Fréttir

01.02.2010 / 16:13

Hittið bronsdrengina í Laugardagshöll

Hittið bronsdrengina í LaugardagshöllStrákarnir okkar lenda kl 16:30 á Reykjavíkurflugvelli eftir glæsilegan árangur í EM í Austurríki. En nú gefst aðdáendum þeirra tækifæri að hitta þá augliti til auglitis. Athöfn verður með strákunum í Laugardalshöll sem hefst kl.17.45 í dag.

01.02.2010 / 15:37

Bronsævintýrið í Austurríki rennur sitt skeið

Bronsævintýrið í Austurríki rennur sitt skeiðEftir tveggja vikna ferð í Austurríki er ferðinni lokið og ævintýrið endaði vel. Bronsið í höfn og aðeins einn tapleikur á mótinu, gegn ómennskum ÓL-, Heims-, og Evrópumeisturum Frakka. Engin skömm í því. Strákarnir okkar geta svo sannarlega borið höfuðið hátt.

31.01.2010 / 19:30

Ólafur Stefánsson ætlar sér gull með landsliðinu

Ólafur Stefánsson ætlar sér gull með landsliðinu Ólafur Stefánsson er ekkert á þeim buxunum að hætta að leika með íslenska landsliðinu. Óli var valinn í lið mótsins og sagði reyndar að það hlyti að hafa verið valið fyrir undanúrslitaleikina. Hann var ósáttur með sig í gær og í dag og viðurkenndi að það hafi ekki verið heillandi að halda áfram eftir tapið gegn Frökkum. En hann stoppar ekki hér. Hann segir líka að Alexander hafi átt „múv“ ársins í íþróttaheiminum.

31.01.2010 / 19:28

Guðmundur: Mér líður stórkostlega og ég er stoltur af árangri liðsins

Guðmundur: Mér líður stórkostlega og ég er stoltur af árangri liðsinsÞað hefur verið ótrúlegt að fylgjast með Guðmundi Guðmundssyni á mótinu. Þessi vinnuþjarkur hefur lagt nótt sem nýtan dag við að undirbúa liðið og ég get nánast fullyrt að enginn þjálfari lagði jafn mikið á sig og hann á þessu móti. Guðmundur er einn besti þjálfari heims í dag, það er bara þannig. Ég ræddi við Guðmund um líðan hans eftir mótið og ýmislegt fleira. Hann sagði mér líka frá ótrúlegu starfi Gunnars Magnússonar í gær.

31.01.2010 / 19:19

Sjáðu sigurinn í myndum

Sjáðu sigurinn í myndumReynir Albert var með myndavélina á lofti allan leikinn gegn Pólverjum. Hann náði flottum myndum af strákunum okkar sem tóku bronsið í dag. Hér til hægri er myndband með myndunum undir lagi 200.000 Naglbíta og Lúðrasveitar Verkalýðsins. Endilega skoðið myndbandið og upplifið þennan frábæra leik aftur.

31.01.2010 / 19:12

Stórbrotin tilþrif Alexanders á myndbandi

Stórbrotin tilþrif Alexanders á myndbandiAlexander Petersson átti tilþrif mótsins. Hvernig í ósköpunum fór hann að þessu? Ein og hálf mínúta eftir, Pólverjar í hraðaupphlaupi og geta minnkað muninn í eitt mark. Alexander stekkur þá á boltann framhjá Pólverja og stoppar sóknina. Ótrúlegt. Sjáðu myndband af atvikinu hér.

31.01.2010 / 19:05

Guðjón Valur: Væri til í að vera í þessu liði allt árið um kring

Guðjón Valur: Væri til í að vera í þessu liði allt árið um kringGuðjón Valur Sigurðsson dró vagninn á köflum í mótinu. Guðjón var frábær í dag, skoraði átta mörk og var markahæsti maður liðsins. Hann segir hreinlega erfitt að yfirgefa liðið núna, það sé svo frábært að vera í því. Guðjón var vígreifur í leikslok.

31.01.2010 / 18:37

Sverre: Erum með frábæra einstaklinga en enn betra lið

Sverre: Erum með frábæra einstaklinga en enn betra liðSverre Jakobsson var sem fyrr burðarás í vörn Íslands í dag en í fyrri hálfleik sýndi hún einhverja bestu varnartakta sem sést hafa á handboltavellinum. Það var Peking-stemning í liðinu og Sverre minntist einmitt á það. Hann segir að langur vegur sé á milli þriðja og fjórða sætis og liðið sé stolt af árangrinum.

31.01.2010 / 18:07

Hreiðar: Þetta var ruglfínt

Hreiðar: Þetta var ruglfíntMargir leikmenn léku vel í leiknum gegn Pólverjum. Strákarnir eiga allir heiður skilinn fyrir frábært mót. Allir. Sama hversu mikið þeir spiluðu. En markvarsla Hreiðars var eiginlega til þess að þetta var hægt. Pólverjar voru með sjálfstraustið í botni og gátu jafnað leikinn þegar Hreiðar var mættur og átti öll svör við þeim. Hreiðar átti frábæran leik. Hann fann líka upp á nýju orði, „ruglfínt.“

31.01.2010 / 18:05

Forseti Íslands: Einstakt afrek í íþróttasögu Íslands

Forseti Íslands: Einstakt afrek í íþróttasögu ÍslandsForsetahjón Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaief voru á leiknum egn Pólverjum í dag. Þau virtust skemmta sér konunglega en ég ræddi aðeins við Ólaf eftir leikinn. Hann var brosmildur eins og aðrir Íslendingar en þau sáu Ísland líka hampa silfrinu í Peking.

31.01.2010 / 17:46

Björgvin: Erum að búa til hefð fyrir framtíðina

Björgvin: Erum að búa til hefð fyrir framtíðina„Þetta var frábært. Það var erfitt að spila þennan leik. Líkaminn sagði nei en hugurinn já. Hugurinn dugði í dag fyrir okkur, alveg klárlega,“ sagði kampakátur Björgvin Páll. Ég ræddi við hann um nýtt gel, þreytuna og hvernig hann tileinkar Gunnari Magnússyni og fjölskyldu bronsið.

31.01.2010 / 17:30

Snorri Steinn: Þetta sýnir að silfrið var engin tilviljun

Snorri Steinn: Þetta sýnir að silfrið var engin tilviljunSnorri Steinn Guðjónsson var brosmildur eins og aðrir áðan. Snorri átti gott mót, hann skoraði fjögur mörk í dag og bronsaði sig svo vel upp eftir leikinn. „„Mér líður stórkostlega, það er gríðarlega sterkt að enda þetta á medalíu,“ sagði Snorri.

31.01.2010 / 17:20

Nýrakaður Róbert: stoltur af því að vera hluti af þessu liði

Nýrakaður Róbert: stoltur af því að vera hluti af þessu liði„Ég ákvað að raka vonbrigðin í burtu eftir tapið og byrja daginn sem nýr maður,“ sagði Róbert Gunnarsson um skeggleysið en hann hafði skartað afar myndarlegu skeggi á mótinu til þessa. Róbert var frábær í leiknum eins og öllu mótinu. Algjörlega frábær. Robbi var á leiðinni í lyfjapróf en var annars hress.

31.01.2010 / 17:08

Arnór Atla: Tileinkum Gunna Magg og fjölskyldu bronsið

Arnór Atla: Tileinkum Gunna Magg og fjölskyldu bronsiðArnór Atlason var meðal bestu manna Íslands á mótinu. Arnór lýsir tilfinningum sínum og segir frá því hvernig liðið fékk auka kraft fyrir leikinn.

31.01.2010 / 16:50

Ásgeir Örn: þetta er stórkostleg tilfinning

Ásgeir Örn: þetta er stórkostleg tilfinningÞað var yndislegt að taka viðtöl við strákana eftir leikinn. Faðmlög, tár, sviti, tilfinningarússíbani og taumlaus gleði. Ásgeir Örn segir að þetta sé einfalt, liði er bara drullu gott!

31.01.2010 / 16:40

Ísland vann bronsið! - Taumlaus gleði strákanna okkar

Ísland vann bronsið! - Taumlaus gleði strákanna okkarÍsland hirti bronsið í dag. Strákarnir okkar börðust fyrir því. Heldur betur. Þessu ævintýralega móti er lokið með besta árangri Íslands á Evrópumóti. Strákarnir gerðu þetta fyrir þjóðina sem hefur stutt svo vel við bakið á þeim. Gleðin í leikslok var ólýsanlega skemmtileg. Hér er umsögn um leikinn, viðtöl eru á leiðinni við bronsverðlaunahafana.

31.01.2010 / 02:17

Baráttan um bronsið: Ísland - Pólland í dag

Baráttan um bronsið: Ísland - Pólland í dagÍsland leikur sinn síðasta leik á EM í Austurríki í dag þegar liðið mætir Póllandi. Leikið er um bronsverðlaun og það er því mikið í húfi. Það lið sem svekkir sig minna á tapinu í undanúrslitum vinnur leikinn líklega. Bæði lið eru feikiöflug en Ísland vann Pólland síðast þegar við mættum þeim á stórmóti, í átta liða úrslitum ÓL í Peking.

30.01.2010 / 20:40

Björgvin Páll: Við viljum allir koma heim með medalíu

Björgvin Páll: Við viljum allir koma heim með medalíuBjörgvin Páll Gústavsson átti fínan leik í íslenska markinu og sérstaklega í fyrri hálfleik þegar hann varði frábærlega. Björgvin segir að strákana hungri í medalíu hvernig sem hún er á litinn og karakterinn í strákunum geri það að verkum að þeir geta vel rifið sig upp og hirt bronsið á morgun.

30.01.2010 / 20:24

Róbert: Leiðinlegt að svona hafi farið

Róbert: Leiðinlegt að svona hafi fariðRóbert Gunnarsson var í strangri gæslu allan leikinn. Engu líkara en að hann væri afbrotamaður með frönsku lögregluna við öllu viðbúna. Róbert skoraði eitt mark úr eina skotinu sem hann tók í leiknum en hann segir að liðið hafi gert of mörg mistök í seinni hálfleiknum.

30.01.2010 / 17:00

Pólland andstæðingurinn í leiknum um bronsið

Pólland andstæðingurinn í leiknum um bronsiðAndstæðingur Íslands í leiknum um bronsið á morgun er Pólland. Mikill vinskapur ríkir á milli þjóðanna en Pólverjar hafa á frábæru liði að skipa. Ísland vann Pólverja í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna 2008, 32-30. Pólverjar töpuðu nú rétt í þessu fyrir Króötum 24-21. Þeir unnu einmitt bronsverðlaunin á Heimsmeistaramótinu í Króatíu á síðasta ári. Leikurinn á morgun hefst klukkan 14.00 að íslenskum tíma.

30.01.2010 / 16:30

Aron: Hefði frekar viljað sitja á bekknum allan leikinn og fara í úrslitin

Aron: Hefði frekar viljað sitja á bekknum allan leikinn og fara í úrslitinAron Pálmarsson var maður leiksins gegn Frökkunum. Þessi frábæri leikmaður sýndi glæsilega takta en hann var hundfúll eins og aðrir eftir leikinn. „Það skipti engu máli hvernig ég spilaði. Ég hefði frekar viljað sitja á bekknum allan leikinn og fara áfram,“ sagði Aron. Hann segir þó að nú sé komið nýtt markið, bronsverðlaun.

30.01.2010 / 16:15

Guðmundur: Engin ástæða til að ætla annað en að við rífum okkur upp

Guðmundur: Engin ástæða til að ætla annað en að við rífum okkur uppGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að engin ástæða sé til að ætla annað en að liðið rífi sig upp fyrir leikinn á morgun um bronsið. Liðið hafi áður lent í mótlæti á mótinu, eftir jafnteflið gegn Austurríki, en svo rifið sig upp. Við spjölluðum við Guðmund um leikinn, um hvað fór úrskeiðis, af hverju Aron byrjaði ekki seinni hálfleikinn sem margir hafa velt fyrir sér og hvað þjálfarinn var ánægður með í leiknum.

30.01.2010 / 15:48

Ólafur Stefánsson: Liðið hefði þurft að fá meira frá mér

Ólafur Stefánsson: Liðið hefði þurft að fá meira frá mérÓlafur Stefánsson fyrirliði liðsins var ósáttastur með sjálfan sig í dag. Hann tók tapið mikið til sín en hann sýndi góða takta líka drengurinn. Óli segir að liðið hefði þurft að fá meira frá honum en nú sé það hlutverk liðsins að gíra sig upp fyrir annan stórleik strax á morgun.

30.01.2010 / 15:39

Ingimundur: Sjálfstraustið fór í seinni hálfleik

Ingimundur: Sjálfstraustið fór í seinni hálfleikIngimundur Ingimundarson var eins og strákarnir hundfúll með tapið. Eðlilega, en við blaðamenn erum virkilega ánægðir með strákana. Það er ekki öllum gefið að bjóða sig fram í viðtöl eftir svona leiki en þeir gerðu það allir án þess að hika. Diddi sagði að sjálfstraustið hafi farið í liðinu í seinni hálfleik en hann ætlar sér á verðlaunapall.

30.01.2010 / 15:33

Sturla: Spiluðum ekki okkar besta leik en ætlum okkur bronsið

Sturla: Spiluðum ekki okkar besta leik en ætlum okkur bronsið„Maður spilar aldrei betri en andstæðingurinn leyfir og við náðum ekki upp okkar besta leik í dag. Ég held að við getum allir verið sammála um það. Þeir unnu þetta kannski verðskuldað bara,“ sagði Sturla Ásgeirsson eftir leikinn. Sturla lék í nokkrar mínútur í dag en hann segir að strákarnir séu staðráðnir í að tryggja sér bronsið á morgun.

30.01.2010 / 15:13

Fyrsta tap Íslands staðreynd - Bronsleikur á morgun

Fyrsta tap Íslands staðreynd - Bronsleikur á morgunÍsland tapaði sínum fyrsta leik á EM í dag, fyrir Ólympíu- og Heimsmeisturum Frakka. Strákarnir geta borðið höfuðið hátt, þeir spila um bronsið á morgun, gáfu sig alla í leikinn og voru á pari við Frakkana í 50 mínútur af 60. Það dugði ekki til og nú er bara að gleyma leiknum, gíra sig upp og bronsa sig í gang á morgun.

30.01.2010 / 03:57

Guðmundur: Vitum hverju við eigum von á - Ísland mætir Frökkum í dag

Guðmundur: Vitum hverju við eigum von á - Ísland mætir Frökkum í dagStrákarnir okkar horfa upp á erfiðasta leik sinn síðan í úrslitum á Ólympíuleikunum í dag. Mótherjinn er sá sami og þá, Frakkar. Þeir eru handhafar Ólympíutitilsins, en við unnum samt silfur, auk þess sem þeir eru Heimsmeistarar. Ekkert lið hefur náð þessum tveimur titlum og Evrópumeistaratitilinum á sama tíma. Það er markmið Frakka.

30.01.2010 / 00:58

Sverre saumaður - Allir klárir í slaginn

Sverre saumaður - Allir klárir í slaginnHarðjaxlinn Sverre Jakobsson fékk olnboga Bjarte Myrhol í sig í leiknum gegn Noregi. Hann fékk sprungna vör og auk þess þurfti að sauma tvö spor í hnakkann á stráknum eftir átök í leiknum. Allir strákarnir okkar eru klárir í slaginn í dag, eitthvað er um lítilvæga pústra en ekkert sem kemur í veg fyrir að einhver sé ekki 100% prósent klár í slaginn. Það eru virkilega góðar fréttir.

30.01.2010 / 00:15

Handrit að æfingu hjá strákunum

Handrit að æfingu hjá strákunumStrákarnir tóku æfingu sem varði í 90 mínútur í gær. Við ákváðum að horfa á alla æfinguna, eins og við gerum reyndar alltaf, en skrifa niður hvað strákarnir eru að gera og gefa ykkur því innsýn í hvernig æfingarnar fara fram. Hér er handrit að æfingunni hjá strákunum.

29.01.2010 / 21:58

We need tickets! Íslendingum fjölgar stöðugt í Vín

We need tickets! Íslendingum fjölgar stöðugt í VínÍslendingum er að fjölga hér í Vín. Mikil eftirspurn er eftir miðum og HSÍ vinnur baki brotnu við að útvega miða. Við hittum Íslendinga fyrir framan höllina í dag sem voru að reyna að kaupa sér miða. Þau þekktust ekki öll innbyrðis og höfðu keyrt í 15 og 17 tíma til að komast til Vínar. Þau keyptu miða á úrslitaleikinn á 200 Evrur (um 36. þúsund krónur) en sáu ekki eftir því. Erfiðara er að fá miða á undanúrslitaleikina.

29.01.2010 / 14:42

Aron: Ég hata ekkert að skora hjá Thierry Omeyer

Aron: Ég hata ekkert að skora hjá Thierry OmeyerAron Pálmarsson fékk sér sushi með Vigni Svavarssyni eftir sigurinn á Noregi í gær. Ég ræddi við Aron um klæðnað Vignis, stemninguna í hópnum og samherja hans í Kiel, Daniel Narcisse og Thierry Omeyer sem eru leikmenn Frakka. Báðir eru magnaðir handboltamenn. „Menn voru ágætlega hátt uppi í gær en við erum komnir niður á jörðina,“ sagði Aron.

29.01.2010 / 14:34

Vignir: Gæti farið að framleiðasvitalyktareyði undir nafninu "Almost"

Vignir: Gæti farið að framleiðasvitalyktareyði undir nafninu "Almost"Vignir Svavarsson er vel hungraður í medalíu á EM. Vignir fór ekki á Ólympíuleikana en hann segir að eftir að Silver gelið kom frá Loga og Björgvini, gæti hann hugsað sér að byrja að framleiða svitalyktareyði til höfuðs því, undir nafninu Almost – Næstum því. Vignir var léttur þegar ég spjallaði við hann á hóteli strákanna í dag.

29.01.2010 / 13:57

Björgvin um hefð fyrir leiki: Setur myndböndin inn á völl með Eminem í eyrunum

Björgvin um hefð fyrir leiki: Setur myndböndin inn á völl með Eminem í eyrunumBjörgvin Páll Gústavsson kemur alltaf inn á völlinn einum og hálfum tíma fyrir leik, með iPod í eyrunum og tekur sér stöðu í báðum mörkunum. Ég ræddi við Björgvin um þessa hefð hjá honum sem hann hefur gert lengi. Björgvin er með sérstaka tónlist í eyrunum og hann sagði mér líka frá því hvernig markmenn horfa miklu meira á myndbönd en aðrir leikmenn í undirbúningi fyrir leiki.

29.01.2010 / 13:51

Og í matinn í dag er...

Og í matinn í dag er...Strákarnir okkar dvelja á hóteli í Vín nálægt höllinni sem þeir spila í. Eins og gengur og gerist eru menn missáttir með aðstæður, sumum finnst rúmin of lítil, öðrum maturinn vondur. Ég leit á diskinn hjá Sverre og Ingimundi og hef séð girnilegri mat. Eins og sjá má á myndunum er þetta það sem strákarnir borða, áður en þeir funda og fara svo á æfingu.

29.01.2010 / 13:41

Ólafur Guðmundsson: Við ætlum bara að vinna!

Ólafur Guðmundsson: Við ætlum bara að vinna!Ólafur Guðmundsson lék allan leikinn gegn Frökkum á undirbúningsmóti á þeirra heimavelli rétt fyrir EM. Þann leik er þó ekki að marka. Frakkar léku þar á sínu sterkasta liði og unnu örugglega en Ísland nýtti tækifærið og notaði allan leikmannahópinn og prófaði sig áfram með nýja hluti. Ólafur segir að það sé ekkert hægt að horfa á þann leik þegar möguleikar Íslands í leiknum eru skoðaðir.

28.01.2010 / 20:51

Ísland komið á HM - mætir heimsmeisturum Frakka í undanúrslitunum

Ísland komið á HM - mætir heimsmeisturum Frakka í undanúrslitunumÍsland mætir sjálfum heimsmeisturum Frakka á laugardaginn í undanúrslitum Evrópumótsins. Þetta er ljóst eftir að riðlakeppnin kláraðist nú í kvöld. Þá er líka ljóst að Ísland er komið á HM í Svíþjóð þar sem þrjú efstu liðin komast þangað, en Frakkar eru þegar komnir þangað þar sem þeir eru heimsmeistarar. Undanúrslitaleikurinn gegn Frökkum hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma. Við eigum harma að hefna gegn Frökkum eftir að hafa tapað fyrir þeim í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum. Ísland lenti í öðrum sæti í sínum milliriðli á eftir Króötum sem unnu Dani 27-23 í kvöld og Frakkar í fyrsta sæti í sínum milliriðli eftir sigur á Pólverjum. Króatar og Pólverjar mætast því í hinum undanúrslitaleiknum fyrr á laugardaginn.

28.01.2010 / 20:12

Guðmundur: Strákarnir hafa staðið sig stórkostlega

Guðmundur: Strákarnir hafa staðið sig stórkostlegaGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var stoltur á svip þegar við ræddum við hann eftir leik. Guðmundur er búinn að ná stórkostlegum árangri með liðið og er þetta enn ein rósin í hnappagat hans. Guðmundur viðurkennir að hafa misst sig aðeins í gleðinni en hann er fljótur niður á jörðina aftur enda stutt í næsta leik. Hann sagði brosandi að liðið fengi ekki alveg frí í allt kvöld en líklega slappa strákarnir vel af og njóta kvöldsins. Og þeir eiga það svo sannarlega skilið.

28.01.2010 / 19:53

Ólafur: Maður á að gera hlutina vel - annars er ekki þess virði að gera þá

Ólafur: Maður á að gera hlutina vel - annars er ekki þess virði að gera þáÓlafur Stefánsson skoraði fjögur mörk í leiknum í dag og var valinn maður leiksins af mótshöldurum. Fyrirliðinn var rólegur og yfirvegaður í spjalli okkar og þessi mikli sigurvegari segir að hann hafi sett markið á Evrópumeistaratitilinn sjálfan fyrir mótið.

28.01.2010 / 19:33

Snorri Steinn: Góð lið eru ekkert södd

Snorri Steinn: Góð lið eru ekkert söddSnorri Steinn Guðjónsson stýrði liðinu að venju eins og herforingi af miðjunni. Hann er staðráðinn í að ná lengra, að spila um brons dugar ekkert. Mér fannst það bæði á honum og strákunum að þeir eru með gullglampa í augunum, þeir ætla sér og vilja meira.

28.01.2010 / 19:21

Sverre sem er fæddur í Noregi: Blendnar tilfinningar og mikil ánægja

Sverre sem er fæddur í Noregi: Blendnar tilfinningar og mikil ánægjaSverre Jakobsson er fæddur í Noregi og hann bjó í fimm ár þar í landi. Mamma hans er norsk og því voru tilfinningar hans blendnar. „Ég sagði í gríni fyrir leikinn að það skipti ekki máli hvernig færi, ég yrði alltaf ánægður, ég gæti alltaf fagnað. En auðvitað er það ekki rétt. Ég ber sterkar taugar til Noregs og það er erfitt að velja á milli fyrir mig en auðvitað er ég í skýjunum,“ sagði Sverre.

28.01.2010 / 19:09

Vignir: Ekki alveg að ná því sem er að gerast

Vignir: Ekki alveg að ná því sem er að gerastVignir Svavarsson var frábær í leiknum í kvöld. Ingimundur fékk á sig tvær brottvísanir snemma leiks og eftir að hafa komið af bekknum var Vignir frábær. Línumenn Norðmanna eru með þeim bestu í heimi og verkefnið ekki auðvelt. Vignir var hress eftir leikinn eins og allir en hann var varla að átta sig á því hvað var að gerast þegar ég talaði við hann.

28.01.2010 / 18:44

Arnór: Það er ömurlegt að lenda í fjórða sæti og við ætlum okkur lengra

Arnór: Það er ömurlegt að lenda í fjórða sæti og við ætlum okkur lengraArnór Atlason var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í kvöld. Arnór skoraði tíu flott mörk úr aðeins tólf skotum og bar sóknarleikinn uppi á köflum. Hann átti auk þess fjölda stoðsendinga. Arnór hefur átt frábært Evrópumót og sýndi það enn og aftur hvers megnugur hann er. Hann sagði að Guðmundur hefði ákveðið að stíla inn á að Arnór skyti mikið og það gekk fullkomlega upp.

28.01.2010 / 18:28

Aron: Fannst við alltaf vera með þá

Aron: Fannst við alltaf vera með þáAron Pálmarsson hefur komið sterkur inn á EM. Hann er ennþá nítján ára gamall en hann skoraði tvö mörk úr tveimur skotum í kvöld og var flottur. Það segir mikið um strákinn að hann spilaði mikið undir lokin á þessum gríðarlega mikilvæga leik. En Aron hefur sýnt að hann hefur getuna og karakterinn í það.

28.01.2010 / 18:13

Hreiðar og Ásgeir Örn í skýjunum: Yndislegt og æðislegt!

Hreiðar og Ásgeir Örn í skýjunum: Yndislegt og æðislegt!„Þetta er ekkert búið fyrr en það er búið hjá íslenska liðinu! Þetta var yndislegt OG æðislegt. Þetta er annað stórmótið í röð í undanúrslitum og algjör snilld. Núna eru tveir sigurleikir eftir og þá verður þetta helvíti fallegt,“ sagði kampakátur Hreiðar Levý Guðmundsson markmaður sem varði vel í leiknum. „Þjóðin er örugglega ánægð með okkur og við erum alveg sáttir líka!“

28.01.2010 / 17:59

Guðjón Valur: Gríðarlega ánægður og stoltur af liðinu

Guðjón Valur: Gríðarlega ánægður og stoltur af liðinuÉg er rennandi blautur af svita eftir að hafa faðmað landsliðsmennina eftir leikinn. Strákarnir komu skælbrosandi allir sem einn í viðtöl og fögnuðu vel. Eðlilega! Ég talaði við Guðjón Val Sigurðsson sem skoraði fjögur mörk í dag. „Tilfinningin var góð. Það er frábært að ná að klára þetta verkefni. Ég vil hrósa norska liðinu, þeir eru með hörkulið og hafa bætt sig mikið á síðustu árum. Þetta var mjög erfiður leikur,“ sagði Guðjón.

28.01.2010 / 17:25

Sigurinn tileinkaður Gunnari Magnússyni og fjölskyldu hans

Strákarnir okkar og allt starfsfólk bar sorgarbönd í sigurleiknum gegn Noregi til að heiðra minningu systur Gunnars Magnússonar, aðstoðarþjálfara liðsins, sem lést í vikunni. Gunnar fór heim til Íslands en Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði að liðið hefði hugsað mikið til Gunnars og fjölskyldu í undairbúningnum fyrir leikinn. Guðjón Valur Sigurðsson segir að allt liðið hugsi til fjölskyldunnar.

28.01.2010 / 17:23

Strákarnir okkar geta allt

Strákarnir okkar geta alltHvar á maður eiginlega að byrja? Strákarnir okkar eru svo óheyrilega flottir að það nær bara engri átt. Taplausir á EM, betra liðið í öllum leikjunum og á tveimur stórmótum í röð er liðið komið í undanúrslit. Ég tók fullt af viðtölum áðan og strákarnir eru í skýjunum, en um leið hungraðir. Þeir komu ekki hingað til að fara í undanúrslit, þeir ætla sér meira.

28.01.2010 / 06:31

Guðmundur: Hef ekki séð Norðmenn svona sterka í mörg ár

Guðmundur: Hef ekki séð Norðmenn svona sterka í mörg árÍsland leikur í dag ótrúlega mikilvægan leik gegn frændum okkur í Noregi. Landsliðsþjálfari okkar segir að hann hafi ekki séð landslið Noregs svona sterkt lengi. Norðmenn hafa spilað vel í mótinu og verður leikurinn afar spennandi. Hér er það sem Guðmundur hafði að segja um leikinn gegn Noregi.

28.01.2010 / 01:29

Ísland - Noregur í dag klukkan 15: Undanúrslit í húfi

Ísland - Noregur í dag klukkan 15: Undanúrslit í húfiNorðmenn eru andstæðingar Íslands í dag. Leikurinn er úrslitaleikur um laust sæti í undanúrslitum á EM. Ef Ísland vinnur erum við í undanúrslitunum, það er ljóst. Eftir leik Króatíu og Danmerkur kæmi þá í ljós hvort að Ísland vinnur riðilinn eða ekki. Norðmenn geta aftur á móti enn komist áfram en þurfa að vinna okkur með fimm mörkum til þess. Þeir koma því brjálaðir til leiksins.

27.01.2010 / 21:02

Óskar Bjarni: Aðal málið er að bregðast við því sem andstæðingurinn gerir

Óskar Bjarni: Aðal málið er að bregðast við því sem andstæðingurinn gerirÓskar Bjarni Óskarsson er aðstoðarþjálfari Guðmundar Guðmundssonar hjá landsliðinu okkar. Óskar er virkilega duglegur og ákveðinn og eftir að hafa séð hann að störfum er ekki nokkur vafi á mikilvægi hans. Óskar er búinn að sinna mikilli vinnu hvað leikgreiningu varðar og hefur hann verið vakandi á ansi skrautlegum tímum í þeirri vinnu. Ég ræddi við Óskar um leikgreininguna, samstarfið við Guðmund og Norðmenn.

27.01.2010 / 14:11

Ingimundur: Alltaf aðeins meira undir en bara sigur gegn Noregi

Ingimundur: Alltaf aðeins meira undir en bara sigur gegn NoregiIngimundur Ingimundarson, Diddi, minnir á að Norðmenn geta enn komist áfram á mótinu. Þeir þurfa að vinna okkur með fimm mörkum eða meira og treysta síðan á hagstæð úrslit í leik Danmerkur og Króatíu. Þeir koma því eflaust brjálaðir til leiks, með stoltið sært eftir tapið gegn Dönum í gær. Ingimundur er lítillega meiddur en er klár í slaginn eins og aðrir.

27.01.2010 / 14:10

Hreiðar: Þetta stefnir í eitthvað fallegt

Hreiðar: Þetta stefnir í eitthvað fallegtHreiðar Leví Guðmundsson spilaði vel gegn Rússum í gær. Kappinn var einstaklega ferskur á hótelinu áðan en framundan er kortlagning á Norðmönnum og þeirra spilamennsku. Hreiðar segir að það skipti engu máli þó svo að Norðmenn hafi tapað fyrir Dönum í gær, þeir hefðu alltaf þurft að vinna okkur og geta enn komist áfram.

27.01.2010 / 13:21

Vignir: Við Diddi deilum alltaf rúmi hvort sem er

Vignir: Við Diddi deilum alltaf rúmi hvort sem erVignir Svavarsson og Ingimundur Ingimundarson deila herbergi í Vínarborg. Strákarnir voru ný búnir að borða þegar við hittum þá á hótelinu og Vignir raunar nývaknaður. Myndarlegur samt sem áður. Ég ræddi aðeins við Vigni um hótelið og að sjálfsögðu um leikinn gegn Norðmönnum á morgun.

27.01.2010 / 12:56

Strákarnir fengu að sofa út í dag

Strákarnir fengu að sofa út í dagVið hittum strákana upp á hóteli áðan en það sást langar leiðir að þeir voru bæði fegnir að fá smá hvíld í dag og spenntir fyrir leiknum á morgun. Þeir fengu sér að borða eftir rústið gegn Rússunum í gær en liðið fékk frjálsar hendur með það. Einhverjir fóru út að borða, aðrir héldu sig heima við. Liðið fór á fund klukkan 12 og æfir svo seinna í dag. Í kvöld er blaðamönnum, aðstandendum leikmanna og starfsmönnum landsliðsins boðið í móttöku í sendiráði Íslands hér í Vín. Strákarnir verða ekki þar enda að undirbúa sig fyrir mikilvægasta leik mótsins til þessa. Þeir funda aftur í kvöld og svo í fyrramálið líka. Leikurinn er svo klukkan 15 á morgun.

27.01.2010 / 01:54

Björgvin bestur þriðja skiptið í röð - Mozartkúlurnar hrannast upp

Björgvin bestur þriðja skiptið í röð - Mozartkúlurnar hrannast uppBjörgvin Páll Gústavsson var valinn maður leiksins gegn Rússum. Hann varði alls sextán skot og var með 41% markvörslu. Hann fékk fyrir vikið Mozartkúlur og gjöf frá Adidas. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Björgvin hlýtur heiðurinn og fær alltaf sömu verðlaun. „Snorri étur þetta allt,“ sagði Björgvin um fjallið af Mozartkúlunum sem er væntanlega í herberginu hans. Þær virðast þó fara vel í þá báða. Björgvin gaf svo öllum nærstöddum Mozartkúlu, þar á meðal Snorra, enda eflaust kominn með leið á þessu ljúffenga sælgæti.

26.01.2010 / 22:07

Ólafur Stefánsson: Við erum graðir í að komast í undanúrslitin

Ólafur Stefánsson: Við erum graðir í að komast í undanúrslitinFyrirliðinn Ólafur Stefánsson var góður í leiknum í gær, hann skoraði góð mörk og sem fyrr var hann duglegur að opna fyrir liðsfélaga sína. Hann segir klárt mál að liðið stefni ótrautt á undanúrslitin en til þess þarf liðið að vinna Rússa á morgun. Liðið er klárt til að fara þangað segir Ólafur sem hrósar undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Rússum.

26.01.2010 / 22:06

Guðmundur: Ánægjulegt að sjá liðið spila svona vel áfram

Guðmundur: Ánægjulegt að sjá liðið spila svona vel áframGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er ánægður með hvernig liðið er að spila á mótinu. Hann segir að leikskipulagið í dag hafi gengið fullkomlega upp og að strákarnir hafi í raun aldrei gefið Rússunum séns í leiknum. Óskar Bjarni aðstoðarlandsliðsþjálfari vakti í alla nótt við að klippa myndbönd fyrir leikinn gegn Rússum og liðið kom því vel undirbúið til leiks eins og alltaf.

26.01.2010 / 22:01

Snorri Steinn: Þurftum að hafa fyrir þessum þægilega sigri

Snorri Steinn: Þurftum að hafa fyrir þessum þægilega sigriSnorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu í dag ásamt Alexander. Hann skoraði sjö mörk og stýrði sókninni af festu og miklum myndarheitum í alla staði. Hann minnir á að þó svo að Rússarnir hafi ekki komið klárir í slaginn þá þurfti að hafa fyrir þessum glæsilega sigri á Rússunum.

26.01.2010 / 21:32

Staða Íslands fyrir lokaleikinn gegn Noregi

Staða Íslands fyrir lokaleikinn gegn NoregiStaða Íslands er þessi: Með sigri gegn Noregi er liðið komið í undanúrslit á Evrópumótinu. Jafntefli dugar íslenska lðinu líka. Það er ljóst eftir að Danir unnu Norðmenn á ævintýralegan hátt í Vín í kvöld. Norðmenn geta þó enn komist áfram, ef þeir vinna Ísland með fimm mörkum og Danir tapa fyrir Króötum. Ef Ísland tapar getur það samt komist áfram ef Króatar vinna Dani. Króatar spila líka úrslitaleik við Dani, sem er jákvætt fyrir Ísland. En auðvitað fara strákarnir í leikinn til að vinna hann og ekkert annað!

26.01.2010 / 18:26

Ólafur G ánægður með að fá tækifæri: Skammarlegt fyrir Rússana

Ólafur G ánægður með að fá tækifæri: Skammarlegt fyrir RússanaÉg ræddi við Ólaf Guðmundsson eftir leikinn en hann kom inn á þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Óli var flottur, var óragur við að skjóta og skoraði gott mark sem var vel fagnað á íslenska bekknum og hjá okkur íslensku blaðamönnunum. Óli er líka flottur karakter, einbeittur og ákveðinn. Það er ekki að sjá á honum að hann sé nítján ára gamall á sínu fyrsta stórmóti.

26.01.2010 / 17:57

Alexander: Þeir sáu að þeir áttu aldrei möguleika í okkur og hættu bara

Alexander: Þeir sáu að þeir áttu aldrei möguleika í okkur og hættu baraAlexander Petersson er eins og allir vita fæddur í Lettlandi en er Íslendingur í húð og hár. Þessi miklu snillingur ræðir við hvern sem er á íslensku og hann er ánægður með sigurinn gegn Rússum, sem er auðvitað skammt frá fæðingarstað hans. Hann var markahæsti leikmaður Íslands í leiknum áðan með sjö mörk ásamt Snorraog var virkilega flottur. Hann hefur í tvígang meiðst gegn Rússum á stórmótum og viðurkennir að hann var smeykur við meðferð þeirra í dag.

26.01.2010 / 17:44

Aron: Þeir vanvirtu handboltann og við gáfum þeim aldrei séns

Aron: Þeir vanvirtu handboltann og við gáfum þeim aldrei sénsAron Pálmarsson var enn og aftur flottur í dag, þessi ungi strákur spilar eins og hann sé með hundrað landsleiki plús undir beltinu. Aron skoraði tvö mörk, annað þeirra með stórkostlegu skoti langt fyrir utan punktalínu. Hann var að bíða eftir að sjá það í sjónvarpinu þegar ég ræddi við hann um sigurinn gegn Rússum sem hann sagði þó ekki auðveldasta landsleik sem hann hefur spilað.

26.01.2010 / 17:28

Arnór Atlason: Fór eins og við þorðum að vona

Arnór Atlason: Fór eins og við þorðum að vonaArnór Atlason átti fínan leik fyrir Íslands eins og strákarnir reyndar allir. Arnór skoraði tvö mörk en hann er ánægður með að mótið sé nú í raun Íslands að tapa. Strákarnir eru með þetta í sínum höndum og þurfa ekki að treysta á neinn annan en sjálfa sig. Það er auðvitað lang best. Það kom Arnóri á óvart hversu auðveldur leikurinn var.

26.01.2010 / 16:20

Rússar rotaðir frá fyrstu mínútu í Vín - Stórsigur Íslands

Rússar rotaðir frá fyrstu mínútu í Vín - Stórsigur ÍslandsÍsland átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Rússa af velli í dag í ójafnasta leik sem sést hefur á mótinu. Strákarnir hreinlega átu rússneska björninn með bestu lyst, lokatölur 30-38, Rússar kláruðu sinn leik gegn Dönum klukkan 9 í gærkvöldi og spiluðu því aðeins 18 klukkutímum seinna. Inni í þeim tíma er allur undirbúningur leikmanna fyrir Íslandsleikinn með tilheyrandi fundum, líklega þrír matmálstímar (matur eftir leik, morgunmatur og hádegismatur fyrir leik) og síðan svefn. Ísland fékk þó fjórum tímum meira í þetta verkefni. Það munaði miklu í dag.

26.01.2010 / 04:07

Guðmundur ánægður með leikinn gegn Króötum: Getum verið stolt af árangrinum

Guðmundur ánægður með leikinn gegn Króötum: Getum verið stolt af árangrinumGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að liðið geti verið stolt af árangri sínum í mótinu. Liðið er enn taplaust og er í fínni stöðu í milliriðlinum sínum. Guðmundur sagði eftir leikinn í gær að Króatar væru með eitt af fjórum sterkustu liðum á mótinu en að undirbúningur fyrir leikinn gegn Rússum í dag hafi byrjað fyrir löngu síðan.

26.01.2010 / 02:41

Ísland - Rússland í dag klukkan 15

Ísland - Rússland í dag klukkan 15Ísland spilar sinn annan leik í milliriðlinum í dag klukkan 15 að íslenskum tíma, gegn Rússum. Þeir eru með virkilega sterkt lið en ég sá þá leika gegn Dönu í gær. Þeir byrjuðu þann leik vel og komust í 3-1 en misstu boltann nokkrum sinnum klaufalega. Markmaður þeirra var góður og þeir eru klókir í sókninni og grimmir í vörninni.

26.01.2010 / 00:47

Logi dansaði með klappstýrunum

Logi dansaði með klappstýrunumLogi Geirsson skemmti sér vel í hálfleik í leiknum gegn Króötum í gær. Í hálfleik mæta yfirleitt alltaf ungar klappstýrur sem dansa af öllum sínum mætti í takt við hressandi tónlist. Logi var að hita upp en dansaði auðvitað aðeins með þeim.

25.01.2010 / 18:46

Guðjón Valur: Erfitt að spila svona mikið einum færri

Guðjón Valur: Erfitt að spila svona mikið einum færriGuðjón Valur Sigurðsson segir stöðu strákanna góða í mótinu eftir jafnteflið við Króata. Framundan er leikur við Rússa en þeir mæta Dönum nú rétt á eftir. Guðjón minnir á að Ísland á innbyrðisviðureign gegn Dönum en hann var svekktur eftir leikinn eins og aðrir eftir að yfir lauk. „Ég er eiginlega ekki sáttur með eitt stig. Ef maður lítur á þetta þannig að það sé erfitt að spila svona mikið einum færri eins og við gerðum í dag og þá sérstaklega í lokin."

25.01.2010 / 18:19

Sverre skilur eðlilega ekki brottrekstrana: Ætlum að rúlla yfir Rússana

Sverre skilur eðlilega ekki brottrekstrana: Ætlum að rúlla yfir RússanaSverre Jakobsson, sá mikli öðlingur, fékk á sig þrjár brottvísanir í leiknum, allar vafasamar. Hann skilur ekki frekar en ég af hverju hann fékk þær. Sverre er samt sem áður jákvæður og staðráðinn í því að rúlla yfir Rússana á morgun. Þa hrósuðu Króatar strákunum í hástert eftir leikinn og voru virkilega ánægðir með eitt stig.

25.01.2010 / 17:58

Róbert: Hlupum nokkrum sinnum á ósýnilega veggi

Róbert: Hlupum nokkrum sinnum á ósýnilega veggiRóbert Gunnarsson tók í svipaðan streng og Vignir hér fyrir neðan. Súrsætt stig gegn Króötum er niðurstaðan eftir flottan leik strákanna. Robbi var frábær í kvöld eins og allt mótið. Hann skoraði úr öllum skotum sínum, fiskaði víti, opnaði vörnina og hefur nánst ekki klikkað á skoti í mótinu.

25.01.2010 / 17:41

Vignir: Segir okkur það sem við vissum - Að við erum drullu góðir í handbolta

Vignir: Segir okkur það sem við vissum - Að við erum drullu góðir í handboltaStrákunum líður í raun eins og allri þjóðinni held ég - Auðvitað erum við ánægð með eitt stig gegn frábæru liði Króata og sérstaklega vegna þess að þeir áttu síðustu sóknina. En við erum líka svekkt með að ná ekki að tryggja okkur sigur í leik þar sem við vorum betri aðilinn nánast allan tímann.

25.01.2010 / 17:31

Jafntefli gegn Króötum: Frábær leikur Íslands

Jafntefli gegn Króötum: Frábær leikur ÍslandsÍsland er með fjögur stig í milliriðlinum eftir jafntefli við Króatíu í dag. Ég er enn að róa taugarnar eftir þessa síðustu sókn Króata. Björgvin, takk fyrir að verja þetta! 26-26 lokatölur. Eftir þetta er staða Íslands þannig að ef við vinnum báða leikina okkar erum við komnir í undanúrslit. Það er af því við eigum innbyrðisviðureign á Dani sem geta náð sama stigafjölda og Ísland með því að vinna alla sína leiki. Hægara sagt en gert samt sem áður!

25.01.2010 / 02:48

Guðmundur: Við ætlum okkur stóra hluti gegn Króötum

Guðmundur: Við ætlum okkur stóra hluti gegn KróötumEngar breytingar verða gerðar á leikmannahópi Íslands fyrir milliriðilinn en liðið leikur gegn Króatíu í dag klukkan 15. Allir leikmenn liðsins eru heilir og klárir í slaginn og undirbúningur hefur verið stífur fyrir landsliðsþjálfarann og hans teymi. Menn sofa oft lítið þegar svona stutt er á milli leikja en liðið virkaði einbeitt og klárt í slaginn þegar við hittum þá í gær. Við ræddum við Guðmund um undirbúning fyrir leikinn og lið Króata.

25.01.2010 / 01:49

Ísland - Króatía í dag klukkan 15

Ísland - Króatía í dag klukkan 15Andstæðingur Íslands í dag er Króatía, margföld verðlaunaþjóð sem er í efsta sæti í milliriðlinum okkar. Króatar hafa ekki enn tapað leik á mótinu en á heimavelli vann liðið sér inn silfurverðlaun á Heimsmeistaramótinu á síðasta ári. Króatar unnu Noreg 25-23, svo Úkraínu 28-25 og loks Rússa 30-28 í æsispennandi leik þar sem liðið tryggði sér sigur á lokamínútunni. Eins og sjá má hér neðst hefur gengi Króata á stórmótum undanfarin 16 ár almennt verið gott og liðið unnið til átta verðlauna.

25.01.2010 / 00:10

Tölfræði strákanna eftir milliriðilinn

Tölfræði strákanna eftir milliriðilinnÞað er alltaf hressandi að skoða tölfræði. Ég er reyndar ekki viss um hvað þeir sem taka tölfræðina hérna úti séu að spá oft á tíðum því þeir rugla ótrúlegustu hlutum saman. Það er samt gaman að skoða aðeins hvað strákarnir hafa verið að gera í leikjunum, hverjir hafa spilað hve lengi og annað slíkt. Guðjón Valur hefur hvílt í 12 sekúndur á mótinu og er hann markahæsti maður liðsins. Sverre er aftur á móti með bestu skotnýtinguna og kemur það engum á óvart.

24.01.2010 / 20:34

Logi Geirsson: Ísland á mig alveg inni í þessu móti

Logi Geirsson: Ísland á mig alveg inni í þessu mótiLogi Geirsson hefur ekki spilað mikið með landsliðinu í keppninni en sem fyrr er andinn í kappanum til gríðarlegrar fyrirmyndar og hann bíður eftir því að fá að sýna sig og sanna. Við ræddum við Loga á landsliðsæfingunni áðan og í einlægu og hugljúfu spjalli ræddum við um öxlina, framtíðina, stemninguna í hópnum, gönguferðir á ströndinni og Króata.

24.01.2010 / 20:17

Ásgeir Örn: Þurfum sömu vörn og gegn Dönum til að vinna Króata

Ásgeir Örn: Þurfum sömu vörn og gegn Dönum til að vinna KróataÁsgeir Örn Hallgrímsson hefur spilað vel með landsliðinu á mótinu og hann virtist vera í fantaformi á æfingunni í kvöld. Liðið tók sér góðan tíma í að stilla upp í þá vörn sem Króatar spila og æfðu vel leikaðferðir til að brjóta það á bak aftur. Sumir hafa haft á orði að Króatar hafi ekki verið jafn sannfærandi á mótinu og oft áður en Ásgeir varar við því að vanmeta liðið.

24.01.2010 / 19:55

Létt yfir leikmönnum á æfingu í kvöld - Myndir

Létt yfir leikmönnum á æfingu í kvöld - MyndirVið vorum að koma af æfingu íslenska landsliðsins í Vín en liðið er nú á leiðinni í mat. Það var einstaklega létt yfir strákunum og greinilegt er að stemningin í hópnum er mikil eftir frækinn sigur á Dönum. Eftir upphitun og ýmsar æfingar fór mikill tími í að æfa kerfi en Króatar, andstæðingar okkar á morgun, hafa verið kortlagðir í þaula. Við tókum nokkrar myndir á æfingunni og eins og myndböndin hér til hliðar sýna líka var létt yfir strákunum.

24.01.2010 / 16:22

Skráðu þig í liðið!

Skráðu þig í liðið!Ertu búinn að skrá þig í liðið? Í Blíðu og Stríðu er að safna í stuðningsmannalið landsliðsins og það eru engin takmörk á því hversu margir komast fyrir. Við hvetjum ykkur því til þess að skrá ykkur og sýna strákunum þannig stuðning hérna á siðunni uppi til hægri. Þeir hafa gaman af því að sjá kveðjurnar og finna fyrir stuðningnum.

24.01.2010 / 12:30

Stákarnir komnir til Vínarborgar - Svona lítur milliriðillinn út

Stákarnir komnir til Vínarborgar - Svona lítur milliriðillinn útÍsland hefur leik í milliriðli sínum á EM á morgun. Strákarnir borðuðu morgunmat á hótelinu í morgun og fóru svo með rútu til Vínar. Ferðin tók um tvo tíma. Þeir æfa svo klukkan 19 í kvöld að staðartíma, 18 að íslenskum tíma, og við munum kíkja á æfinguna og koma með fersk viðtöl á síðuna í kvöld. Smelltu á Lesa nánar til að skoða milliriðilinn okkar betur.

24.01.2010 / 10:27

Íslenskir stuðningsmenn frábærir í Linz í gærkvöldi

Íslenskir stuðningsmenn frábærir í Linz í gærkvöldiUm 100 Íslendingar voru á leiknum gegn Dönum í gærkvöldi. Þeir létu vel í sér heyra og yfirgnæfðu Danina á löngum köflum. Hér eru nokkrar myndir af stuðningsmönnunum frá leiknum, sem og í skemmtilegri stemningu eftir leikinn á Josefs Bar í Linz. Þá er einnig komið inn myndband þaðan úr stemningunni.

24.01.2010 / 02:15

Sverre datt í klúbbsamlokuna eftir leikinn - "Við fundum bara taktinn"

Sverre datt í klúbbsamlokuna eftir leikinn - "Við fundum bara taktinn"Sverre Jakobsson batt vörn Íslands saman ásamt Ingimundi Ingimundarsyni í leiknum gegn Dönum. Sverre komst líka fram og skoraði mark sem ég fékk hann til að segja mér frá. „Þetta er markið sem sneri leiknum. Innst inni þakka allir strákarnir mér fyrir þetta mark sem breytti öllu,“ sagði Sverre léttur en hann kom Íslandi í 2-0 í leiknum.

24.01.2010 / 02:15

Upplifðu sigurinn sæta gegn Dönum aftur

Upplifðu sigurinn sæta gegn Dönum afturHann Reynir Albert var með myndavélina á lofti í leiknum gegn Dönum. Reynir henti saman nokkrum myndum og bjó til skemmtilegt myndband um leikinn. Hægt er að sjá það í myndbandshorninu okkar hérna til hliðar. Allar fréttir okkar um leikinn má einnig lesa í Fréttir hér fyrir ofan.

24.01.2010 / 01:54

Arnór Atlason: Þessi sigur er meira en bara sigur fyrir okkur

Arnór Atlason: Þessi sigur er meira en bara sigur fyrir okkurArnór Atlason hefur verið jafn besti maður Íslands á mótinu. Þessi miklu öðlingsmaður, og norðanmaður, hefur átt frábæra leiki og þar sem hann spilar í Danmörku með FCK var sigurinn gegn Dönum enn sætari en ella. Ég ræddi við Arnór sem var í sigurvímu.

24.01.2010 / 01:39

Björgvin Páll: Þeir áttu aldrei séns í okkur

Björgvin Páll: Þeir áttu aldrei séns í okkurBjörgvin Páll Gústavsson var valinn maður leiksins af EHF en hann átti frábæran leik gegn Dönum. Bjöggi varði 19 skot samkvæmt minni talningu. Tæplega 50 prósent markvarsla hjá stráknum. Bjöggi segir að honum hafi liðið vel í leiknum. „Mér leið rosalega vel í leiknum. Alveg ógeðslega vel. Við undirbjuggum okkur fáránlega vel. Við vorum með tvö jafntefli á bakinu sem við áttum ekki skilið. Við vorum að spila frábærlega í dag, alveg frá fyrstu mínútu. Þeir eiga aldrei séns í okkur.“

23.01.2010 / 22:25

Guðmundur: Hef aldrei horft jafn mikið á myndbönd og fyrir þennan leik

Guðmundur: Hef aldrei horft jafn mikið á myndbönd og fyrir þennan leikGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði eftir sigurinn gegn Dönum að sér liði afskaplega vel. Ekki er það skrýtið. Það var létt yfir Guðmundi á blaðamannafundi eftir leikinn en Ulrik Wibek þjálfari Dana var ekki jafn hress. Ég ræddi við Guðmund eftir fundinn en hann segist aldrei hafa horft jafn mikið á myndbönd og fyrir þennan leik. Liðið kom enda frábærlega undirbúið til leiks. "Þetta er stórkostlegt. Það er mikilvægt að vinna réttu leikina,“ sagði Guðmundur og hló við.

23.01.2010 / 22:12

Guðjón Valur: Þetta var mikil brjálæði en mikill agi líka

Guðjón Valur: Þetta var mikil brjálæði en mikill agi líkaGuðjón Valur Sigurðsson átti eflaust skrýtinn dag eins og lesa má í viðtalinu við hann en hann var kampakátur í leikslok og var sérstaklega ánægður með stuðninginn í höllinni. Hann segir ekkert hafa breyst í rútínunni fyrir leikinn í kvöld.

23.01.2010 / 22:11

Alexander ætlar í kók og súkkulaði í verðlaun - Vissum að við myndum vinna

Alexander ætlar í kók og súkkulaði í verðlaun - Vissum að við myndum vinnaAlexander Petersson var frábær í kvöld eins og allt liðið. En hvernig leið honum inni á vellinum? "Mér leið alveg frábærlega. Við vissum alveg að við myndum vinna þennan leik. Við sýndum hvað Ísland getur. Þetta var hið rétta íslenska landslið. Þessi vörn gekk ótrúlega vel. Núna er það bara að slappa aðeins af en við erum ekkert búnir að hugsa neitt lengra en það. Gummi er kannski byrjaður að hugsa lengra en það en við erum bara að fara að fá okkur kók og súkkulaði í verðlaun.“

23.01.2010 / 21:41

Snorri Steinn: Það þarf karakter til að vinna sig svona upp eftir vikuna

Snorri Steinn: Það þarf karakter til að vinna sig svona upp eftir vikunaÞað er gaman að skrifa upp viðtöl við strákana eftir leikinn og heyra í stuðningsmönnum Ísland sem eru enn að syngja og tralla hér í höllinni. Hér getur þú lesið hvað Snorri Steinn og Ásgeir Örn höfðu að segja eftir leikinn.

23.01.2010 / 21:28

Ísland rústaði Evrópumeisturum Dana

Ísland rústaði Evrópumeisturum DanaÉg segi bara fyrst af öllu: JÉSSSSSSSSS!!!!!! Mikið var þetta óaðfinnanlega æðislegur sigur á Dönum. Frændum okkar sem margir hreinlega þola ekki. Hrokinn í þeim gerir þennan sigur enn sætari fyrir vikið. Það var ekki leiðinlegt að vera í Linz í kvöld, ég er búinn að vera að taka viðtöl við strákana og það er hreint út sagt yndislegt að sjá gleðina í þeim og öllum íslendingunum hér. Strákarnir eru núna inni á vellinum fyrir framan mig að skokka sig niður, hlæjandi og brosandi. Lífið er yndislegt í kvöld og á morgun hefst alvaran aftur. Strákarnir spila strax á mánudaginn og svo aftur á þriðjudaginn.

23.01.2010 / 19:38

Besta kveðjan!

Besta kveðjan! Besta kveðjan! Nú hafa um þúsund manns sent landsliðsstrákunum kveðju í gegnum ibs.is og þær eru hver annarri skemmtilegri. Dómnefnd Icelandair hefur valið þá allra bestu af mörgum frábærum og fyrstu verðlaun hlýtur Rebekka Skarphéðinsdóttir, fyrir þessa yndislegu kveðju. Hún hlýtur flugmiða fyrir tvo til eins af áfangastöðum Icelandair í verðlaun. Fleiri verðlaun verða svo veitt á næstu dögum, svo það er um að gera að senda strákunum skemmtilegar kveðjur!

23.01.2010 / 18:18

Ísland komið í milliriðilinn á EM - Dagur hylltur af íslendingum

Ísland komið í milliriðilinn á EM - Dagur hylltur af íslendingumÍsland er komið áfram í milliriðilinn á EM og er þar með fyrsta markmiði liðsins náð. Þetta varð ljóst eftir að Austurríki vann Serba í geðsjúkri stemningu hér í Linz. Serbar verða þar með alltaf neðstir í riðlinum. Nú er bara spurning hvort Ísland komist með eitt, tvö eða þrjú stig upp í milliriðilinn, það kemur í ljós eftir leikinn sem hefst klukkan 19.15. Í Blíðu og Stríðu óskar svo Degi Sigurðssyni innilega til hamingju með frábæran árangur hans manna á EM.

23.01.2010 / 13:57

Íslendingar styðja Austurríki og Ísland í kvöld

Íslendingar styðja Austurríki og Ísland í kvöldUm 100 Íslendingar munu sjá leik Íslands og Danmerkur í kvöld hér í Linz í Tips-Arena. Nokkur fjöldi þeirra ætlar að mæta snemma og sjá leik Austurríkis og Serba. Þeir ætla að styðja Austurríki til sigurs og vonast þannig eftir að Austurríkismenn styðji Ísland gegn Dönum. Yfir 1000 Danir verða á leiknum og því veitir ekki af smá aðstoð. Austurríkismenn voru á bandi Íslands gegn Serbíu og vonandi verður sami háttur á í kvöld. Uppselt er á leikina.

23.01.2010 / 05:13

Sverre: Við erum sært dýr og lækningin er að vinna Dani

Sverre: Við erum sært dýr og lækningin er að vinna DaniSverre Jakobsson myndar tvíeykið með Ingimundi Ingimundarsyni í hjarta íslensku varnarinnar. Ég talaði við þá báða og þeir voru báðir ákveðnir í að bæta upp fyrir að Ísland fékk á sig 37 mörk gegn Austurríki í síðasta leik. Strákarnir ætla sér að stöðva Danina í úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Danir eru komnir áfram en Ísland getur enn setið eftir, ef Serbía og Austurríki gera 38-38 jafntefli, eða með hærri mörkum. Með sigri vinnur Ísland riðilinn og fer í milliriðil með þrjú stig.

23.01.2010 / 04:49

Úrslitaleikur við Dani í kvöld

Úrslitaleikur við Dani í kvöldStrákarnir okkar eru komnir með bakið upp við vegg. Ég held að við viljum bara hafa þá þannig. Það er einn leikur eftir í riðlakeppninni og það yrði hreint fáránlegt ef Ísland er ekki komið áfram fyrir þann leik. Ísland er komið áfram nema Austurríki og Serbía gera jafntefli og skori 37 mark á lið í því jafntefli, eða fleiri mörk.

23.01.2010 / 02:26

Guðmundur: Ótrúlegt hvað er stutt á milli í mótinu

Guðmundur: Ótrúlegt hvað er stutt á milli í mótinuGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur undirbúið liðið af kappkosti fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld. Settur var punktur fyrir aftan leikinn gegn Austurríki strax um kvöldið og þá hófst undirbúningur fyrir Danaleikinn.

23.01.2010 / 01:15

Pétur Jóhann með Audda í kvöld

Pétur Jóhann með Audda í kvöldStrákarnir okkar hafa fengið yfir 1000 kveðjur frá ykkur, frábæru stuðningsmenn. Ég veit að strákarnir kíkja reglulega á síðuna og finna svo sannarlega fyrir stuðningnum. Haldið því áfram að senda kveðjur! Í kvöld mun Pétur Jóhann Sigfússon svo aðstoða Audda við lýsingu á leiknum gegn Dönum sem hægt er að horfa á hér á síðunni meðan á leiknum stendur.

22.01.2010 / 16:25

Ingimundur: Með fínpússningu eru okkur allir vegir færir

Ingimundur: Með fínpússningu eru okkur allir vegir færirVið kíktum upp á hótel til strákanna áðan og fengum að ræða við þá í rólegheitunum. Við blaðamenn erum í skýjunum yfir þessu fyrirkomulagi, við getum rætt við strákanna án þess að vera að trufla þá mikið og þeir geta haft sína hentisemi eftir æfingar í stað þess að lenda í gini blaðamanna með diktafóna og myndavélar á lofti.

22.01.2010 / 15:38

HSÍ vill fá skýringar frá EHF

HSÍ vill fá skýringar frá EHFEinar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í samtali við okkur í dag að sambandið væri búið að tala við handknattleikssamband Evrópu til að fá skýringar á ótrúlegri dómgæslu í leiknum gegn Austurríki í gær.

22.01.2010 / 14:57

Dagur Sigurðsson: Þetta er Ebay efni

Dagur Sigurðsson: Þetta er Ebay efniÍ fórum okkar fundust merkilegar myndir fyrir skömmu síðan. Það eru hvorki meira né minna en Mark myndirnar sem gefnar voru út frá árinu 1993. Hægt var að safna handboltamyndunum og er ljóst að einhverjir voru duglegir að safna.

22.01.2010 / 09:32

Ekki fyrir viðkvæma: Ótrúlegt jöfnunarmark Austurríkis í myndum

Ekki fyrir viðkvæma: Ótrúlegt jöfnunarmark Austurríkis í myndumJöfnunarmark Austurríkis gegn Íslandi í gær var með hreint ævintýralegum ólíkindum. Rétt eins og allar 50 síðustu sekúndurnar í leiknum. Reynir Albert náði frábærum myndum af markinu þrátt fyrir að vera bæði með lélegustu myndavélina og lélegustu linsuna af öllum ljósmyndurum í kringum völlinn. Það er auðvitað notkunin á græjunum sem skiptir máli! Með trega ákváðum við að setja myndirnar hér inn, það er bara ekki annað hægt. Hér er sagan af síðustu fjórtán sekúndum leiksins gegn Austurríki:

22.01.2010 / 04:10

Skópörin geymd á ganginum vegna lyktarinnar

Skópörin geymd á ganginum vegna lyktarinnarStrákarnir okkar gista á fjórðu hæð Marriott hótelsins hér í Linz. Það er athyglisvert um að lítast á ganginum, en hann er fullur af skóm fyrir utan hurðarnar. Ástæðan fyrir því? Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur svarið við því. „Það er bara lyktin, það væri ekki líft inni í herbergjunum þeirra ef skórnir væru ekki frammi,“ sagði Guðmundur. Róbert Gunnarsson tók undir það en ég get staðfest að lyktin af skónum náði ekki inn í herbergið þeirra.

21.01.2010 / 20:48

Staðan hjá strákunum okkar

Staðan hjá strákunum okkarSvona er staðan hjá strákunum okkar:

21.01.2010 / 20:18

Ólafur Stefánsson: Ekkert annað í stöðunni en að taka Danina

Ólafur Stefánsson: Ekkert annað í stöðunni en að taka DaninaÓlafur Stefánsson skoraði sjö mörk úr aðeins níu skotum í kvöld og fyrirliðinn skoraði oft á tíðum ansi mikilvæg mörk. „Við vorum með þetta í höndunum og misstum þetta niður, það er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Ólafur.

21.01.2010 / 19:54

Arnór Atlason: Gerðum allt vitlaust sem við gátum gert undir lokin

Arnór Atlason: Gerðum allt vitlaust sem við gátum gert undir lokinArnór Atlason var valinn besti maður leiksins en hann var frábær í leiknum. Skoraði níu góð mörk og tók oft á skarið þegar öll sund virtust lokuð. "Ég veit ekki hvað ég á að segja. Við gerðum allt vitlaust sem við gátum gert. Ég fæ tvö mörk yfir mig í lokin, við vorum kannski of passívir að reyna ekki að fá á okkur tvær mínútur. Við köstum boltanum í burtu og dómararnir stoppa tímann fyrir þá en ekki okkur undir lokin."

21.01.2010 / 19:46

Snorri Steinn: Veit ekki hvað gerðist á lokamínútunni

Snorri Steinn: Veit ekki hvað gerðist á lokamínútunniÞað var erfitt að taka viðtöl við strákana eftir leikinn. Eftir svona atburð skynjar maður að menn langar eðlilega bara beint heim á hótel að hugsa um leikinn og fara svo að sofa. Snorri Steinn sagðist hreinlega ekki vita hvað gerðist þessa síðustu mínútur. „Þær eru hræðilegar núna úr því að við töpuðum þessu,“ en rétt eins og gegn Serbíu fannst strákunum þeir hreinlega hafa tapað leiknum. „Við vorum bara með þetta í okkar höndum. Gaui klikkar á færi undir lokin, hann var óheppinn og þetta datt ekki fyrir hann. Við hefðum klárað leikinn með því að skora þar og síðasta sóknin er bara eins og hún var. Ég veit ekki hvað þeir dæmdu á Óla eða hvort að það hafi verið rétt eða ekki.

21.01.2010 / 19:21

Ótrúlegur endir og annað jafntefli niðurstaðan

Ótrúlegur endir og annað jafntefli niðurstaðanFyrst góðan fréttir til að róa taugarnar: Annaðhvort jafnteflið mun á endanum í raun ekki skipta neinu máli. Ísland getur enn farið með þrjú stig inn í milliriðilinn. Með sigri á Dönum skiptir ekki máli hvernig Serbía-Austurríki fer. Ísland fer þá áfram með þrjú stig. Svo skipta leikirnir sem Serbía á eftir máli en ef Austurríki vinnur ekki Serbíu í lokaleiknum kemst Ísland áfram. Reyndar gæti Ísland komist áfram líka á því að ef Danir vinna Serba núna, og þeir eru 7-3 yfir eftir 10 mínútur, þá eru annaðhvort Serbía og Austurríki eftir. Nema þá að Ísland tapi fyrir Dönum með meiri mun en Austurríki (fjögur mörk) eða þá með meiri mun en Serbía, tapi það í kvöld.

21.01.2010 / 15:51

Uppselt á leikinn og Ísland í rauðum búningum

Uppselt á leikinn og Ísland í rauðum búningumÍsland leikur í rauðum búningum í kvöld gegn heimamönnum í Austurríki sem leika í hvítum búningum. Hefð er fyrir því að skipta svona um búninga og því spilar Ísland í bláu gegn Dönum á laugardag. Áhorfendur eru þegar farnir að koma sér fyrir í höllinni, nú þegar rúmur klukkutími er í leik. Þeir eru byrjaðir að hrópa og kalla en leikmenn eru að hefja upphitun fyrir leikinn. Uppselt er á leikinn og því verða um 5500 manns í stúkunni, minnihluti á bandi Íslands en það verða eflaust um 50 manns. Myndin sýnir útsýnið úr blaðamannastúkunni þar sem við sitjum nú. ÁFRAM ÍSLAND!!!

21.01.2010 / 13:21

Strákarnir senda ykkur kveðjur á ÍBS

Strákarnir senda ykkur kveðjur á ÍBSStrákarnir í landsliðinu eru að senda ykkur kveðjur og þakka þannig fyrir stuðninginn sem þið eruð að sína liðinu. Kíkið á Strákana okkar hér á síðunni og sjáið nokkra leikmenn senda kveðjur, en allir leikmennirnir verða búnir að henda inn kveðju um helgina.

21.01.2010 / 07:07

Snorri Steinn er sáttur með hótellífið og bíður spenntur eftir leiknum í dag

Snorri Steinn er sáttur með hótellífið og bíður spenntur eftir leiknum í dagSnorri Steinn Guðjónsson sáttur með hótellífið í Austurríki. Liðið hefur ekki mikinn frítíma og þarf að eyða ansi miklum tíma á hótelinu og þarf þar að finna sér eitthvað til að dunda við á milli funda, máltíða, æfinga, sjúkrameðferðar og leikja. Það gengur misvel. "Hótellífið er eiginlega bara eins og alltaf og gengur og gerist. Þetta er fínt hótel og maturinn er ágætur. Annars er þetta bara fundur og æfing og svo les maður eða horfir á ræmu og hlustar á tónlist. Svo flakkar maður á milli herbergja og spjallar við strákana, það er góð stemning á ganginum,“ sagði Snorri. Hann og Róbert Gunnarsson, herbergisfélagi hans, voru þó sammála um að það vantaði alveg styrktaraðila til að lána liðinu leikjatölvur og fleira slíkt til að dunda sér með. Auglýsist hér með eftir því, ekki viljum við að strákunum leiðist á stórmótunum.

21.01.2010 / 05:59

Dagur Sigurðsson: Skil ekki af hverju ég var ekki valinn í íslenska landsliðið

Dagur Sigurðsson: Skil ekki af hverju ég var ekki valinn í íslenska landsliðiðÍsland mætir Austurríki í öðrum leik liðanna á EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 16.15 að íslenskum tíma, klukkutíma síðar hér í Austurríki. Dagur Sigurðsson þjálfar eins og allir vita landslið Austurríkis og við hittum hann á blaðamannafundi liðsins í gær. Dagur er einstaklega hress og mikill húmoristi. Hann er bjartsýnn fyrir leikinn í dag.

21.01.2010 / 05:25

Ísland - Austurríki í dag klukkan 17.00

Ísland - Austurríki í dag klukkan 17.00Seinni partinn í dag mætir Ísland liði Austurríkis á öðrum leikdegi á EM hér í Linz. Strákarnir eru allir heilir eftir leikinn gegn Serbum og æfinguna í gær. Leikurinn hefst klukkan 16. 15 að íslenskum tíma. Ég sá Austurríki spila við Dani og þeir eru með ágætt lið. Danirnir fannst mér reyndar ekki spila vel en heimamenn eru staðráðnir í að standa sig á heimavelli. Nánast uppselt er á leikinn.

21.01.2010 / 02:46

Leikmaður Austurríkis: Dagur getur gaukað aukapunktum um Ísland að okkur

Leikmaður Austurríkis: Dagur getur gaukað aukapunktum um Ísland að okkurPatrick Fölser leikmaður austurríska landsliðsins virtist ekkert allof bjartsýnn fyrir leikinn gegn Íslandi þegar við ræddum við hann um leikinn. Fölser er ágætasti leikmaður og hinn hressasti. Hann spilar með Düsseldorf í Þýskalandi og hefur spilað 168 landsleiki. „Íslenska liðið hefur verið að spila mjög vel. Þeir hafa verið að spila mjög vel. Við sáum leikina gegn Þjóðverjum og heyrðum af hinum leikjunum. Liðið er frábært. Það varð í öðru sæti á Ólympíuleikunum og við vitum hversu góðir þeir eru en við verðum að finna leiðir til að vinna þá."

20.01.2010 / 18:35

Ólafur Guðmundsson: Nýliðinn lærir og nýtur lífsins með landsliðinu

Ólafur Guðmundsson: Nýliðinn lærir og nýtur lífsins með landsliðinuÓlafur Guðmundsson er nýliði í íslenska landsliðinu en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann reynslu frá stórmótum yngri landsliðanna. Hann spilar með FH í N-1 deildinni heima á Íslandi og er hreinlega ekki að hata lífið með landsliðinu. Eðlilega. Við ræddum við Ólaf á hóteli strákanna fyrr í dag.

20.01.2010 / 18:02

Landsliðið á æfingu - Allir heilir

Landsliðið á æfingu - Allir heilirStrákarnir okkar eru að klára æfingu hér í Tips-Arena í Linz. Við erum á staðnum og ég ræddi aðeins við Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóra HSÍ. Hann segir að allir leikmenn liðsins séu heilir og klárir í slaginn á morgun. Liðið tók góða æfingu og er nú á leið upp á hótel í mat. Í kvöld verður svo fundur um leikinn gegn Austurríki á morgun. Við tókum örfáar myndir á æfingunni sem sjá má hér í fréttinni.

20.01.2010 / 16:11

Alexander Petersson: Það eru allir hressir núna

Alexander Petersson: Það eru allir hressir núnaAlexander Petersson er staðráðinn í því eins og strákarnir að mæta tvíefldur til leiks á morgun gegn Austurríki. Við tókum tal á honum á hóteli strákanna í dag. „Við vorum mjög svekktir eftir leikinn gegn Serbíu tapa svona stigi. En það er aldrei gaman þegar maður lendir í þessu. Við vorum að hugsa „hvað var að gerast og hvernig gerðist þetta“ alveg til þrjú í nótt held ég. En maður verður bara að læra af þessu og sjá hvað fór úrskeiðis. Nú gleymum við þessu bara og hugsum um næsta leik. Þetta er bara búið,“ segir Alex sem líður vel á hótelinu.

20.01.2010 / 15:13

Björgvin Páll: Lét húðflúra Ísland á hendina á sér

Björgvin Páll: Lét húðflúra Ísland á hendina á sérBjörgvin Páll Gústavsson markmaður er nýbúinn að fá sér glæsilegt húðflúr á hægri höndina. Við urðum að taka Bjögga tali um blekið sem skartar meðal annars íslenska fánanum eins og sjá má á myndunum. „Þetta er draumur sem hefur blundað í mér lengi. Þetta hefur verið lengi í bígerð. Það er falin skrift hérna og þar stendur CRETO sem þýðir "ég trúi" á latínu. Það lýsir mér bara vel. Ég trúi á Guð og á sjálfan mig og á handboltann og bara allt bara. Ef þú trúir ekki á sjálfan þig trúir enginn á þig,“ sagði Björgvin þegar ég bað hann um að lýsa flúrinu.

20.01.2010 / 12:53

Arnór Atlason: Tekur alltaf heljarinnar tíma að sofna eftir svona leiki

Arnór Atlason: Tekur alltaf heljarinnar tíma að sofna eftir svona leikiNorðlendingurinn Arnór Atlason minnir okkur á að við getum enn farið með fjögur stig upp í milliriðil á EM. Strákarnir voru að koma af fundi þegar við hittum þá uppi á hóteli í dag. Arnór segir stemninguna innan hópsins góða og það var létt yfir strákunum þegar við spjölluðum við þá. Eins og sjá má á myndinni af Arnóri láta strákarnir fara vel um sig á milli æfinga og funda og var stemningin heimilisleg og góð.

20.01.2010 / 11:22

Dagur Sigurðsson: Ég hef trú á þessu

Dagur Sigurðsson: Ég hef trú á þessuEvrópumótið í Austurríki fær svona hæfilega mikla umfjöllun hér í bæ. Við höfum ekki séð mótið auglýst mikið en þó var nánast uppselt á leik Austurríkis og Danmerkur og um 5000 manns mættu á leik Íslands og Serbíu í gær. Dagur Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, þjálfar landslið Austurríkis. Liðið gerði vel gegn Dönum í gær og verður gaman að sjá Dag mæta Íslandi á morgun. Við spjölluðum við Dag um mótið en myndbandsviðtal við hann um leikinn gegn Íslandi birtist hér á morgun.

20.01.2010 / 09:39

Ísland er með næst reynslumesta liðið á EM og það léttasta

Ísland er með næst reynslumesta liðið á EM og það léttastaÞað er hressandi að skoða tölfræði yfir leikmannahópa liðanna á EM hér í Austurríki. Ísland er með léttasta liðið samkvæmt tölfræðinni, ásamt fleiri liðum. Skoðað er meðaltal allra leikmanna og koma þar nokkrir áhugaverðir hlutir í ljós.

19.01.2010 / 22:23

Stuðningsmenn Íslands frábærir í Linz

Stuðningsmenn Íslands frábærir í LinzÞað vantaði ekki stemninguna hjá íslensku áhorfendunum sem eru hér í Linz að fylgjast með EM. Íslendingarnir voru yfir 50 talsins og létu vel í sér heyra. Alls voru 5000 manns í höllinni og fyrir utan ágætan hóp Serba virtist fólk almennt styðja Ísland. Reynir Albert var með myndavélina á lofti og fangaði stemninguna hjá fólkinu á leiknum.

19.01.2010 / 22:20

Guðmundur: Þetta þjappar liðinu bara enn betur saman

Guðmundur: Þetta þjappar liðinu bara enn betur samanGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að jafnteflið gegn Serbum þjappi liðinu bara enn betur saman og nú taki við næsta verkefni sem er alveg jafn mikilvægt. Austurríki er andstæðingurinn á fimmtudaginn og nú fer einbeitingin öll á þann leik. Guðmundur hafði þetta að segja eftir leikinn.

19.01.2010 / 22:02

Róbert: Eitt stig getur alveg fleygt okkur áfram í þessari keppni

Róbert: Eitt stig getur alveg fleygt okkur áfram í þessari keppniRóbert Gunnarsson og Sverre Jakobsson voru báðir svekktir með jafnteflið, eins og auðvitað allir. Báðir fundu þó að sjálfsögðu ljósa punkta í leiknum. „Ég er svekktur. Það er voðalega lítið annað að segja. Við vorum auðvitað með leikinn í höndunum en glutrum honum frá okkur. Það var ekkert bara undi lokin heldur allan leikinn og það er auðvitað bara virkilega leiðinlegt að svona hafi farið."

19.01.2010 / 21:56

Snorri Steinn: Við eigum fullt inni

Snorri Steinn: Við eigum fullt inniSnorri Steinn steig upp að loknum venjulegum leiktíma og tók vítið sem Ísland fékk. Hann var augljóslega manna svekktastur eftir leikinn en fær virkilega stóran plús fyrir að vera klár í öll viðtöl og hann bar sig vel kappinn. „Það er engin spurning að þetta er bara eins og að tapa. Við vorum yfir allan leikinn og ég klúðraði þessu víti í lokin. Þetta var lélegt víti. Vörnin var frábær í fyrri hálfleik en ekki seinni hálfleik. Mér finnst við eiga fullt inni. Það er svekkjandi að eiga svona mikið inni. Við hefðum alltaf þurft að klára hina leikina hvort sem er og þetta breytir því ekkert. Við einblínum núna bara á Austurríkismennina sem spiluðu virkilega vel gegn Dönum í kvöld.“

19.01.2010 / 21:21

Jafntefli gegn Serbum í fyrsta leik á EM

Jafntefli gegn Serbum í fyrsta leik á EMÍsland gerði jafntefli við Serbíu í fyrsta leiknum okkar á EM í Austurríki. Við töpuðum ekki, þó svo að það sé hugur margra sem horfðu á leikinn. En þetta stig getur gert fína hluti fyrir okkur og nú er auðvitað bara að vinna Austurríkismenn og svo Dani. Jafnteflið er engum einum að kenna, liðið spilaði frábærlega á köflum en datt aðeins niður inn á milli. Svona er handboltinn einfaldlega! 29-29 lokatölur.

19.01.2010 / 18:58

Lærisveinar Dags léku vel gegn Dönum en töpuðu naumlega

Lærisveinar Dags léku vel gegn Dönum en töpuðu naumlegaDagur Sigurðsson getur verið nokkuð ánægður með leik sinna manna í dag en Austurríki stóð lengi vel í Dönum en tapaði að lokum 33-29. Það var nánast setið í öllum sætum hér í Tips-Arena í dag og stemningin var góð.

19.01.2010 / 10:40

Ólafur Guðmundsson hvíldur í kvöld

Ólafur Guðmundsson hvíldur í kvöldNýliðinn Ólafur Guðmundsson hvílir í leiknum gegn Serbíu í kvöld. Guðmundur þjálfari má hafa sextán leikmenn á skýrslu, sem er nýlunda á EM, en hann hefur þá fimmtán leikmenn gegn Serbum. Guðmundur má þá ennþá kalla inn í hópinn hvaða leikmann sem er ef einhver myndi til að mynda meiðast. Landsliðið tók létta æfingu í morgun, fer síðan í hádegismat og slappar svo af fram að leik.

19.01.2010 / 05:06

Ísland - Serbía í kvöld

Ísland - Serbía í kvöldStrákarnir okkar mæta Serbum í kvöld á fyrsta keppnisegi EM í handbolta. Mikil spenna er hjá strákunum að ná loks að hefja leik og þeir eru allir klárir í slaginn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 að íslenskum tíma. Serbar voru partur af gömlu Júgóslavíu þangað til 2006 þegar það skildi við Serbíu og Svartfjallaland og er þetta fyrsta stórmót liðsins síðan það fékk sjálfstæði. Íslandi hefur oft gengið vel með liðin frá austrinu og er vonandi að framhald verði á í kvöld.

19.01.2010 / 04:45

Guðjón Valur: Við erum allir heilir og til í slaginn

Guðjón Valur: Við erum allir heilir og til í slaginnGuðjón Valur Sigurðsson er einn af lykilmönnum landsliðsins og hann var brattur og hress á æfingunni áðan. „Mér líður vel fyrir mótið. Við höfum verið að bíða eftir þessu undanfarna daga og vikur og það er gaman að það sé loksins komið að þessu. Mér finnst undirbúningurinn hafa gengið vel, við höfum unið Þjóðverja, Spán og Portúgal. Í gær gegn Frökkum horfðum við frekar á að komast heilir frá leiknum, hann var frekar rólegur. En allir menn virðast vera heilir og til í slaginn,“ sagði Guðjón.

19.01.2010 / 02:06

Einar keyrði í tíu tíma og sparaði HSÍ yfir milljón krónur

Einar keyrði í tíu tíma og sparaði HSÍ yfir milljón krónurEinar Þorvarðarson tók svo sannarlega einn fyrir liðið eins og sagt er í gær. Hann ákvað þá að spara HSÍ rúmlega eina milljón króna sem það hefði þurft að borga annars í yfirvigt í flugi sínu frá Frakklandi til Austurríkis. Einar keyrði yfir 1100 kílómetra og tók það um 10 tíma. „Það hlupu níu villisvín fyrir bílinn á leiðinni, það munaði engu að ég næði því síðasta,“ sagði Einar sem var þó hinn hressasti eftir keyrsluna. Tímakaup HSÍ var þar með rúmlega 100 þúsund krónur á klukkutímann.

18.01.2010 / 19:37

Björgvin Páll: Gerum sjálfir miklar væntingar til okkar

Björgvin Páll: Gerum sjálfir miklar væntingar til okkarBjörgvin Páll Gústafsson hefur spilað vel í íslenska markinu að undanförnu. Mikilvægt er að markmenn liðsins verji vel í mótinu en margir hafa oft orð á því að markvarslan sé akkilesarhæll landsliðsins. Það ætti ekki að vera uppi á teningnum núna. Báðir markmenn Íslands núna er atvinnumenn í Evrópu og líta þeir báðir mjög vel út. Bæði hvað varðar handboltann sjálfan en þeir eru einnig fjallmyndarlegir.

18.01.2010 / 19:19

Gott ástand á leikmönnum Íslands

Gott ástand á leikmönnum ÍslandsÁstandið á leikmönnum liðsins fyrir leikinn gegn Serbum á morgun er nokkuð gott. Aron Pálmarsson tók fullan þátt í æfingunni en hann var hvíldur alveg um helgina vegna smávægilegra meiðsla. Hann ætti að vera klár í slaginn á morgun. Logi Geirsson skaut sem óður maður á æfingunni og virtist vera í fínu standi. Hann hefur aðeins verið að hlífa öxlinni en byssurnar virkuðu funheitar. Hann æfði skotin sérstaklega og sagði á æfingunni að hann væri hreinlega æstur í að fá að prófa að skjóta. Hann ætti því að vera klár líka. Annars er ástandið á mönnum gott og menn voru einbeittir að verkefninu en um leið hressir. Alveg eins og það á að vera.

18.01.2010 / 18:31

Sjaldséð markalaust jafntefli í Ungir vs. Gamlir

Sjaldséð markalaust jafntefli í Ungir vs. GamlirÞað sáust ekki miklir taktar í upphitun íslenska landsliðsins áðan, nema þá frá Alexander Peterssyni sem stóð í markinu hjá Gömlum. Eftir hefðinni er skipt í Ungir vs. Gamlir í upphituninni og spilaður er fótbolti. Oft er mikil barátta í þessum leikjum en menn eru þó að passa sig að meiðast ekki. Leikurinn var þó nokkuð skemmtilegur á að horfa en Alexander varði nokkrum sinnum glæsilega. Íshokkímarkmaður mikill en hann sá eiginlega til þess að unga liðið væri ekki í forystu. Ungir nenntu þó lítið að spila vörn en það kom ekki að sök.

18.01.2010 / 14:17

Gengi Íslands á stórmótum

Gengi Íslands á stórmótumÍsland hefur á undanförnum 16 árum tekið þátt í 13 af þeim 20 stórmótum sem haldin hafa verið, það er Evrópumót, Heimsmeistaramót og Ólympíuleikar. Ísland tók ekki þátt í HM í Króatíu á síðasta ári en þar áður tók liðið þátt í 10 stórmótum í röð.

18.01.2010 / 13:13

Ekki uppselt á neinn leik í riðlinum

Ekki uppselt á neinn leik í riðlinumÁfangastaður íslenska landsliðið í Austurríki er Linz, um 190 þúsund manna bær í norðurhluta Austurríkis. Íslenska liðið kom hingað í nótt og mun æfa síðar í dag. Við verðum að sjálfsögðu á þeirri æfingu. Linz er annars skemmtilega byggð borg, hún er byggð á nokkrum hæðum og Dóná rennur í gegnum borgina. Linz er iðnaðarborg en er þó að breytast að sögn heimamanna og er menningin hér einnig fyrirferðarmikil.

18.01.2010 / 07:41

Sigfús Sigurðsson: Kominn tími til að sýna Dönum hvar konungsríkið er

Sigfús Sigurðsson: Kominn tími til að sýna Dönum hvar konungsríkið erSigfús Sigurðsson er einn af silfurdrengjunum okkar en hann er eini leikmaðurinn sem vann silfur sem er ekki í landsliðinu núna. Þessi öðlingsdrengur á í vandræðum með skrokkinn á sér en er að komast á ról og ætlar sér greinilega að vera á toppnum eftir nokkra mánuði. Við hittum Fúsa eftir æfingu hjá fjórða flokki kvenna í Val en hann þjálfar nú liðið og er á kórréttri leið með það samkvæmt heimildum síðunnar. Við spurðum fyrst um riðil Íslands sem margir vilja meina að sé léttari en oft áður.

18.01.2010 / 03:37

Íslenska landsliðið er mætt til Linz í Austurríki

Íslenska landsliðið er mætt til Linz í AusturríkiStrákarnir í íslenska landsliðinu komu í nótt til Linz í Austurríki eftir að hafa ferðast frá Frakklandi af æfingamótinu sem það spilaði í um helgina. Þess má geta að Ólafur Stefánsson var valinn maður mótsins. Liðið mun æfa í dag en Í Blíðu og Stríðu kom einnig í gær til Linz. Hér dveljum við í góðu yfirlæti en á morgun hefst svo mótið sjálft.

17.01.2010 / 23:09

Tíu marka tap gegn Frökkum

Tíu marka tap gegn FrökkumÍsland tapaði fyrir Frakklandi í dag í æfingamótinu sem fór fram í París. Lokatölur 35-25 fyrir heimamönnum en það var nýliðinn Ólafur Guðmundsson sem var markahæstur í leiknum með sex mörk. Vel gert hjá stráknum. Á Vísi.is kemur fram að Frakkar byrjuðu leikinn betur og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik en íslenska liðið náði að minnka muninn niður í eitt mark áður en Frakkar skoruðu þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiksins. Frakkar leiddu 17-13 í hálfleik og unnu svo öruggan sigur. Ólafur skoraði mörkin sín sex úr tól skotum en Alexander Petersson skoraði fimm mörk og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson fjögur mörk hvor. Hreiðar Levý Guðmundsson var'i islenska markið allan tímann og varði ellefu bolta.

17.01.2010 / 11:02

Egill Þykki Einarsson: Dagur Sig. spókar sig ekkert í bænum ef hann vinnur Ísland

Egill Þykki Einarsson: Dagur Sig. spókar sig ekkert í bænum ef hann vinnur ÍslandEgill Þykki Einarsson, oft kenndur við Gillz, tók vel á móti okkur strákunum í gær þegar við kíktum á hann í Sporthúsinu. Þykki er handboltaáhugamaður mikill og lýsir landsliðinu og strákunum okkar sem eins konar sameiningartákni þjóðarinnar. Við ræddum við Þykka um landsliðið, handboltaferilinn hans og væntingarnar fyrir EM. Við bendum einnig á myndband þar sem við ræðum við Þykka um Aron Pálmarsson landsliðsmann og hvernig hann hjálpaði „kjúklingnum“ eins og hann kallar kappann að hætta að borða smjör.

17.01.2010 / 10:20

Siggi Sveins segir að Ísland geti unnið alla leiki

Siggi Sveins segir að Ísland geti unnið alla leikiSigurður Sveinsson hrellti markmenn á árum áður og er margrómaður fyrir hressleika sinn innan sem utan vallar. Þessi mikli húmoristi ætlaði að bjóða okkur í kaffi og banana en steingleymdi því en við fórum þó út með penna sem við stálum óvart frá honum. Sigurður hefur spilað 242 leiki fyrir Ísland og skoraði í þeim 736 mörk. Við trufluðum hann í vinnunni í vikunni.

16.01.2010 / 15:11

Rúnar Sigtryggsson: Breiddin í liðinu meiri en margir vilja meina

Rúnar Sigtryggsson: Breiddin í liðinu meiri en margir vilja meinaRúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar og fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik er ánægður með breiddina í íslenska landsliðinu sem hann segir meiri en margir átti sig á. Rúnar lék 118 landsleiki fyrir Íslans hönd og er nýhættur að spila með Akureyri.

16.01.2010 / 14:48

Þriggja marka sigur á Spáni í æfingaleik í dag

Þriggja marka sigur á Spáni í æfingaleik í dagÍsland vann rétt í þessu frábæran þriggja marka sigur á sterku liði Spánverja í æfingaleik í Frakklandi. Lokatölur 30-27 fyrir Íslandi sem mætir annaðhvort Frakklandi eða Brasilíu á morgun. Ísland leiddi 14-12 í hálfleik. Björgvin Páll var allan tíman í íslenska markinu og hann varði alls 19 skot og var með 41 prósent markvörslu. Góður leikur hjá honum.

16.01.2010 / 14:46

Fyrirkomulag og riðlar á EM

Fyrirkomulag og riðlar á EMÁ EM í Austurríki keppa 16 þjóðir. Ísland er auðvitað á meðal þeirra en á Evrópumótunum er ekkert um lélegri þjóðir eins og gerist oft til að mynda á Heimsmeistaramótum þar sem ójafnir leikir sjást oft. Lesið um riðlana, fyrirkomulagið og fleira.

16.01.2010 / 10:07

Einar Þorvarðarson: Undirbúningur hefur staðið yfir síðan farseðillinn kom

Einar Þorvarðarson: Undirbúningur hefur staðið yfir síðan farseðillinn komEinar Þorvarðarson er framkvæmdastjóri HSÍ og hann hefur haft í nógu að snúast undanfarnar vikur og mánuði. Að undirbúa mót eins og EM fyrir íslenska liðið er meira en að segja það og að baki er mikil vinna sem ekki allir átta sig á hvað er mikil og mikilvæg. Við hittum Einar í höfuðstöðvum HSÍ í Laugardalnum og Einar sagði okkur meðal annars að heimsmeistarar Frakka koma hingað til lands í apríl til að leika tvo æfingaleiki við Ísland.

15.01.2010 / 18:33

Ingimundur: Kærkomið að kúpla sig aðeins út

Ingimundur: Kærkomið að kúpla sig aðeins útIngimundur Ingimundarson var við lyftingar í laugum ígær ásamt landsliðinu. Við trufluðum strákanna í smá stund og tókum púlsinn á þeim á þessar síðustu æfingu á íslenskri grundu áður en liðið hélt til Frakklands í morgun. Hann segir að nauðsynlegt sé að fá frí í eins og hálfan dag, sem liðið fékk einmitt í gær.

15.01.2010 / 16:25

Landsliðið kvatt í morgun: Lang erfiðast að fara frá börnunum

Landsliðið kvatt í morgun: Lang erfiðast að fara frá börnunumStrákarnir fóru af landi brott í morgun og við mættum niður í höfuðstöðvar HSÍ til að hitta strákana áður en þeir fóru. Mæting var ekki seinna en korter í fimm og rútan fór klukkan fimm. Hún stoppaði í Hafnarfirði til að taka upp leikmenn en annars voru nánast allir á réttum tíma. Einn mætti reyndar alltof snemma og var mættur áður en við mættum, um 25 mínútur yfir fjögur. „Ég hélt að það væri mæting hálf fimm!“ sagði glaðbeittur Snorri Steinn við okkur en viðtal við hann á myndbandi kemur á síðuna í kvöld.

15.01.2010 / 04:09

Íslenska landsliðið fyrir EM valið

Íslenska landsliðið fyrir EM valiðGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið þá sextán leikmenn sem spila fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í handbolta í Austurríki.

15.01.2010 / 02:03

Undirbúningur strákanna fyrir Austurríki

Undirbúningur strákanna fyrir AusturríkiStrákarnir eru að undirbúa sig sem bestu verður á kosið fyrir EM í handbolta og til þess hafa þeir spilað æfingaleiki undanfarið. Þá spila þeir einnig um helgina.

15.01.2010 / 00:22

Í Blíðu og Stríð snýr aftur

Í Blíðu og Stríð snýr aftur Í Blíðu og Stríðu hefur tekið upp þráðinn á nýjan leik, og ekki er vanþörf á. Framundan er ærlegt verkefni fyrir strákana okkar sem takast á við bestu þjóðir heims á Evrópumótinu í Austurríki í janúar.

Mótið hefst 19. janúar og lýkur 31. janúar. Í Blíðu og Stríðu sendir tvo fulltrúa til Austurríkis að þessu sinni og munum við koma með reglulegar fréttir af strákunum úti.

  • 0
  • 3
  • 2
  • 2
  • 4
Skráðu þig

Næstu leikir og úrslit

Serbía - Ísland19.01.10 / 19:1529-29
Austurríki - Ísland21.01.10 / 17:0037-37
Danmörk - Ísland23.01.10 / 19:1522-27
Króatía - Ísland25.01.10 / 15:0026-26
Rússland - Ísland26.01.10 / 15:0030-38
Noregur - Ísland28.01.10 / 15:0034-35
Frakkland - Ísland30.01.10 / 13:0036-28
Pólland - Ísland31.01.10 / 14:0026-29
Ísland - Frakkland16.04.10 / 20:1528-28
Ísland - Frakkland17.04.10 / 16:0028-31

Ísland - Noregur í myndum

Þú þarft Flash spilara til að spila þetta video.

Ísland - Pólland í myndum

Þú þarft Flash spilara til að spila þetta video.
Ísland - Pólland í myndum
Auddi og Logi lýsa bronsleiknum Ísland-Pólland
Ísland-Frakkland í beinni á www.ibs.is
Ísland - Frakklandi í myndum
Bananaviðtal við Robba um leikinn gegn Frökkum
Logi: Gott að fá Frakkana til að fá auðveldari úrslitaleik
Ingimundur: Held rútínunni eins
Auddi í beinni 28.01.10
Ísland - Noregur í myndum
Svona peppa strákarnir sig upp fyrir leiki
Björgvin: Grét sig í svefn en Silver-aði liðið svo í gang
Sturla: Gott að fá að svitna aðeins
Strákarnir skoða kveðjur á ibs.is
Læknir og sjúkraþjálfari landsliðsins um hlutverk sín
Ísland - Rússland í myndum
Æfing hjá strákunum: Ungir vs Gamlir í fótbolta
Auddi tekur stöðuna á strákunum í Frakklandi
Auddi tekur víti á Björgvin Pál
Kveðja frá rauðudeild leikskólans Sólhlíðar
Ísland - Króatía í myndum
Rebekka hjá Audda og Pétri 23.01.10
Auddi í beinni 23.01.10
Aron: Lék frítt í Silver-auglýsingu og fæ ekki einu sinni dollu
Strákarnir léttir eftir æfingu - Hreiðar í viðtali
Íslenskir stuðningsmenn fagna sigrinum gegn Dönum
Ísland - Danmörk í myndum
Snorri Steinn: Ekki erfitt að pumpa sig upp fyrir leikinn
Strákarnir skoða gamlar handboltamyndir
Gunnar Magnússon um leikgreiningu landsliðsins
Dagur um lokamínútuna gegn Íslandi
Auddi í beinni 21.01.10
Ísland - Austurríki í myndum
Guðmundur landsliðsþjálfari um landslið Austurríkis
Dagur Sigurðsson um leikinn við Ísland í dag
Kveðja frá Hvanndalsbræðrum
Heimsókn til Björgvins, Hreiðars og Silvergelsins
Róbert ryðst inn á herbergi Arons
Heimsókn á hótelherbergi Róberts og Snorra
Guðjón Valur: Videofundurinn endaði í hláturskasti
Gillz um smjörfíkilinn Aron Pálmarsson
Fyrsta æfing liðsins í Linz
Geir Sveinsson: Er bjartsýnn fyrir okkar hönd
Ólafur Stefánsson: Jafnvel betri stemmning en fyrir Ólympíuleikana
Vignir Svavarsson: Er ferskur
Siggi Sveins um markmenn og væntingar
Reynir spyr fólkið á götunni út í EM
Rúnar Sigtryggsson ræðir m.a um það sem ber að varast á EM
Strákarnir á leið út um miðja nótt
Logi og lyftingaæfing landsliðsins
Gaupi um landsliðshóp Íslands á EM
Patrekur Jóhannesson um möguleika Íslands á EM
Undirbúningur í HSÍ
Bookmark and Share