arnór segir stemninguna innan hópsins góða og það var létt yfir strákunum þegar við spjölluðum við þá. Eins og sjá má á myndinni af Arnóri láta strákarnir fara vel um sig á milli æfinga og funda og var stemningin heimilisleg og góð.
Evrópumótið í Austurríki fær svona hæfilega mikla umfjöllun hér í bæ. Við höfum ekki séð mótið auglýst mikið en þó var nánast uppselt á leik Austurríkis og Danmerkur og um 5000 manns mættu á leik Íslands og Serbíu í gær. Dagur Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, þjálfar landslið Austurríkis. Liðið gerði vel gegn Dönum í gær og verður gaman að sjá Dag mæta Íslandi á morgun. Við spjölluðum við Dag um mótið en myndbandsviðtal við hann um leikinn gegn Íslandi birtist hér á morgun.
Það vantaði ekki stemninguna hjá íslensku áhorfendunum sem eru hér í Linz að fylgjast með EM. Íslendingarnir voru yfir 50 talsins og létu vel í sér heyra. Alls voru 5000 manns í höllinni og fyrir utan ágætan hóp Serba virtist fólk almennt styðja Ísland. Reynir Albert var með myndavélina á lofti og fangaði stemninguna hjá fólkinu á leiknum.
Róbert Gunnarsson og Sverre Jakobsson voru báðir svekktir með jafnteflið, eins og auðvitað allir. Báðir fundu þó að sjálfsögðu ljósa punkta í leiknum. „Ég er svekktur. Það er voðalega lítið annað að segja. Við vorum auðvitað með leikinn í höndunum en glutrum honum frá okkur. Það var ekkert bara undi lokin heldur allan leikinn og það er auðvitað bara virkilega leiðinlegt að svona hafi farið."
Snorri Steinn steig upp að loknum venjulegum leiktíma og tók vítið sem Ísland fékk. Hann var augljóslega manna svekktastur eftir leikinn en fær virkilega stóran plús fyrir að vera klár í öll viðtöl og hann bar sig vel kappinn.
„Það er engin spurning að þetta er bara eins og að tapa. Við vorum yfir allan leikinn og ég klúðraði þessu víti í lokin. Þetta var lélegt víti. Vörnin var frábær í fyrri hálfleik en ekki seinni hálfleik. Mér finnst við eiga fullt inni. Það er svekkjandi að eiga svona mikið inni. Við hefðum alltaf þurft að klára hina leikina hvort sem er og þetta breytir því ekkert. Við einblínum núna bara á Austurríkismennina sem spiluðu virkilega vel gegn Dönum í kvöld.“
Ísland gerði jafntefli við Serbíu í fyrsta leiknum okkar á EM í Austurríki. Við töpuðum ekki, þó svo að það sé hugur margra sem horfðu á leikinn. En þetta stig getur gert fína hluti fyrir okkur og nú er auðvitað bara að vinna Austurríkismenn og svo Dani. Jafnteflið er engum einum að kenna, liðið spilaði frábærlega á köflum en datt aðeins niður inn á milli. Svona er handboltinn einfaldlega! 29-29 lokatölur.
Nýliðinn Ólafur Guðmundsson hvílir í leiknum gegn Serbíu í kvöld. Guðmundur þjálfari má hafa sextán leikmenn á skýrslu, sem er nýlunda á EM, en hann hefur þá fimmtán leikmenn gegn Serbum. Guðmundur má þá ennþá kalla inn í hópinn hvaða leikmann sem er ef einhver myndi til að mynda meiðast.
Landsliðið tók létta æfingu í morgun, fer síðan í hádegismat og slappar svo af fram að leik.
Strákarnir okkar mæta Serbum í kvöld á fyrsta keppnisegi EM í handbolta. Mikil spenna er hjá strákunum að ná loks að hefja leik og þeir eru allir klárir í slaginn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 að íslenskum tíma.
Serbar voru partur af gömlu Júgóslavíu þangað til 2006 þegar það skildi við Serbíu og Svartfjallaland og er þetta fyrsta stórmót liðsins síðan það fékk sjálfstæði. Íslandi hefur oft gengið vel með liðin frá austrinu og er vonandi að framhald verði á í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson er einn af lykilmönnum landsliðsins og hann var brattur og hress á æfingunni áðan. „Mér líður vel fyrir mótið. Við höfum verið að bíða eftir þessu undanfarna daga og vikur og það er gaman að það sé loksins komið að þessu. Mér finnst undirbúningurinn hafa gengið vel, við höfum unið Þjóðverja, Spán og Portúgal. Í gær gegn Frökkum horfðum við frekar á að komast heilir frá leiknum, hann var frekar rólegur. En allir menn virðast vera heilir og til í slaginn,“ sagði Guðjón.
Einar Þorvarðarson tók svo sannarlega einn fyrir liðið eins og sagt er í gær. Hann ákvað þá að spara HSÍ rúmlega eina milljón króna sem það hefði þurft að borga annars í yfirvigt í flugi sínu frá Frakklandi til Austurríkis.
Einar keyrði yfir 1100 kílómetra og tók það um 10 tíma. „Það hlupu níu villisvín fyrir bílinn á leiðinni, það munaði engu að ég næði því síðasta,“ sagði Einar sem var þó hinn hressasti eftir keyrsluna.
Tímakaup HSÍ var þar með rúmlega 100 þúsund krónur á klukkutímann.
Björgvin Páll Gústafsson hefur spilað vel í íslenska markinu að undanförnu. Mikilvægt er að markmenn liðsins verji vel í mótinu en margir hafa oft orð á því að markvarslan sé akkilesarhæll landsliðsins. Það ætti ekki að vera uppi á teningnum núna.
Báðir markmenn Íslands núna er atvinnumenn í Evrópu og líta þeir báðir mjög vel út. Bæði hvað varðar handboltann sjálfan en þeir eru einnig fjallmyndarlegir.
Ástandið á leikmönnum liðsins fyrir leikinn gegn Serbum á morgun er nokkuð gott. Aron Pálmarsson tók fullan þátt í æfingunni en hann var hvíldur alveg um helgina vegna smávægilegra meiðsla. Hann ætti að vera klár í slaginn á morgun.
Logi Geirsson skaut sem óður maður á æfingunni og virtist vera í fínu standi. Hann hefur aðeins verið að hlífa öxlinni en byssurnar virkuðu funheitar. Hann æfði skotin sérstaklega og sagði á æfingunni að hann væri hreinlega æstur í að fá að prófa að skjóta. Hann ætti því að vera klár líka.
Annars er ástandið á mönnum gott og menn voru einbeittir að verkefninu en um leið hressir. Alveg eins og það á að vera.
Það sáust ekki miklir taktar í upphitun íslenska landsliðsins áðan, nema þá frá Alexander Peterssyni sem stóð í markinu hjá Gömlum. Eftir hefðinni er skipt í Ungir vs. Gamlir í upphituninni og spilaður er fótbolti. Oft er mikil barátta í þessum leikjum en menn eru þó að passa sig að meiðast ekki.
Leikurinn var þó nokkuð skemmtilegur á að horfa en Alexander varði nokkrum sinnum glæsilega. Íshokkímarkmaður mikill en hann sá eiginlega til þess að unga liðið væri ekki í forystu. Ungir nenntu þó lítið að spila vörn en það kom ekki að sök.
Áfangastaður íslenska landsliðið í Austurríki er Linz, um 190 þúsund manna bær í norðurhluta Austurríkis. Íslenska liðið kom hingað í nótt og mun æfa síðar í dag. Við verðum að sjálfsögðu á þeirri æfingu.
Linz er annars skemmtilega byggð borg, hún er byggð á nokkrum hæðum og Dóná rennur í gegnum borgina. Linz er iðnaðarborg en er þó að breytast að sögn heimamanna og er menningin hér einnig fyrirferðarmikil.
Sigfús Sigurðsson er einn af silfurdrengjunum okkar en hann er eini leikmaðurinn sem vann silfur sem er ekki í landsliðinu núna. Þessi öðlingsdrengur á í vandræðum með skrokkinn á sér en er að komast á ról og ætlar sér greinilega að vera á toppnum eftir nokkra mánuði.
Við hittum Fúsa eftir æfingu hjá fjórða flokki kvenna í Val en hann þjálfar nú liðið og er á kórréttri leið með það samkvæmt heimildum síðunnar. Við spurðum fyrst um riðil Íslands sem margir vilja meina að sé léttari en oft áður.
Strákarnir í íslenska landsliðinu komu í nótt til Linz í Austurríki eftir að hafa ferðast frá Frakklandi af æfingamótinu sem það spilaði í um helgina. Þess má geta að Ólafur Stefánsson var valinn maður mótsins.
Liðið mun æfa í dag en Í Blíðu og Stríðu kom einnig í gær til Linz. Hér dveljum við í góðu yfirlæti en á morgun hefst svo mótið sjálft.
Ísland tapaði fyrir Frakklandi í dag í æfingamótinu sem fór fram í París. Lokatölur 35-25 fyrir heimamönnum en það var nýliðinn Ólafur Guðmundsson sem var markahæstur í leiknum með sex mörk. Vel gert hjá stráknum.
Á Vísi.is kemur fram að Frakkar byrjuðu leikinn betur og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik en íslenska liðið náði að minnka muninn niður í eitt mark áður en Frakkar skoruðu þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiksins. Frakkar leiddu 17-13 í hálfleik og unnu svo öruggan sigur.
Ólafur skoraði mörkin sín sex úr tól skotum en Alexander Petersson skoraði fimm mörk og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson fjögur mörk hvor. Hreiðar Levý Guðmundsson var'i islenska markið allan tímann og varði ellefu bolta.
Egill Þykki Einarsson, oft kenndur við Gillz, tók vel á móti okkur strákunum í gær þegar við kíktum á hann í Sporthúsinu. Þykki er handboltaáhugamaður mikill og lýsir landsliðinu og strákunum okkar sem eins konar sameiningartákni þjóðarinnar.
Við ræddum við Þykka um landsliðið, handboltaferilinn hans og væntingarnar fyrir EM.
Við bendum einnig á myndband þar sem við ræðum við Þykka um Aron Pálmarsson landsliðsmann og hvernig hann hjálpaði „kjúklingnum“ eins og hann kallar kappann að hætta að borða smjör.
Sigurður Sveinsson hrellti markmenn á árum áður og er margrómaður fyrir hressleika sinn innan sem utan vallar. Þessi mikli húmoristi ætlaði að bjóða okkur í kaffi og banana en steingleymdi því en við fórum þó út með penna sem við stálum óvart frá honum.
Sigurður hefur spilað 242 leiki fyrir Ísland og skoraði í þeim 736 mörk. Við trufluðum hann í vinnunni í vikunni.
Ísland vann rétt í þessu frábæran þriggja marka sigur á sterku liði Spánverja í æfingaleik í Frakklandi. Lokatölur 30-27 fyrir Íslandi sem mætir annaðhvort Frakklandi eða Brasilíu á morgun.
Ísland leiddi 14-12 í hálfleik.
Björgvin Páll var allan tíman í íslenska markinu og hann varði alls 19 skot og var með 41 prósent markvörslu. Góður leikur hjá honum.
Einar Þorvarðarson er framkvæmdastjóri HSÍ og hann hefur haft í nógu að snúast undanfarnar vikur og mánuði. Að undirbúa mót eins og EM fyrir íslenska liðið er meira en að segja það og að baki er mikil vinna sem ekki allir átta sig á hvað er mikil og mikilvæg.
Við hittum Einar í höfuðstöðvum HSÍ í Laugardalnum og Einar sagði okkur meðal annars að heimsmeistarar Frakka koma hingað til lands í apríl til að leika tvo æfingaleiki við Ísland.
Ingimundur Ingimundarson var við lyftingar í laugum ígær ásamt landsliðinu. Við trufluðum strákanna í smá stund og tókum púlsinn á þeim á þessar síðustu æfingu á íslenskri grundu áður en liðið hélt til Frakklands í morgun.
Hann segir að nauðsynlegt sé að fá frí í eins og hálfan dag, sem liðið fékk einmitt í gær.
Strákarnir fóru af landi brott í morgun og við mættum niður í höfuðstöðvar HSÍ til að hitta strákana áður en þeir fóru. Mæting var ekki seinna en korter í fimm og rútan fór klukkan fimm. Hún stoppaði í Hafnarfirði til að taka upp leikmenn en annars voru nánast allir á réttum tíma.
Einn mætti reyndar alltof snemma og var mættur áður en við mættum, um 25 mínútur yfir fjögur. „Ég hélt að það væri mæting hálf fimm!“ sagði glaðbeittur Snorri Steinn við okkur en viðtal við hann á myndbandi kemur á síðuna í kvöld.
Í Blíðu og Stríðu hefur tekið upp þráðinn á nýjan leik, og ekki er vanþörf á. Framundan er ærlegt verkefni fyrir strákana okkar sem takast á við bestu þjóðir heims á Evrópumótinu í Austurríki í janúar.
| Serbía - Ísland | 19.01.10 / 19:15 | 29-29 |
| Austurríki - Ísland | 21.01.10 / 17:00 | 37-37 |
| Danmörk - Ísland | 23.01.10 / 19:15 | 22-27 |
| Króatía - Ísland | 25.01.10 / 15:00 | 26-26 |
| Rússland - Ísland | 26.01.10 / 15:00 | 30-38 |
| Noregur - Ísland | 28.01.10 / 15:00 | 34-35 |
| Frakkland - Ísland | 30.01.10 / 13:00 | 36-28 |
| Pólland - Ísland | 31.01.10 / 14:00 | 26-29 |
| Ísland - Frakkland | 16.04.10 / 20:15 | 28-28 |
| Ísland - Frakkland | 17.04.10 / 16:00 | 28-31 |